Skólablaðið - 01.11.1913, Page 12
172
SKOLABLAÐIÐ
3. Nú þarf eitthvert ár ekki að eyða helmingi vaxta eða
þrem fjórðu, og legst þá það sem óeytt er við höfuðstól.
4. Verði sjóðurinn einhverntíma þess megnugur, skal reka
fyrir fé hans sjálfstæðan unglingaskóla á Álftanesi þar sem kendar
verða þær námsgreinir og það uppeldi veitt unglingum sem á
þeim tíma þykir best við eiga.
5. Sjóðurinn og sú stofnun sem fyrir hans fé kann að
verða reist, skal standa undir yfirstjórn landsstjórnarinnar, en 3
manna nefnd skal hafa aðalstjórnina á hendi, og sé í stjórnar-
nefndinni: 1. presturinn á Álftanesi, 2. umsjónarmaður barna-
kenslu þar og 3. einn maður sem landsstjórnin tilnefnir.
* *
*
Stofnandi hefur beðið Stjórnarráðið að útvega sér konung-
iega staðfestingu á þessu gjafabréfi, en Stjórnarráðið ekki séð
ástæðu til að verða við þeirri beiðni að svo stöddu. Það á vit-
anlega langt í land að um fyrirhafnarsama stjórn á sjóðnum
verði að ræða, eða eftirlit með þeirri stofnun, sem á sínum tíma
kann að verða reist fyrir hann. Féð er vel geymt í Söfnunar-
sjóði, og ekki hætt við að nein landsstjórn neiti að hafa þau
afskifti af gjafafénu, sem gjafabréfið ætlast til, þegar þar að
kemur. Svo að það er að því leyti þýðingarlaust að konungleg
staðfesting hefur ekki fengist að þessu sinni. Hinsvegar erfitt
að giska á, hverjar ástæður geti verið fyrir því að synja um
aö útvega hana nú þegar.
Kenslueftirlit.
Kennarar hér á landi vinna eftirlitslaust; það er hverju
orði sannara. Einhverjar raddir heyrðust um það á nýaf-
stöðnu alþingi, að umsjónarmaður fræðslumálanna ætti frem-
ur að ferðast um landið á vetrum, meðan á kenslu stendur,
en á sumrum, þegar ekkert skólahald er. Víst væri kenslu-
eftirlit æskilegt, og víða um lönd er talsvert fé og vinna
lögð í það. Prestar og prófastar hafa víða haft hana á hendi.