Skólablaðið - 01.05.1920, Qupperneq 9
SKÓLABLAÐIÐ
6 7
um Bandaríkjunum á síöastliðnum tuttugu árum. í byrjun
þessa tímabils voru allir kvillar og sjúkdómar frá þriöjungi
til helmingi algengari í borgum en sveitum. Skýrslurnar sýna
svo aö heilbrigðisástand sveitanna stendur næstum því í stað,
en í borgunum fer það batnandi, og nú er það orðið frá þriðj-
ungi til helmingi betra i borgum en sveitum, eða gagnstætt
þvi sem það var fyrir tuttugu árurn. Er bættu skólaástandi
í borgunum þakkað; hefir það mikla þýðingu, ekki sist þar
sem skólaárið er tíu mánuðir. í sveitaskólunum drekka börnin
víðast öll úr sarna íláti — verður svo varla hjá þvi komist, að
sóttnæmi berist úr einurn í annan, ef til er. Sumstaðar er og
erfitt að ná í vatn; í Imrgaskólum er víðast þannig útbúið, að
vatnsbuna stendur upp úr pípu, fellur svo niður í skál og renn-
ur burtu. Gýs vatnið svo hátt, að varir barnanna snerta ekki
pípuna. Þessar drykkjarlindir (drinking fountains) eru svo
margar, að mörg börn geta drukkið í eiriu. í borgaskólunum
er loftinu haldið hreinu og með jöfnurn hita, hreinlæti er meira
og öll 'aðbúð betri en í sveitum, er ekki að undra þótt heilsu-
farið verði þar stórum betra.
Þetta dærni sýnir ómótmælanlega hvað skólarriir geta gert
fyrir líkamlegt heilsufar barna, hitt er erfiðara að sýna með
tölurn, hverju andlegu áhrifin orka. En þó er nú verið að
fullkomna aðferðir við að rnæla framfarirriar á því sviði líka,
•og skal ekki fjölyrt urn það að sinni.
Jeg vil drepa hjer á tvent, sem mjer virðist allra brýnust
nauðsyn að framkvæma. Annað er að stofria skóla fyrir litil
börn í kaupstöðum. Það er oft seint að senda þau í skólann,
þegar þau eru búin að ganga vilt á göturini í nær tíu ár og festa
ýmsar slæmar venjur, sem mannlegum mætti er næstum of-
vaxið að uppræta. Þau þurfa að koma í skólann um sjö ára
aldur. Auðvitað má ekki taka þau úr Eden æskunnar og setja
þau í bóndabeygju bókfræðanna. Það er afarnauðsyrilegt,
að sjerstaklega fyrstu dagarnir í skólanUm sjeu þannig, að
börnin læri að elska skólann. Undir fyrstu áhrifunum er svo
afarmikið komið. Þau geta anriaðhvort slegið birtu eða skugga