Skólablaðið - 01.11.1913, Page 1
SKÓLABLAÐXÐ
SJÖUNDI ÁRGANGUR
1913.
Reykjavík, I. nóv.
11. tbl.
Tímamót.
Undarlega þögulir eru prestar og kennarar um það sem
nú er að gerast á sviði trúbragða eða kristindómsfræðslunnar hér á
landi; ekki er svo lítið sem milli ber gömlu guðfræðinni og
hinni nýju. Þögnin getur ekki orðið löng; og líklegast er þá
að prestarnir rjúfi hana fyrstir manna.
En nú standa kristinfræði á flestum lesskrám barnaskóla
og farskóla, og víða varið miklum tíma til þeirrar kenslu, bæði
í biflíusögum og spurningakveri, svo að kennararnir geta ekki
verið afskiftalausir um hina nýju stefnu. Þeir verða annaðhvort
að hafna henni eða aðhyllast hana.
Þá er ekki við öðru að búast en að heimilin láti eitthvað
til sín héyra. Foreldrum getur ekki staðið á sama, hvort börn-
um þeirra eru kendir lærdómar, sem að þeirra áliti eru villulær-
dómar, eða hvort þeim er vísuð rélt Ieið í trúarefnum.
Óhugsanlegt er að prestar, kennarar og foreldrar verði hér
að öllu leyti samdóma; en þá er árekslurinn óhjákvæmilegur, og
það innan skanims.
Það er líklegt að meiri hluti eldri klerka haldi fast við eldri
stefnuna, þá sem þeir hafa alist upp við í prestaskólanum. En
vera má og að sumir þeirra séu nýguðfræðingar, og hafni nú
ýmsum þeim kenningum, sem farið var með í prestaskólanutn á
námsárum þeirra. En allar líkur eru til að þeir, sem nú ganga
í háskálann, aðhyllist þá stefnu, sem þar er nú ráðandi og ríkj-
andi, þó að það þurfi ekki að vera undantekningarlaust.
Sama er að segja um kennarana. Ef til vill fylgja margir
þeirra eldri stefnunni; þeir sem eldri eru. en eflaust hneieiast