Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 13
Dagar vísis og rósa Mjög áhrifarík ný amerísk stór- mynd með íslenzkúm texta. Jack Lemmon Lee Femiek Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum. Sími 5 02 49 Eáns og spegilmynd INGMAR BERGMANS Áhrifainikil Oscar-verðlaunamynd gerð af snillingnum íngmar Berg mann. Sýnd kl. 9 Bönnuð börnum. PIPARSVEINN í PARAÐÍS Bandarísk gamanmynd í litum og CinemaScope. Bob Hope — Lana Turner Sýnd kl. 7 mikið, sagði Einar. — Það er svo erfitt að hata. — Undarleg orð frá manni, sem alltaf hefur látið tilfinning- ar ráða, svaraði Halldór. — Ég þakka þér fyrir að þú skyldir nenna að hlusta á mig. — Heyrðu vinur, sagði Einar. — Vertu ekki með þessa ofsa- reiði yfir smáskoðanamun. Á ég ekki annars að líta við lijá þér núna, mér heyrist þér ekki líða alltof vel? Halldór var alvarlaga að liugsa um að segja nei og þakka pent fyrir, en svo skipti hann um skoðun. Honum leið sannarlega illa og hann átti erfitt með að vera einn. Auk þess hafði Einar reynzt hon um vel og hann vildi gjarnan sjá einhvern. Það var líka rétt hjá Einart, hann átti ekki að hiaupa svona upn á nef sér út af smávegis skoðanamun. Hvernig átti Einar eða nokk- ur annar, sem ekki hafði lent í því sama og hann að skilja skoð- anir hahs og tilfinningar? Það var konan hans, sem hafði verið myrt, konan hans, sem hafði verið ekið yfir. Já, hve slæm, sem hún hafði verið á köflum, var hún þó allt af konan hans og móðir Boggu litlu og Sigga. — Þakká þér fyrir, svaraði hann hæglátlega. — Ég held ég þiggi það, ef þú þá nennir að sitja yfir mér þegar ég er í svona skapi. Ég er víst ekkert sérlega skemmtilegur núna. — Það er ekki við því að bú- ast, sagði Einar. — Hvenær viltu að ég komi? — Komdu eftir kvöldmatinn. Ég ætla að gefa börnunum að borða og koma þeim í rúmið fyrst. Þeir kvöddust og Halldór fór að hræra skyrið handa börnun- um og sjóða egig. Honum fannst það undarlegt, hve Bogga litla virtist sakna móð ur sinnar lítið. Siggi saknaði hennar mun meira, enda hafði hann alltaf dáð móður sína. sem sífellt var svo falleg og fín. En hann mátti ekki hugsa um hana núna. 11. KAFLI. Daginn, sem útför fiósu fór fram, kom ég seint heim Klukk an var farin að ganga átta og pabbi og mamma voru búin að borða. Halldór var löngu bútnn að sækja börnin og eiginlega var ég því fegin. Börnin heimtuðu at- hygli mína óskipta og dagurinn hafði verið erfiður. Ýmislegt, sem ég hafði ekki haft rænu á að ljúka við, var komið í eindaga og ég varð að Framhaldssaga eftir Ingibjörgu Jónsdóttur 14. HLUTI sitja við fram á kvöld unz ég hefði unnið það upp, sem hall- oka hafði farið meðan hugarvíl mitt var sem mest. Móðir mín settist hjá mér með an ég borðaði. Hún gat ekki um annað talað en börnin, sem höfðu verið falin hennar umsjá um sinn. Móðir mín hefnr alltaf verið mjög barngóð kona og ég veit að það hefur verið henni erfitt áð eignast aðeins mtg eina. Þau föður minn hafði alltaf Jreymt um að eiga sex börn að minnsta kosti. En það er oft eins og það fólk, sem þráir börnin mest geti ekki átt þau og hinir, sem ekkert virðast hafa með börn að gera hlaða þeim niður. Hún sagði mér, hvað Bogga litla hefði verið dugleg að borða og hvað Siggi væri hrifinn af mér. Að hún hefði keypt garn í peysu handa Boggu af því að hennar væri rifin og að hún hefði prjónað vettlinga s Sigga af því að honum var alitaf svo kalt á höndunum. — Þau eru bæði hrifin af þér Inga mín, sagði hún. — Þú hef ur líka gert ýmislegt til að laða þau að þér.-Það er fallega gert af þér. Veslingarnir litlu hafa misst svo mikið. — Þau eru beztu börn, sagði ég annars hugar og fór að hugsa um það, að eðlilegt hefði verið að börnin væru ofar i huga mér en faðir þeirra, þó því vært á annan veg farið. Ég átti alls ekki að hugsa um Halldór. Undarlegt að ekkert ann að en sá maður skildi komast að í huga mér. Það yrði breyting á því á næst unni. Þá kæmi Sigurður heim frá Diisseldorf og þá yrði ég elsk uð á ný. Hann myndi reka mína vondu samvizku á brott ög ég yrði aftur ég sjálf. Þá yrði ég ekki einmana leng ur. Þá gæti ég hætt að hugsa í sí fellu um ungu konuna, sem ég hefði orðið að bana. Ég var hvort eð er að gera mitt bezta til að bæta fvrir brot mitt. Ekki hefði Halldór og börnin verið sælli ef ég hefði verið sett í varðhald eða dæmd í sekt. Halldór hefði ekkt fengið neitt af þeim peningum og börnin hans hefðu ekki haft Ingu frænku til að hátta sig og þvo sér um fingurnar. Þá hefði eng inn sagt þeim sögur meðan þau voru að sofna á kvöldin. í dag hafði ég selt bílinn minn, sem ég hafði verið svo stolt af að eiga. Það hafði eiginlega borizt upp í hendurnar á mér og i kvöld myndi ég segja foreldrum mín- um, að ég vildi heldur pert eitt hvað annað við peningana. Ég ætlaði að segja þeim, að ég hefði fengið svo gott tilboð í bíl inn, að ég hefði ekki tímt að neita því. Faðir minn yrði feginn. Hann hafði alltaf verið hræddur um mig. Honum var ekkert um að vita af mér sitjandi undir stýri í hálku eða rigningu. Faðir minn sá alls staðar fyrir sér slysin. Fata viðgerðir SETJUM SKINN A JAKKA AUK ANNARRA FATA- VIÐGERÐA ’ SANNGJARNT VERÐ. Skipholti 1. — Sfmi 1BJ4B. SÆNGUR Endurnýjum gömlu sængurnar. Seljum dún- og fiðurheld ver. NÝJA FIÐURHREINSUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 16738 SMURT BRAUÐ Snittur. Opið frá kl. 9—23,30. Branðstofan Vesturgötu 25. Sími 16012 Guðmúndur, sem var sölumat ur á fasteignadeild lögfræðiskril stofunnar, sem ég vann á, hafði keypt bílinn. Ég spurði hann í rælní hver* ig væri að selja VolkswagflOt núna og hann hafði boðjzt til aO kaupa hann af mér. Mér lá ekki á að fá alla peni ingana í einu, enda átti Halldóí frekar að fá þá smátt og smátt. Fjörutíu þúsund krónur hafðt 'hann borgað mér fyrir Vlinni út, afganginn átti ég að fá í fimm þúsund króna afborgunum mán« aðarlega. í dag rétt áður en ég fór heim liafði ég sett í póst bréf mcð tíu bláum seðlum í. Seðlar, sem voru vafnir inn í hvíta örk með orðunum: Framleítt einungis úr úrvalsgleri — 5 ára ábyrgð. Pautiö tímanlega. Korkiðjan hf. Skúlagötu 57 — Síml 23260. SMURSTÖÐIN Sætúni 4 — Sími 16-2-27 BíIUnn er smurður fljött og vel. Seljum allar tegundir af smurolíu ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. júní 1965 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.