Skólablaðið - 01.04.1921, Blaðsíða 12

Skólablaðið - 01.04.1921, Blaðsíða 12
48 SKÓLABLAÐIÐ og fremst verið að ala upp iðjusama, þol- góða alríkisborgara. Rikið tekur börnin frá foreldrunum, og segir ungfrú Black, að sú viðleitni sje bersýnileg, að draga sem mest úr áhrifum foreldranna og afskiftum af börnunum, er þau eru komin í skólann. En hún óttast mjög, að iðnaðarfyrirtækin og verkaþörfin megi betur en hugsjónir bolsi- víka, og muni hremma bömin og ungling- ana fyr en skyldi úr þessari skólaparadís. En verstan bifur hefir hún á því, hversu fastlega og einhliða bolsivíkar boða kenn- ingar sínar, eða kenna trú sina. því svo muni fara sem fyr, að mannsandinn verði ekki að skaðlausu hneptur í jámviðjur lög- helgaðra kenninga. — Bolsivíkar hafa mjög tekið uppeldismál- in og listirnar í sína þjónustu, og sýnt í því hygni og viðsýni. Hitt er annað, hversu sigurvænlega þeir beita þessum vopnum. En mörgum hjor mundi þarflegt að lesa um bolsivikastefnuna einhverja bók slíka sem Russels, og er -fyrir þvi vakin athygli á henni hjer. Hún er nú nýkomin i danskri þýðingu, og mun hægt að panta hana hjá bóksölum hjer, hvort heldur á ensku eða dönsku. Fregnirnar um frönsku stjórnarbylting- una miklu vom ekki fagrar. Henni var yfir- leitt lýst svo, meðal skikkanlegra manna, að hún væri guði og góðum mönnum and- styggileg, og að fyrir henni stæðu bófar einir og guðlaus illmenni. Nú er litið á þessa atburði með meiri ró. í frásögnum hjer og víðar um rússnesku hyltinguna, sönnum og lognum, hefir mest borið á hryðjuverkum og hörmungum og óstjórn, en i gegn skín venjulega eins og ein- hver aulaleg ásökun um það, að alt þetta sje að kenna fáeinum samviskulausum glæframönnum, sem hafi það sjer til skemt- unar að drepa menn og kvelja. þegar frá líður, munu allir þessir atburð- ir skýrast betur. En Russel segir í bók sinni á þá leið, að í Rússlandi hafi nú verið gerð einhver allra merkasta tilraun mannkyns- ins til að bæta kjör sín. H. Hjv. -----o----- Apríl 1921 -== FRJETTIR ZZ —0— Kcnnarafundurinn. Eins og fundarboð hjer í blaðinu ber með sjer, hefir það orðið að ráði að halda fund- inn um miðjan júní. Má þó vera, að sumum kennurum þyki sá tími ekki hentugur. En þess varð fyrst og fremst að gæta, að um 30 kennarar viðs vegar af landinu munu verða á kennaranámskeiðinu, en því miður munu fáir geta komið gagngert. langt utan af landi til þess eins að sækja fundinn. Og mjög lítið er um hentugar skipaferð- ir, og batnaði síst við breytingu þá, sem nú er gerð á ferðum Sterlings. Hann á að koma úr hringferð sama dag og konungur kem- ur hingað, og þótti ekki vænlegt að koma á fundi í öllum þeim ys, sem verða mun hjer þá daga. En úr Jónsmessu mun losna um kennara á námskeiðinu. það þótti því til- tækilegast, að hafa fundinn rjett fyrir iþróttamótið og hátíðahöldin hjer 17.—19. júní, og var með því hægt að binda sig við eina skipsferð, en það er ferð Suðurlands, er það kemur frá Vesturlandi 13. eða 14. júní. Ekki mun fundinn skorta verkefni, og má vænta þess, ef þátt-taka verður allgóð, að hann standi 2—3 daga. KENNARA vantar til eftirlits- og farkenslu í GufudalsfræðsluhjeraSi næsta vetur, 1921 —22. Laun samkvæmt lögum um skipun barnakennara og laun þeirra. Umsóknir sendist fyrir 30. júní næstkomandi. Fræðslunefndin. SKÓLABLAÐIÐ kemur út einu sinni í mdnudi, í'1% örk lesmdls hvert blað, 18 arkir d dri. Kostar 6 krónur, ocj greiðist, fyrirfram, i janúar. Útgefendur: Ásgeir Ásgeirsson, Helgi ITjörvar og Steingrimur Arason. Afgreiðslu og innheimtu annast Hel gi H j ö r v a r, Tjarnargötu 18. Simi 808. Utandskrift blaðsins er: Sk ól abl a ð ið, Reykjavik (Pósthólf 84). Prentsmiðjan Acta — 1921

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.