Skólablaðið - 01.08.1915, Síða 6
SKÓLABLAÐIÐ
118
Ert þú í eilífu myrkri — alstaSar gröfin —
e n hún er uppljómuö stundum eilíföar sólu,
loga mörg ljós þér í hjarta, Ijós, sem aö heita:
minningar, myndir og áhrif menningar þinnar.
Alt sem þú unnir og þektir endurnýtt kemur:
Stjörnurnar, fjöllin og fossar og fallegu blómin,
alls konar ástvina fjöldi umheims og mannheims.
hagar, tún, hjaröir og fuglar og hetjur í sögum;
Mitt í því minningaveldi máttugast vígi
áttu gegn aðkasti manna og ástlausa glaumi,
kaldyrðablotinn ei bitur á blórn þessa veldis,
geymd er þar göfuga sælan gullkistum betri.“
Barnakenslan 1914-15.
Þrátt fyrir margítrekaöar áminningar um aö senda skýrsl-
ur um barnafræðslu fyrir júnílok, eru enn ókomnar skýrslur
frá 5 hreppum, sem því fá ekki styrk úr landssjóði aö þessu
sinni. Sumir þessir hreppar hafa væntanlega ekki haldið uppi
þannig lagaðri kenslu, að þeir geti fengið styrk.
Nokkur óhugur hefur gripið menn í fyrrahaust út af strið-
inu og þar af leiðandi dýrtíð. 1 nokkrum sveitum hefur hann
haft áhrif á barnafræðsluna, þann veg, að kenslutíminn hefur
verið styttur um nokkrar vikur. Það bjargráð hefur þótt hendi
næst til að forða hreppnum frá hallærisfárinu að spara io—30
kr. til barnafræðslunnar.
I fyrravetur voru kensluvikurnar rúmlega hálft fjórða þús-
und á öllu landinu í farskólunum, en á liðnum vetri rúmlega
þrjú þúsund, munurinn um 300.
Með hverju ári horfir til meiri vandræða af húsleysi til
kenslu. Erfiðleikar á að útvega staðina, þó að húsnæði kunni
að vera til, og húsnæði sumstaðar engin til, sem brúkanleg