Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 3
ooooo Ráðstefna um störf Norðurlandaráðs Þessa niynd a£ nýja gosinu tók Sigurjón Einars son, er hann flaug yfir það í gær. Sprengigos á tveggja til þriggja mínutna fresti Reykjavík. — GO. MiLLI klukkan 9 og 10 í morgun sáu Vestmannaeying- ar, að mikið var um að vera á nýju gosstöðvunum austur af Surtsey. Voru þar mikil sprengigos á tveggja til þriggja mínútna fresti og stóð sand eöa vikurstrókur um 200 — 300 metra í loft upp í hryðjunum. Skyggni var þá sæmilegt, en hefur verið slæmt eða ekkert undanfarna daga. Sigurjón Einarsson flug- maður hjá Flugmálastjórninni flaug út að gosstöðvunum um hádegið í dag, en þá var gosið að mestu hjaðnað niður og hafði sig ekki í frammi. Segir hann að þarna sé um að ræða tvo gígi, Annar gígurinn er sá sem byrjaði að krauma í nú á dögunum, en hinn er ný- tilkominn og um 300 metrum austar. Hann er ekki nærri eins athafnamikill. • Sigurjón segir, að eftir lýs- ingu sjónarvotta í Vestmanna- eyjum hafi goshryðjan í morg- un minnt allmikið á byrjun- ina á Surtsgosinu. Fylgdi henni mikill og hár gufu- strókur. Fréttamaður blaðsins í Vestmannaeyjum fór suður á eyjuna skömmu eftir hádeg- ið. Var þá ekkert að sjá og skyggni fór óðum versnandi. Síðdegis í dag var komin þoka — og hún niðadimm — í Vest- mannaeyjum. NORBURLANDARÁÐ efnir tU ráðstefnu í Hasselby nálægt Stokk hólmi dagana 2.-4. júnf til að kynna starfsmönnum ýmissa al- þjóðlegra samtaka starfsemi Norð nrlandaráðs. Ráðstefnuna sækja 26 fulltrúar 16 alþjóðlegra stofn- ana. Meðal annars mæta fulltrúar frá Evrópuráðinu, Fríverzlunar- bandalaginu, Efnahagsbandalagi sexveldanna og ýmsum stofnunum Saineinuðu þjóðanna. Helztu málin, sem rædd verða, eru þessi: Starfsreglur Norður- landaráðs og samanburður á þeim og starfsreglum alþjóðastofnana, Norðurlönd og samstarf Evrópu- ríkja, norrænt samstarf á sviði menningarmála, efnahagsmála, lög gjafar og félagsmála. Gert er ráð fyrir framsögu og umræðum um hvert mál. Framsögumenn verða m. a. Per Hækkerup utanríkis- ráðherra og Hans Sölvhöj menn- ingarmálaráðherra Danmerkur, Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðherra, Himle samgöngumálaráð herra Noregs, Knut Getz Wold bankastjóri Noregsbanka, Max Jak- obsen sendiherra og H. Waris prófessor, Finnlandi, Hermann Kling dómsmálaráðherra Svía, prófessor Bertil Ohlin, einn af varaforsetum ráðsins, Bertil Ols- sen aðalritstjóri, Svíþjóð, Sven Moberg deildarstjóri, Svíþjóð. Ráðstefnan verður sett af for- seta Norðurlandaráðs, Sigurði Bjarnasyni. Herm&nn sendir heim Washington. 1. júní. (ntb-afp). Lyndon B. Johnson forseti lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag, að hann hefði gefið skipun um að 20 þús. bandarískir landgöngulið- ar, sem nú eru í Dóminíkanska lýðveldinu skuli sendir heim. Hann sagði að ástandið þar væri samt enn mjög alvarlegt, og Bandaríkja menn fögnuðu öllum tilraunum til að finna friðsamlega lausn á deil unum þar. Johnson forseti skýrði einnig frá því á þessum fundi, að hann muni ávarpa 20. allsherjarþing S Þ, sem kemur saman í San Frans- isco síðar í þessum mánuði. ÍSBJÖRN Á UPPBOÐI HLÍF SAMÞYKKIR HEIM- ILD TIL VINNUSTÖÐVUNAR .SIGURDUR BENEDIKTSSON heldur síðasta listmunauppboð vetrarins í Hótel Sögu í dag, og hefst það kl. 17. Að þessu sinni vreða boðin upp 51 verk og eru þar af 20 myndir og ýmsir munir Úr dánabúj Gunnars H- Róberts sonar, leikstjóra. Þeirra á meöal eru nokkrar myndir eftir Gunnar og þrjár abstraktsjónir úr brennd um Ieir eftir Gerffj Helgadóttur- Á uppboðinu eru máfverk eftir marg-a þekk'a málara, þeirra á meðal Kjarval, Mugg, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Sclieving, Gunnlaug Blöndal og fleiri. Að lokum má geta Þess aff boðin verður upp stór og glæsiíegur ís- bjarnarfeldur. VERKAMANNAFÉLAGIÐ Hlíf í Hafnarfirði hélt fund síðastliðið mánudagskvöld. Var á fundinum samþykkt að veita trúnaðarmanna- ráði félagsins hehnild til aff boða vinnustöðvun, er það teldi heppi- legt og ennfremur ályktun um aff banna verkamannavinnu við höfn- ina í Hafnarfirði á sunnudögum. TIL MOSKVU Moskva, 1. júní. (ntb-tass). I Tage Erlander forsætisráðherra ' Svía fer í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna 10.-14. júní, að því er tilkynnt var í Moskva í dag. j í opinberri tilkynningu um þetta var aðeins sagt hvenær heim ; sóknin yrði, og að forsætisráð- I herrann hefði fært fram þakkir I fyrir boð sovézkra yfirvalda. Ályktanir Hlífarfundarins fara hér á eftir: „Fundur haldinn í Vmf. Hlif, mánudaginn 31. maí 1965, heim- ilar trúnaðarmannaráði félagsins að lýsa yfir og framkvæma vinnu stöðvun hjá atvinnurekendum á þeim tíma, sem það er talið heppilegt að dómi trúnaðarmanna- ráðs.” Þá var rætt um sunnudagavinnu og í því sambandi samþykkt ein- róma eftirfarandi: „Fundur haldinn í Vfm. Hlíf, 31. maí 1965, samþykkir að þar til öðru vísi verði ákveðið af hálfu Vmf. Hlífar, skuli öll vinna verka- manna bönnuð á sunnudögum, við höfnina í Hafnarfirði, þ. e. við ! ferming og afferming skipa.” i Einnig var rætt um ásigkomu- | lag verkamannaskýlisins við höfn- ina og gerð þar ályktun um lag- I færingar. Vélarnar eru sjálfvirkar og hreinsa a 50 minutum. NÝ AÐFERÐ VIÐ FATAHREINSUN Reykjavík. — EG. NÝSTÁRLEGT fatahreinsunarfyr- irtækí hefur starfsemi sína í dag. Fyrirtækið heitir Fljóthreinsun h.f. og er til húsa aff Gnoðarvogi 44, skammt frá Hálogalandi. Fréttamönnum var í gær boðið að skoða húsakynni og vélakost Fljóthreinsunar h.f., en hér er um algjöra nýjung í fatahreinsun að ræða. Hið nýja fyrirtæki hefur sex þurrhreinsunarvélar af gerð- inni Norge. Vélarnar eru I útliti svipaðar nýtízku þvottavélum, en ekkert vatn er þó notað við hreins unina, aðeins er úðað vatni á óhreina staði áður föt eða tau er sett í vélarnar. Hreinsuntn sjálf tekur aðeins 50 mínútur og geta viðskiptavinir hvort sem þeir vilja beðið meðan fötin eru hreinsuð eða sótt þaú samdægurs. Þarna kostar 114 krón ur að þurrhreinsa fjögur kíló af af taui eða fötum og er það tals Framhald á 14. síðu. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 2. júní 1965 ;3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.