Alþýðublaðið - 27.03.1965, Side 2
Mtttjórar: Gylfl GrCndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — RltstjómartuU-
: ElOur Guðnason. — slmar: 14900-14903 — Auglýslngasiml: 149W.
Utget'andi: Albýðuflokkurlnn
AOaetur: AlþýðuhúsiS viö Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmioja AlpýBu-
klaðsms. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakiB
Verkalýðsráðstefnan
FULLTRÚAR verkalýðsfélaga víðs vegar af
landinu eru saman komnir í Reykjavík á ráðstefnu
til undirbunings samningaviðræðum á vori kom-
andi. Er ætlunin að kanna skoðanir félaganna á
. þeim málum, sem samið verður um, og viðhorf
til þeirra almennt.
Ekki þarf að efast um, að yfirgnæfandi meiri-
hluti vinnandi manna og kvenna í landinu vill fá
kjarabætui’ með friðsamlegu samkomulagi, svo
framarlega sem þess er kostur. Nú hefur ríkisstjórn
in látið þá skoðun í ljósi, að hún óski eindregið
eftir nýju samkomulagi, þannig að tryggður verði
fr'iður á vinnumarkaði að minnsta kosti til eins
árs. Þarf engum blöðum um það að fletta, hversu
gagnlegt júnísamkomulagið frá 1964 var fyrir alla
aðila, hvaða skoðanir sem menn kunna að hafa
á framkvæmd þess í einstökum atriðum.
Alþýðuflokkurinn hefur mælt mjög eindregið
með samkomulagi og látið hispurslaust í ljós þá
skoðun, að launþegar verði að fá eins hagstæða
samninga og framast er unnt. Hefur flokkurinn tal
ið nauðsynlegt, að þeir samningar yrðu sem víð-
tækastir og að læra beri af reynslu síðastliðins
árs um framkvæmd samkomulagsins.
Þjóðin gerir sér án efa vonir um samkomulag,
enda er augljóst, hvað taka mundi við, ef samkomu
lag næðist ekki. Þá verða vinnudeilur og senni-
lega verkföll næstu mánuði; vaxandi óvissa um
gengi krónunnar ogupplausn í efnáhags- og stjórn
. málalíf i Ástæða er til að ætla, að leiðtogar verka
lýðshreyfingarinnar hafi fullan hug á samkomu-
lagi, og ríkisstjórnin hefur lýst áhuga sínum og
{ skilningi á málinu.
\ .
( Islenzk kvikmyndagerð
ÓSVALDUR KNUDSEN hefur gert enn eina
| kvikmynd, sem vekur verðskuldaða athygli samtíð
| arinnar og á eftir að verða dýrmæt heimild í fram-
| tíðinni. Þessi mynd var eins og fyrri myndir Ós-
(• valds gerð í frístundum hans af miklum dugnaði
| ogelju.
Störf íslenzkra kvikmyndamanna hafa verið
f ótrúlega mikil, þegar tekið er tillit til hinnar erf-
iðu aðstöðu þeirra. Hvert fet af filmu hefur þurft
að senda til annarra landa til framköllunar eða
kóperingar og hafa það verið erilsöm viðskipti.
Samt hafa þessir menn — áhugamenn flestir, enn
sem komið er — tekið fjölda mynda, sem sýna við-
burði í sögu þjóðarinnar á síðari árum, ýmsa þætti
þjoðlífs og náttúru landsins.
íslenzka sjónvarpið ætti, þegar það kemst á
laggirnar. að skapa nýja aðstöðu til íslenzkrar kvik
* myndagerðar, en jafnframt verða hinir mörgu kvik
myndatökumenn okkar sjónvarpinu mikilvæg stoð
í öflun efnis.
Starfsnefnd í umferðar
málum sett á stofn
björn Stefánsson frá Bindindisfé-
lagi ökumanna og Magnús H. Valdi
marsson frá Félagi ísl. bifreiða-
eigenda.
Nefndin heitir Samstarfsnefnd
í umferðarmálum og markmið
hennar verður fyrst og fremst að
vinna að auknu umferðaröryggi og
umferðarmenningu, í samvinnu og
samráði við löggjafa og lögreglu,
borgar og bæjaryfirvöld, bifreiða-
eftirlit, tryggingafélög og vega-
málastjórn. Nefndin hefur setið á
vikulegum fundum frá því í febr-
úar sl. og tekið til meðferðar ým-
is mál, sem talið er áríðandi að
hraða.
M. a. að hægri liandar akstur
verði lögskipaður hér á landi, og
viðhlýtandi undirbúningur verði
hafinn. Að ísland gerizt aðili að
samræmingu á umferðarreglum
Norðurlandanna, verði slík sam-
ræming tekin upp. Að hert verði á
refsingum vegna ölvunar við akst-
ur og fullri ábyrgð komið á hend-
ur þeim sem ölvaðir valda slysum
eða tjóni. Svo og ef um er að ræða
endurtekin brot á umferðareglum
og vítaverðum akstri. Að umferð-
arfræðsla í skólum verði aukin. —
Að komið verði á árlegri skoðun á
ljósastillingum bifreiða. Að stuðl-
að verði að því að börn sem á leið
í og úr skóla þurfa oft að fara yfir
BRUNI
Framh. af bls. 12.
• Slökkvistarfi lauk um klukkan
3, en húsið er talið gjörónýtt eftir
eldinn. Það var tryggt fyrir 815
þúsund krónur.
Ákveðið hefur verið að flytja
skrifstofur bæjarins í svokallað
Byggðasafn og skrifstofur rafveit-
unnar á Suðurgötu 10. Engin slys
urðu við eldsvoða þennan
Hætt er við að allt skrifstofu-
hald bæjarins truflist mikið næstu
dagana vegna þessa óhapps.
miklar umferðargötur, verði látin
bera endurskinsmerki, og einnig að
vegfarendur almennt taki upp
þann sið. Að komið verði á um-
ferðarvikum fyrir almenning, meíí
fræðsluerindum og kvikmyndasýn-
íngum um umferðarmál. Og loks
að stofnað verði reglulega til
góðaksturskeppni svo víða sem auð
ið er. Á fundi með fréttamönnum
sögðu stjórnarformenn nefndar-
innar að vandamálin væru miklu
íleiri og að þeir myndu reyna að
gera þeim öllum skil. Þeir tóku
fram að þetta væri einungis til-
raun. Nefndin hefur í rauninnl
ekkert vald, heldur treystir á að
þeir aðilar sem það hafa, bregðist
vel við tillögum hennar.
BJARNDÝR
Framh. af 1. síðu.
ir af fleiri dýrum hér á eða við
Sléttuna.
Þannig hljóðaði frásögn Þor-
steins og er hann þá fyrsti mað-
urinn, sem sér bjarndýr hér við
land á þessum ísavetri.
Frásögnum ber ekki saman um
hljóð þau, sem bjarndýr gefa frá
sér. Ýmsir vilja halda því fram,
að þau öskri eins og naut, þá segja
aðrir að þau spangóli eins og hund
ar og enn eru aðrir, sem segja,
að ísbirnir öskri hvorki né væli,
heldur hvæsi þeir og urri.
Ráðstehna ASÍ
Framh. af bls. 12.
| fjórðungssamböndum, eða cir-
1 samböndum.
Umræðurnar á ráðstefnu ASi
snérust að miklu leyti um hækk-
að kaup, samræmingu kauptaxta,
styttingu vinnutímans, aukna i-
kvæðisvinnu, lagfæringar í skatta
málum, einkum hvað snertir lág
tekjur og miðlungstekjur, mögu-
leika á lækkun húsnæðiskostnað-
ar og aðgerðir til að sporna gegn
verðbólguþróunirmi. 1
Reykjavík, 26. marz. — ÓTJ.
Umferðarvandamáliff er sífellt
að verða alvarlegra hér á landi,
og margir aðilar hafa oröi'ð til
þess að benda á það, aS ráðstaf-
anir þær, sem gerðar eru tii að
ráða við ört vaxandi umferð, séu
engan veginn nægar.
Nú hefur verið stofnuð ný nefnd
sem ætlar að hafa þetta mál til
athugunar, og skipa hana aðilar
þriggja félaga. Þeir eru Hannes
Hafstein frá Slysavarnafélaginu,
sem er formaður nefndarinnar, Ás-
HAFÍSINN
Fi-amh. af 1. síðu.
ið komizt upp í 20 stig undanfarna
daga. Engar vörur hafa borizt enn
þá á Strandir og er marga farið
að langa í kartöflur.
Frá Hrauni á Skaga sést jaka-
strjálingur í dag, en hröngl og lag
ís er við landið. Skyggni er ekki
gott, tæpir 7 km., en greinilegt
er, að ísinn er ekki langt undan,
því að sjólaust er í norðaustan
áttinni.
Erlendur Magnússon vltavörður
á Siglunesi sagðist ekki sjá neinn
is. Skyggni er ekki nema 2-4 km.
og nesið liggur lágt. Drangur fór
hjá í dag, en ekki heyrðist hann
nefna neinn ís.
Fréttaritarinn á Húsavík sagði
allt við sama þar. ísinn lónar utan
við liöfnina og hefur hvorki færst
nær eða fjær. 3 bátar eru að
reyna að róa með þorskanet,. en
fiska lítið. Einn bátur fékk 4 tonn
af steinbít á línu i gær. Rauð-
magaveiðin er alltaf að dragazt
saman. Karlarnir eru ragir við að
leggja netin og veiðin fer sífellt
minnkandi. ísinn liggur við land-
ið hjá Máná og þaðan inn undir
Lundey er íshrafl, en ekki sam--
fellt.
í dag er 4-5 stiga frost á Húsa-
vík, en hefur að undanförnu verið
16-19 stig.
ísinn lónar utan við höfnina á
Raúfarhöfn og virðist hafa fært
sig heldur fjær. í dag er bar mild
ara veður en að undanfömu, eða
8 stiga frost.
Sigurður Stefánsson höndi í
Stakkahlíð í Loðmundarfirði, seg-
ir þar nógan ís. Spöngin Iíggur
með landinu í norðanverðum firð-
inum, suður undir miðjan fjörð
og með suðurlandinu er ennþá
auð renna yfir til Seyðisfjarðar.
fsinn er landfastur á víkunum
norðurundan Húsavík og Brúna-
vík. Borgarfjörður mun vera alveg
fullur og í gær sást ekki út yfir
ísbreiðuna. Spáð er austanátt.
Halldór Víglundsson vitavörður
á Dalatanga segir ísinn nú land-
fastan skammt fyrir sunnan Dala-
tanga. Úr norðanverðum Mjóafirði
liggur ísspöngin í boga fyrir Dala
tanga, yfir Seyðisfiarðarflóa og
inn í Loðmundarfjörð. Ekkl er að
sjá nokkurn ís inn í Seyðisfjarð-
arflóanum. Hins vegar sést ekki
út yfir breiðuna fram undan vit-
anum og er skyggnl 25-30 km.
Renna er með landinu út af Norð-
firði og inn í Mjóafjörð.
Fyrirlesfur
Framh. af bls. 1.
unum og hefur einkum helgað sig
athugunum á því hvernig þjóða-
brot eða minnihlutakynþættir
haga lífi sínu í stóru þjóðfélagi
sem er þeim mótsnúið eða fjand-
samlegt. Hann hefur skrifað nokkr
ar bækur, m. a. eina, er nefnist
„The Black Muslims in America”
Morð í Alabama
Framhaid af 3. siðn
kvað félagsskapinn hafa brugðltt
við að næturþeli eins og venjulega
en ekki myndu menn láta skelfing-
aræði Ku Klux Klan skelfa slg
fremur en skelfingaræði hryðju-
verkamannanna í Vietnam skelfdi
Bandaríkjamenn.
Fyrirlesfur
Dr. C. Eric Lincoln, prófessor frá Bandaríkjunum, flyt-
ur fyrirlestur í Sigtúni í dag, laugardag, kl. 14. Fyrir-
lesturinn fjallar um baráttu blökkumanna í Bandarikj-
unum fyrir jafnrétti kynþáttanna.
Öllum er heimill aðgangur.
Stúdentafélag Reykjavíkur.
k 2' 27- marz 1965 - alþýoublaðið