Alþýðublaðið - 29.05.1965, Síða 11

Alþýðublaðið - 29.05.1965, Síða 11
t=Rifrstióri Örn Eídsson RHÖ Coventry tók „landsliöið" í kennslustund: Liðin voru þannig valin talið frá markverði til v.útherja. ★ COVENTRY. Wesson, Fillet, Harris, Kearns, Curtis, Farmer Turner, Hale, Gould, Hudson, Clements. * ÚRVALSLIÐ. Heimir Guðjónsson, Jón Stefáns son, Guðjón Jónsson, Guðni Jóns son, Högni Gunnlaugsson, Sigurð ur Albertsson Örn Steinsen, Karl Hermannsson, Ingvar Elísson, Ell ert Schram, Runar Júlíusson. Jón Ingi, markvörður. ★ DÖMARI. Hannes Þ. Sigurðsson. ★ LÍNUVERDIR. Steinn Guðmundsson, Carl Berg- mann. ★ ÁHORFENDUR Um það bil 5 þúsund. ÞRIÐJI og síðasti leikur Bret- anna frá Coventry fór fram í gær kvöldi í fremur köldu veðri á Laugardalsvellinum. Miklar breyt ingar höfðu orðið á liði landsliðs nefndar, frá því sem það var til- kynnt. Högni, Rúnar og Heimir léku ekki með, en í þeirra stað komu Jón Leósson, Axel Axelsson og Jón Ingi. Einnig voru breyt- ingar í liði Breta frá fyrri leikj- um. Leikur úrvalsins í gærkvöldi var svo sannarlega lélegur, og hefði leikurinn allt eins getað end að með sex eða sjö marka mun, en úrval menn voru heppnir og björguðu hvað eftir annað á línu og skot Bretanna voru ónákvæm. ★ FYRRI HÁLFLEIKUR 0:0. Úrvalið byrjaði leik og lék und- an sunnangjólu, en Bretar ná knettinum strax og sækja, en bjargað er í horn. Sækja nú Bret ar um hríð, en á 1. mín gefur Örn laglegan bolta fyrir og Ingv- ar skallar, en hinn öruggi mark- vörður, Wesson, ver laglega. — Skömmu síðar er hætta við mark úrvalsins. Jón Ingi markvörður hijóp glannalega út og Jón Stef- ánsson skallar frá og aftur er skotið og Guðjón bjargar í horn. Á 28. mín. ver Guðjón á marklínu með hendi og víti er tekið. Far- mer, vinstri framherji, spyrnir, en Jón Ingi ver fallega með því að kasta sér í vinstra hornið. Á 41- m. kom eina raunverulega marktæki- færið, sem úrvalið átti í þessum hálfleik. Ingvar fékk boltann alveg frír, en lyfti yfir markvörð og mark, og þannig lauk skárri hálf leik úrvalsins, án þess að mark yrði skorað. ★ SÍÐARI HÁLFLEIKUR. Bretarnir léku nú undan vindi og sóttu enn meir en í fyrri hálf leik- Á 3 mín. kom svo fyrsta mark ið. Guðni Jónsson ,,kiksar“ illi lega og Turner h. útherji sendi knöttinn beina leið í netið. Ann að markið kom svo ó 13. mín. Þvaga hafði verið fyrir framan Framhalil á 14. síðu. WESSON markvörður gómar boltann auðveldlcga. Sigurðyr Ounnar Sigurðsson kjörinn formaður ÍR: Ágætur árangur (R inga s.l. starfsár SEX LEIKIR11. OG 2. DEILD HAÐIR UM HELGINA ÞAÐ verður mikið um að vera í knattspyrnunni núna um helgina, tveir leikjr fara fram í I- deild og fjórir í 2. deild. Keppnin í 2. deild hefst á leik velli Hafnfirðinga kl. 16 í dag en þá ieika FH og Breiðablik. Á morgun (sunnudag) leika Val Ur og Akureyri í 1. deild; en sá leikur hefst kl. 16.30- 2. deildar keppnin heldur einnig áfram á sunnudag, Reynir og Siglfirðing ar leika á vellinum í Sandgerði. Ekki er endanlega ókveðinn tími, þar sem lcikurinn verður að ein hverju leyti tengdur hátíðarhöld um Sjómannadagsins- Þriðji leik urimi á. morgun verður í Vest mannaeyjum í 2- deild, Vest mannaeyjar og ísafjörður leika. Tveir leikir verða háðir á mánu dag, í 1. deild leika Akranes og Fram á Akranesi, leikurinn hefst kl. 20.30- Á Melavellinum vérð ur háður leikur í 2. deild milli Þróttar og Skarphéðins, sem nú sendir lið í 2. deildarkeppnina í fyrsta sinn. ÞáUtaka er með meira móti í 2- deild að þersu sinni, alls leika 10 lið, sem skipt er í tvo riðla A.— og B, —riðil. í A—riðli leika Haukar, Hafnarfirði, Siglufjörður, Reynir, Sandgerði, Héraðssam bandið Skarphéðinn og Þróttur. í B—riðli leika: Breiðablik Kópa vogi, FH ísafjörður, Vestmanna eyjar og Víkingur- Keppnjnni í riðlum 2. deildar lýkur 24. júlí, en staður og stund úrslitaleiksins er enn ekki ákveðin. Leikið er bæði heima og heiman í 2. deild. Aðalfundur ÍR var haldinn 25. maí sl. Formaður félagsins, Reynir Sigurðsson, setti fundinn, en sið- an fór fram kosning starfsmanna fundarins. Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri var kjörinn fundarstjóri. Reynir Sigurðsson flutti skýrslu stjórnar og ber hún með sér, að hagur félagsins er góður, bæði fjárhagslega og íþróttalega. All mikil deyfð er aftur á móti yfir félagslífi, það er ákaflega erfitt að fá fólk á fundi, en þeir eru að sjálfsögðu nauðsynlegir í öll- um félögum. Þórir Lárusson gjald keri ÍR gerði grein fyrir reikn- ingum og þeir voru samþykktir einum rómi. Frjálsíþróttamenn ÍR stóðu í stórræðum á síðasta ári, þeir tóku m- a. á móti sænskum íþróttaflokki og frjálsíþróttafólk ÍR fór utan. Bæði heimsókn Svíanna og utan- förin tókust með ágætum. Frjáls- íþróttafólk ÍR setli alls fimm ís- landsmet á síðasta ári og eitt var jafnað, einnig voru sett allmörg unglingamet. í unglingakeppni Frjálsíþróttasambands íslands hlaut ÍR fleiri sigur\’egara en önnur félög og þess má geta, að ÍR á nú sterkasta frjálsíþrótta- flokk kvenna hérlendis. Formaður Frjálsíþróttadeildar ÍR er Þor- grímur Einarsson. Körfuknattleiksmenn ÍR stóðu sig mjög vel í fyrra, urðu bæði ! íslands og Reykjavíkurmeistarar í 6. sinn í röð. Kvennaflokkur ÍR var og Reykjavíkurmeistari. j Á báðum mótunum hlaut félagið fleiri sigurvegara, en önnur félög I samanlagt. ÍR tók þátt í Evrópu- ! bikarkeppni körfuknattleiksmeist- ara og komst fyrst íslenzkra fé- laga í aðra umferð í slíkri keppni. Mikill áhugi er ríkjandi í Körfu- knattleiksdeildinni, sérstaklega er starfið í yngri flokkunum með mikilli prýði. Eormaður Körfu- Sigurður Gunnar Sigurðsson formaður ÍR. knattleiksdeildar er Guðmundur Þorsteinsson. Snjóleysi hamlar mjög állrt- starfsemi skíðamanna, en start Skiðadeildar ÍR er nú sem áður með miklum ágætum. Skíðafólkt félagsins hefur verið sköpuð njjög góð aðstaða í Hamragili og þar er ávallt múgur og margmenni, þeg- ar snjór er nægur. Á skíðamótum stóðu ÍR-ingar sig vel og híutu marga Reykjavíkurmeistara. For- maður Skíðadeildar er Sigubjón Þórðarson. Sundfólk ÍR var mjög sigursælt í fyrra eins og undanfarin ár. Fé- lagið hlaut fleiri íslands- og Reykjavíkurmeistara í sundi en nokkurt annað félag og íslands- met settu ÍR-ingar í tugatali, — Formaður Sunddeildar er Guð- mundur Gíslason. Handknattleiksdeild ÍR varð fyrir því áfalli í fyrra, að meist- araflokkur féll niður í 2. deikl. Síðan yfirgáfu bræðurnir Gylfi og Gunnlaugur Hjálmarssynir flokk- inn og verið er að móta nýtt lið yngri leikmanna. Yngri flokkar ÍR eru í mikilli framför. Formaður Handknattleiksdeildar er Birgir Magnússon. Mikil deyfð hefur verið yfir fimleikum í ÍR undanfarin ár og á síðasta starfsári var eingörigi* Frh. á 10. síðu. 3:0 GAT EINS ORÐID 6:0 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. maí 1965 •%%

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.