Skólablaðið - 01.11.1913, Qupperneq 5
SKOLABLAÐIÐ
165
mentamálasljórnarinnar, að ekki skyldi kenna ensku í Kennara-
skólanum, og þá vitanlega heldur ekki í barnaskólum út um Iand.
Þó að eg sé mótfallinn stefnu þessara manna, að því leyti
sem þeir íáta sér nægja danska mentunarstrauma fyrir þetta land^
þá verð eg þó að játa, að þeim var nokkur vorkun, þótt þeir
ekki vildu bæta einni kák-kenslunni við það sem fyrir var.
En frá sjónarmiði þeirra, sem óska og vona að Iíf alþýð-
unnar í Iandinu taki skjótum og gagngerðum breytingum til
bóta, verður algerð lífsnauðsyn að gera þorra manna í landinu
unt að eiga aðgang að gæðum heimsmálanna, og þá helst ensk-
unnar sem voldugust er. Þeir spyrja því ekki hvað lækningin
kostar, ekki fremur en sjúklingar gera samninga fyrir fram við
læknana um hvað kosta muni að gera þá heilbrigða aftur.
Enskukunnátta nú á dögum er, eins og París, verð einnar
messu. En nú vill svo vel til, að ekki þarf að sökkva landinu
ineð nýjum fjárframlögum til að gera þorra hinnar uppvaxandi
kynslóðar ensku lesandi. Til þess þarf ekki meiri tíma og fé
en nú er er eytt í dönskunámið og euskukákið. Það þarf ekki
meira með, en að fara dálítið skynsamlegar að en við gerum nú.
Allir vita að meðalskynsamir menn læra ensku sér til sæmi-
legs gagns á missiri, er þeir dvelja eingöngu meðal enskumæl-
andi manna, þótt gáfumenn komist ekki jafnlangt á 3—4 árum í
skólum okkar, Ástæðan er vitanlega sú, að málið kemur svo að
segja fyrirhafnarlaust yfir þann sem heyrir það alt af, og er um-
kringdur af því í nokkra mánuði. Athugulir kennarar, sem veitt
hafa þessari staðreynd eftirtekt byggja á því mikilvægar umbætur
í námi lifandi mála. Þeir gera skólaveruna, að því sem hægt er,
h'ka dvöl í öðru landi, þeir tala hið útlenda mál í tímunum, og
kenna á því einhverjar fræðigreinar, hafa kenslubækur á því. í
stutíu máli: Iáta það umlykja og koma inn í meðvitund nem-
andans að mestu fyrirhafnarlaust eins og móðurmálið. Hið sanra
ættum við og yrðum að gera, ef hugsað væri til að gera ensku
að sambandsmáli þjóðarinnar við umheiminn. .
Ef fylgt væri mínum ráðum, yrði að breyta innan skamms
reglugerð Kennaraskólans, og gera ensku þar að höfuðmáli útlendu,
en danskan mjög takmörkuð og síðar feld í burtu sem skyldu-
námsgrein. En rétt væri síðan, eins og gert er í sumum skólum