Skólablaðið - 01.11.1913, Qupperneq 4
164
SKOLABLAÐIÐ
Danska og enska.
ii.
Eg hefi nú fært nokkrar Iíkur og sannanir fyrir því að okkur
væri stórum heppilegra að hafa ensku fyrir sambandsmál við
umheiminn heldur en dönsku eins og nú er. En mér mun af
sumnm verða svarað, að við þurfum engu að bréyta, enska sé nú
kend í næstum öllum skólum landsins, hinnm föstu, og þar að
auki nemi margir það mál utan skóla.
Þetta er þó ekki nema hálfsatt. Reyndar byrja margir menn
á enskunámi hér á landi. En ástæða er til að halda, að það
nám sé víða nokkuð gallað, og þurfi gagngerðra endurbóta við.
Þetta mun skiljast betur, þegar athugað er hverjar kröfur er
sanngjarnt að gera til hliðmáls. Pað þarf ekki að vera manni
jafntamt og móðurmálið. Og fyrir flesta menn er nóg að skilja
bókmálið, geta bæði lesið skáldskap og fræðibækur ineð sæmi-
legum framburði. Þar á móti hafa fáir nema verslunarmenn, rit*
höfundar og stjórnmálamenn þörf fyrir að rita og tala útlend mái.
Af þessu er auðsætt, að dæma verður um ástand ensknnáms-
ins eftir því, hve mikið er lesið af enskum bókum í landinu.
Um það má dæma, með því að skygnast í bókabúðirnar, í bóka-
söfn einstakra manna, sem ensku hafa lært að einhverju leyti, og
með því að kynnast námsmönnum úr skólunum og vita hvað
þeir kunna mikið.
Bóksalar hér hafa engar bækur á boðstólum, nema það sem
þeir panta fyrir einstaka menn. í bókasöfnum manna úr alþýðu-
skólunum er ákaflega sjaldgæft að sjá ensk rit, en þó kemur það
fyrir. Og að síðustu viðurkenna flestir sem ekki hafa notið meira
en 2—3 vetra kenslu, að þeir þurfi að leita að svo mörgum
orðum að þeir gefist upp og ieggi árar í bát með málið. Fyr-
irhöfn þeirra er því líkt farið og áreynslu þess manns, sem gera
viidi skýli yfir höfuð sitt, en bygði aldrei meira en grunninn.
Sennilega er ekki fjærri sanni, að 90% af Þ^im mönnum sem
byrja enskunám hér á landi um þessar mundir komist aldrei svo
langt að þeir lesi enskar bækur sér til gagns. En það er sama
og að segja að mest alt núverandi enskunám sé einbert kák.
Út frá þessum skoðunarhætti, verður að líta á þá ráðstöfun