Skólablaðið - 01.05.1913, Qupperneq 13
SKOLABLAÐIÐ
77
Kristilegt uppeldi barna.
iii.
Besta guðrækniskenslan.
En því má enginn gleyma, að rétt breytni við börnin dreg-
ur þau drotni nær en nokkuð annað.
Elskan, réttlœtið, sannleikurinn og trygðin við börnin er
besta trúfrœðin fyrir þau. Sönn menning og dáð er það líka.
Elskið börnin! og vottið þeim elsku þá í orðum og verk-
um. Elskan kennir þeim betur en nokkuð annað að trúa á
guð, sem er kærleikurinn.
Verið réttlát við börnin í einu sem öðru. Réttlætið kennir
þeim öllu betur að til er réttlátur guð.
Segið börnu’uirn alt af sannleikann og haldið öll heiti ykkar
við þau. Með þessu kennið þið þeim best að treysta sannleika
guðs og trúfesti og að trúa því að hann sé heilagur.
Talið og breytið eins viturlega og þið getið. Mannvitið
bendir börnunum á að tii er alvitur guð.
Látið líka börnin sjá, að þið vinnið með dáð og þolið nieð
hreysti, og séuð sjálfstæð í anda, orði og verki, séuð máttug og
dugandi í stöðu ykkar. Máttur mannsins bendir þá börnunum
á, að máttugur er sá sem máttinn gaf.
Verið líka miskunsöm við börnin, ef þau hrasa, þá eiga
þau hægra með að trúa á miskunsaman guð.
Börnin sjá fyrstu mynd alheimsstjórnarans í foreldrunum.
já, þau ætla Guð eftir þeim. Og þessi ímynd og ætlun hefur
lengi vald yfir börnunum.«
Skýring,
Gott er það, að sem flestir lati i Ijós álit sitt um hvernig
haga beri kenslu við barnaskóla, þar sein aðeins er einn kenn-
ari. Enda var tilgangurinn — þegar ég sendi Sk.bl. erindi mitt
í sumar — einmitt sá, að vekja máls á því. Á grein hr. Frið-