Skólablaðið - 01.11.1913, Side 2
162
SKÖLABLAÐIÐ
fiestir þeir, sem þessi árin ganga í kennaraskólann, að ný-guð-
fræðinni.
Mentastofnanirnar ráða eðlilega stefnunni, og heimilin drag-
ast þá bráðum með.
En þetta verður ekki alt í einu. Við lifum nú á alvarleg-
um tímamótum, sem vert er að gefa gaum. Útbreiddasta blað
landsins hefur flutt hinar nýju kenningar til heimilanna, og má
þá búast við að trúmálin verði fremur umræðuefni manna á
meðal, en áðtir hefur tíðkast. Ekki ætti það að skaða, þvert á
móti. Steinþögn um áhugamál er óeðlileg. Verði trúmálin áhuga-
mál, verða þau líka umræðuefni; hljóta því fremur að verða það,
er um breytingu er að ræða á skoðunum lærðra manna um sálu-
hjálparefnin.
Hér bólar á fleiri nýmælum, nýrri aðferð við kennslu krist-
infræða. Gamla lagið þar var að láta læra spurningakverið ut-
anbókar, og biflíusögur utanbókar. Alt utanbókar; börnin ann-
ars ekki talin fermandi. Nokkrir prestar heimta það nú ekki
lengur; en margir heimta það enn. Að minsta kosti að því
er »kverið« snertir. Helga kver utanbókar!
Nýmælið er það, að hætta ekki einungis að kenna spurn-
ingakverið utanbókar, heldur að hœtta að kenna »kvcr-/. Enginn
skyldi kippa sér upp við það, að slík nýbreytni verði af ýms-
um skoðuð svo sem greinileg tilraun til þess að útrýma krist-
inni trú úr þessu landi. En þeim hinum sömu verður þá mætt
með því, að kverkenslan hafi einmitt þegar gert það — kver-
kenslan eins og hún hefur farið fram í þululærdómi og skiln-
ingsleysi.
Enginn mun samt sem áður þora að halda því fram í al-
vöru, að kristin fræði verði ekki lærð öðruvísi en með utanað
lærdómi. Allir vita, að saga, landafræði, náttúrufræði, reikningur
— öll önnur fræði verða lærð, og eru lærð án þululærdóms.
Hvað er það þá í kristnum fræðum, sem gerir nauðsynlegt að
læra þau með þessu ógeðslega lagi? Vitanlega ekkert.
Látum það gott heita; en er þó ekki nauðsynlegt að hafa
einhverja kenslubók í kristinfræðum eins og í öðrum fræðum?
og er kverið ekki hentugt til þess, — segjum Helgakver?
Margt má sjálfsagt um það segja, hversu hentugt það er