Skólablaðið - 01.11.1913, Page 9
SKOLABLAÐIÐ
169
telur notandi. Þá er ekki nema um tvent að gera, að fella niður
kensluna, eða byggja hús.
Það sem hér er um rætt, hefur áður verið gert að um-
talsefni hér í blaðinu. Krafan um læknisskoðun skólabarna má
ekki niður falla. Vér teljum hana lífsnauðsynlega og líka fram-
kvæmanlega. En hvað segir landlœknirinn? Ráð hans og tillögur
um þetta munu verða mikils metnar og teknar til greina svo
sem auðið er.
Handavinna í skólum.
Alstaðar er sú stefna að verða ofan á að skólarnir kenni
bæði »til munns og handa«. Þeir þykja ekki uppala nýu kynslóðina
»fyrir lífið« að öðrum kosta. Ameríka hefur ekkert verið þar á
undan, að mér skilst, fram að síðustu áratugnm. En nú er svo að
sjá sem sum ríkin þar séu farin að fylgjast vel með, og sum
jafnvel að stika fram úr gamla heiminum í því efni eins og
ýmsu öðru.
Nýlega voru spurningar sendar öllum skólakennurum til
svara í Washington:
1. »Ef þú kennir eitthvað til handanna í skóla þínum, f hvaða
bekkjum kennirðu þá vinnu, og hvað kennirðu?
2. Telurðu þessa kennslu gagnlega nemendum, og ef svo er,
af hvaða ástæðum?«
Allir svara, og á svörunum en margt að græða. Yfirborð
skólanna kennir eitthvað til handanna, sumir í öllum bekkjum
(deildum), sumir í þremur, fjórum eða fimm.
Öllum ber saman um, að þessi kensla sé lífsnauðsynleg
öllum unglingum í stærri skólum, en skiftar skoðanir um hana
í smærri skólum; ekki auðséð hví hún er þar ekki jafn nauðsyn-
leg. Námsgreinafjölda barið við o. s. frv.
Margt er það sem kent er: pappvinna, trévinna, vefnaður,
málmsmíðar, allskonar kvennahannyrðir o. s. frv. Yngri börnin
mest látin móta í leir.