Skólablaðið - 01.05.1920, Blaðsíða 8
■6Ó
SKÓLABLAÐIÐ
Svo er guSi fyrir þakkandi, aS viS eigum mörg heimili, sem
geta þetta, geta það mætavel, jafnvel betur en skólarnir okkar.
Fjölbreytni sveitavinnunnar, náin kynni viS náttúruna sjálfa,
náttúrufegurðin og andlegt lif og fróðleiksþorsti fólksins, alt
þetta gerir þa'ö aS verkum, aS sum heimili hafa svo gott upp-
eldi aS bjóSa börnum sínum, aS þaS nálgast þaS besta, sem
uppeldisfræSingana hefir dreymt um.
Ef þessi lýsing ætti viS öll heimili okkar, væri vel fariS,
en svo er ekki. Sumir foreldrar eru varla bænabókarfærir; og
flestir eru þeir önnum hlaSnir, svo ekki sjer út úr; nokkrir
eru skeytingarlausir um hag barnanna og ala þau upp á and-
legum útigangi og nokkrir skaSa ])au á þrældómi, líkamleg-
um eSa andlegum. Svcitauppeldiö vantar sorglega starfsviS,
þar sem fjelagsskapur, samvinna og samkepni hrinda fram
þroska barnanna.
Nú er þjóðinni lífsskilyrSi, aS tryggja hverju einasta barni
■svo gott uppeldi, aö alt ]>aS besta i fari þess komi í ljós og
fái aS njóta sín.
ÞjóSin má ekki viS því, aS barn meS afburSahæfileikum
verSi aS miSlungsmanni eSa vesalmenrii, aS eins af því, aS
þaS var svo óheppið, aS fæSast í fátækt, einangrun og and-
legt myrkur.
Ef nóg fje væri veitt til uppeldismálanna, og bæri þjóöin
jafnframt gæfu til aS verja því vel, þá mundi þaS korna aftur
meö þúsundföldum arSi, í auknu manngildi. Þá mundi og
sparast mikiö af því fje, sem nú er variö til hegningarhúsa
og sjúkrahúsa. ÞaS er aö sönnu gott, aS vera ör á fje til
þess aö lækna sjúkdóma; hitt er þó margfalt betra og skyn-
samlegra, aS vera ör á fje til þess aS koma í veg fyrir þá;
aö því mun heilbrigSisgæsla framtiSarinnar aðalkga snúa sjer.
Jeg vil setja hjer lítið dæmi þess, hvað skólarnir geta gert
fyrir heilbrigöismálin. Gæti þaS orðiS þeim til hugguriar, sem
örvænta um alt skólahald á íslandi.
í Bandaríkjunum er fjelag,sem heitir „VelferSarfjelagbarna".
Hefir þetta fjelag safnaS skýrslum um heilsufar barna í öll-