Skólablaðið - 01.06.1915, Blaðsíða 2

Skólablaðið - 01.06.1915, Blaðsíða 2
&2 SKÓLABLÁÐlÐ (maí—júní) til að fá góða kenslu í lestri og skrift. Vitaskuld gætu þeir sem vildu kent byrjunaratriöin heima fyrir því. En þaS mundi samt vera mörgum hjálp a5 eiga greiSan aSgang aö góöum skóla, í staö þess aö þurfa aö fá einhverja viövan- inga til verksins. Til aö gefa mönnum hugmynd um, hve lestr- ar og skriftar kensla fellur vel í hendi þeirra, sem bestu tökin kunna, vil eg geta þess, aö eg hef heimsótt skóla í Hollandi þar sem 6—7 ára börn lærðu aö lesa og skrifa á þremur mán- uöum og voru þó 15 í bekk. Bersýnilega er slíkt vinnulag betra en þaö, sem viö þekkjum, bæöi á heimilunum, og í lestrarskól- um kauptúnanna. En galdurinn lá allur í því, aö Hollendingar höfðu þarna öll nútímatækin, og kunnáttu, sem gat flýtt fyrir og bætt verkið. En við vinnum með úreltum aðferðum. Ýmsir hafa minst á þær tillögur, sem hér hafa verið gerðar, hafa látið í ljósi megna ótrú á heimavistarskólunum og talið torfundna kennara, sem gætu séð um börnin að öllu leyti. Eg er auðvitað viðbúinn þessari eðlilegu mótbáru, og mun Svara henni til fullnustu þegar talað verður um kennaramentunina. Svarið er vitanlega fólgið í því, að gera strangar kröfur til kennaranna, velja úr þá sem hæfir virðast til starfsins, og afla þeim síðan kenslu og menningar svo góðrar að þeir verði vel færir um að leysa starfið ágætlega af hendi. Umsjón heimavistarskólans kæmi engan veginn öll á kenn- arann. Börnin yrðu að hafa matarfélag, og því stýrði auð- vitað nefnd manna í héraðinu, sem réðu bústýru og þjónustu- konu til skólans. Bústýra þessi bæri því að miklu leyti ábyrgð á þvi að fæði og þjónusta barnanna væri í góðu lagi. Og skólanefnd væri í lófa lagið að skifta um bústýru, þegar þörf gerðist. Ennfremur mætti ganga að því vísu, að kennari, sem hefði búið sig vel undir starfið innanlands og utan, væri vax- inn því að sjá um aga og stjórn að öðru leyti. í slíkum skólum mætti venja börnin á meiri þrifnað og snyrtimensku, en nú er hægt. Þar mætti einangra þau, og gefa góðar fyrirmyndir. Nú er slíkt ókleift, því að óþrifnu heimilin vinna á móti kennurunum. En tækist að ná öllum sveitabörnum um tveggja mánaða skeið í fjögur ár undan beinum áhrifum heimila, þar sem mjög er áfátt hreinlæti, og venja þau við þrifnað eins og hann er á bestu heimilunum, eða getur bestur verið, þá væri mikið unnið. Þetta er eitt af

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.