Skólablaðið - 01.05.1920, Side 12
70
SKÓT.ABLAÐIÐ
aSist alt skólahaldið, en skólasveinar þóttu lítiö vaxa þar
aö visku.
Prófin í kennaraskólanum voru haldin á hrakningum úti
um bæ, mest í iSnskólarium. Skriflegt próf kerinara var i
kenslustofum háskólans, og þótti skólastjóra heldur von þess,
að þeir mættu verða andríkari innan þeirra veggja en annar-
staöar. En einn kennaraefna (H. J.) reit neöan á ritgerö sína
þessa stöku:
Stoöar lítt að setja sig
í sæti læröra manna.
Ekki kom hann yfir mig,
andi spekinganna.
ii luku prófi upp í 3. bekk en 5 í 2. bekk; hinir voru veikir
sumir, en nokkrir hafa slitnaö úr lestinni síöan i haust.
Kennaraskólinn hefir frá því í vetur veriö tekinn algert til
sóttvarnarráöstafana fyrst um sinn, og verður fyrir því ekkert
kennaranámsskeiö í vor. Höföu þó fleiri sótt en hægt heföi
verið aö taka.
Hjarðarholtsskólinn endurreistur. —ÞaS er ein þjóöarhneis-
an hjer, að fornfræg höfuöból ganga kaupum og sölum, eins
og markaöstryppi, og þaö oft og tiöum milli ótíndra prangara.
— Urigur prestur vildi fyrir skemstu endurreisa fornt fræöa-
setur og koma upp skóla í prestakalli sinu, en varö aö gef-
ast upp við það og fór úr hjeraðinu af þvi að löggjafar og
landsstjórn voru búin að selja sjálft prestsetrið.
Sira Ólafur Ólafsson prófastur í Hjarðarholti hjelt þar uppi
unglingaskóla um allmörg ár, en þótti þing og stjórn litt virða
það við sig. Loks kvaðst hann vel mega gera þeim það aö
skapi, að hætta við skólann, og það gerði hann. I fyrra hætti
síra Ólafur prestskap og seldi Hjarðarholt.
Nýi kaupandinn að Hjarðarholti er Björn H. Jónsson skóla-
stjóri í Vestmannaeyjum, og hefir hann færst það í farig, að
endurreisa Hjarðarholtsskólann. Dalamenn söknuðu mjög skól-
ans, og nú hafa hjeraðsbúar og sýslufjelagið tekiö höndum