Skólablaðið - 01.12.1912, Qupperneq 1
SKÓLABLAÐIÐ
---—Ssssg-—,
SJÖTTI ÁRGANGUR
Reykjavik, I. des.
12. tbl.
Drykkjarvatn skólabarna.
Víða er farið að gæta meira hreinlætis með drykkjarvatn á
heimilum en áður tíðkaðist. En því miður er enn ekki hugsað
um það í skólutiam svo sem skyldi.
Sumstaðar liafa skólahús verið reist nokkurn spöl frá bæ,
og ekkert verið um það hugsað, að með hægu moti næðist til
góðs drykkjarvatns. — En þegar valinn er staður hauda skóla-
húsi. skyldi fyrst spurt: er þar gott vatn? Ef ekki verður með
hægu móti náð til nægiiegs og heilnæms vatns, þá er staðurinn
óhentugur, hvað sem öðru liður.
í skólum þarf að brúka mikið vatn. Það þarf gott vatn tii
að þvo kenslustofur og göng, en það á að gera á hverjum
degi á þann hátt að draga yfir gólfin rennvota tusku, og
strjúka af borðum og bekkjum á sama hátt með votri dulu. En
þvo svo gólfin vandlega einu sinni á viku,
Börn þurfa oft að drekka, og það er afar áríðandi að drykkjar-
vatnið sé heilnæmt. En heilnæmt er vatnið ekki — þó að vatns-
bólið sé i sjálfu sjer gott — nema allrar varúðar sé gæt* í með-
ferð vatnsins, og eins þeirra áhalda, sem notuð eru til vatns-
geymslu og til að drekka með.
Þar sem skólahaldið fer fram í baðstofum, eða stofum undir
lofti, má búast við að meðferðin á því drykkjarvatni, sem börnin
neyta, sé svipuð því sem gerist á heimilinu; góð á þrifaheimilum
og slæm á óþrit'aheimilum. En jafnvel á myndarheiinilum getur
áttsér stað óskiljanlegt hirðuleysi uni vatnsbólið og meðferð drykkjar-
vatns. Vatnið tekið úr svo óhreinum lækjum, að það er Iátið standa
' fötum hálf og lieil dægrin svo að það »setjist«. o: verði svo