Sovétvinurinn - 01.09.1935, Side 9

Sovétvinurinn - 01.09.1935, Side 9
[Sovétvinurinn] Nýjustu frejjnir. Undir þessari fyrirsögn mun Sovétvinurinn framvegis flytja fregnir af helztu atburðunum, sem gerast í Sovétríkj- unum hvern mánuð, milli útkoinu blaðsins. Þegar Sovét- vinurinn getur komið út mánaðarlega, verður miklu hægara að fylgjast reglulega með framkvæmdum sósíalismans. Rit- stjórn þessara fregna stendur bá til bóta. Verklýðstryggingar. Þann 9. júlí s. 1. var birt áætlunin um tryggingar verklýðsfélaganna fyrir árið, sem er að líða. Fjár- upphæðin er svo gífurleg, að það er erfitt að gera sér grein fyrir henni: 6000 milljónir (6 milljarðar) rúblna. Öllu þessu fé verja verklýðsfclögin á yfir- standandi ári til tryggingar lífi og heilsu verkafólks- ins. Þó er ekkert af þessu atvinnuleysistryggingar, þvi að atvinnuleysi þekkist ekki í Sovétríkjunum. Fyrir mikinn hluta af upphæðinni láta verklýðsfé- lögin reisa sjúkrahús, hressingarhæli og hvildar- heimili, 600 milljónum er varið til barnaheimila og styrktar börnum að öðru leyti, há upphæð fer til læknishjálpar, sem alstaðar er ókeypis, og í kostnað við dvalir verkamanna á hvíldarheimilum o. s. frv. Þess ber að gæta, að þessir 6 milljarðar eru að eins einn hluti af félagstryggingum i Sovétríkjunum, sá hlutinn, sem er undir stjórn sjálfra verklýðsfélag- anna og eingöngu er varið til styrktar verkalýðnum innan verklýðsfélaganna, en það eru 23—24 milljón- ir manna (auk skvlduliðs). Utan við þessa uppliæð eru þvi t. d. allar trygging- ar samyrkjuhænda. Fyrir islenzkan verkalýð er það athyglisvert að kynnast tryggingamálum Sovétrikjanna, ekki sízt nú, þegar atvinna hefir brugðizt og ekkert er fram- undan fyrir fjölda verkafólks annað en örbirgð og sultur. Hið algerða öryggisleysi á öllum sviðum er með naggi út af smámunum og rifrildi eða þegar bezt læt- ur, að umlykja það væminni viðkvæmni. Fjölskyldan í borgaralegu þjóðfélagi er í upplausn. Skækjulifnaður fer í vöxt. 1 öllum auðvaldslöndunum und- antekningarlaust fækkar barnsfæðingum með ári hverju, og hjónaböndum fækkar. Hjá okkur (i Sovétríkjunum) giftir æskan sig, barns- fæðingum fjölgar. Sósialismi — það er umhyggja fyrir mönnunum og hraðfara fólksfjölgun. Við eigum heimsins heilbrigðustu æsku. Hún er heilbrigð líkamlega og sið- ferðislega. Lyndiseinkunn æsku okkar er mótuð af fremstu hugsjónum mannkynsins og hert í óþrotlegri baráttu í þágu sósialismans. Þessar hugsjónir og þessi barátta er ósamrímanleg við svall og svívirðilega framkomu gagnvart kvenfólki. Það verður að afmá með öllu leifarnar frá hinu borgaralega þjóðfélagi. Umhyggja fyrir börnunum, viðurkenning mæðranna, þetta tvennt eru óaðskiljanleg einkenni á skipulagi okkar •og Sovétborgurum. eitthvert versta böl auðvaldsskipulagsins. Hinn sí- felldi ótti um afkomu sína, ævarandi áhyggja fvrir morgundeginum, er eyðileggjandi fyrir hvern mann. Þessi ótti og áhyggja er með öl-lu horfinn undir skipulagi sósialismans i Ráðstjórnarríkjunum. Moskva. Þann 11. júli birtist „heildaráætlun um nýja byggingarskipun Moskva-borgar“. Moskva er þegar orðin óþekkjanleg frá því sem áður var. Nýjar bygg- ingar, nýjar götur og ný hverfi eru komin þar, að ógleymdri neðanjarðarbrautinni, sem skýrt var frá í siðasta blaði. En nú hefir verið samin tíu ára áætl- un, sem felur í sér gerbreytingu á Moskva. Þegar sú áætlun er lcomin i framkvæmd, verður Moskva glæsilegasta borg í heimi. Borgarsvæðið á að stækka úr 28,500 ha. upp i 60.- 000 ha. En hringinn í kring um borgina-eiga að liggja breið svæði skemmtigarða og skóga. Ekki verður levft að liyggja i Moskva lægri liús en sex liæða, og við breiðustu og fegurstu göturnar eiga liúsin að vera 7, 10 og upp i 14 hæðir. Á næstu 10 árum eiga að rísa nýjar byggingar á 15 millj. ferm. fleti, þar af á 3 millj. m2 á næstu þrem árum. Eftir þessari byggingaráætlun tvöfaldast stærð \ erkamannabústaða í Moskva frá því sem nú er. Á næstu tíu árum á að reisa í Moskva 530 ný skólahús, þar af 390 næstu þrjú árin, 17 ný sjúkra- hús, 50 ný kvikmyndahús, þrjár menningarhallir, eina menningarhöll fyrir börn, sjö stór samkomuhús handa verkamönnum, níu stór vöruhús o. s frv. Áætlun þessi er öll liin slórkosllegasta og væri vitanlega óhugsandi nema þar, sem ríki sósíalismans er grundvallað. 1 auðvaldslöndunum er allt af að þrengjast um íbúða-kosti verkalýðsins. VII. heimsþing alþjóðasambands kommúnista hófst í Moskva 15. júlí. Mættir voru þar fulltrúar frá 46 löndum. Blöð Sovétrikjanna birta jafnpðum útdrætti úr ræðum fulltrúanna. Allur verkalýður Sovétríkjanna fylgist af athygli með þinginu. Wilhelm Pieck, einn af þekktustu kommúnistum Þýzkalands, setti þingið og hélt eina aðalræðuna. Næstu framsöguræðu hélt Dimitroff og var henni tekið með miklum fögnuði. Þingið sendi ávarp til Stalins, „foringja, kennara og vinar alls verkalýðs i heimi og allra undirokaðra jarðarbúa“. Frá íslandi eru mættir á þinginu tveir fulltrúar, Einar Olgeirsson og Brvnjólfur Bjarnason. Flugið yfir norðurpólinn. 3. ágúst lagði Levanevski í flugvélinni „USSR 025“ af stað frá Moskva i flugferð sína yfir norðurheims- 9

x

Sovétvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.