Alþýðublaðið - 04.06.1965, Page 1

Alþýðublaðið - 04.06.1965, Page 1
FOSTUDAGUR, 4. júní 1965 - 45. árg. - 124. tbl. - VERÐ 5 KR. 28.010 KM. Á KLUKKUSTUND Þessi símsenda mynd frá Kennedy-höfða sýnir þegar geimför- unum James McDivitt (til vinstri) og Edward White (til hægri) var komiö fyrir í Gemini-geimfarinu áður en því var skotið. White dvaldist utan geimskipsins í 20 mínútur eða átta mín- útum lengur en upphaflega var ráðgert. Sovézki geimfarinn Alexei Leonov dvaldist 10 mínútur utan geimfarsins „Voskhod 2“ í ferð sinni í marz. White liafði meðfcrðis ljósmyndavél og litlar eldflaugar til að stýra sér. Ferð geimfarsins var 28.010 km á klukkustund, þegar White var utan geimfai's'ins. White talaði án afláts þegar hann var úti í geimnum og reynt var árangurslaust að fá hann til að hætta og snúa aftur til geimfarsins. 1 11 bátar meö I rúm 6000 mál Frh. á 14. slöu yfirvofandi eystra Reykjavík. — GO. ÞEIR sex staðir á Austurlandi, sem hafa tekið við síld á þessari vertíð, voru búnir að taka Við 85.578 málum í gærkvöldi. Eru þá allar þrær fullar, nema á Vopnafirði, en þangað er ófært vegna ísreks. Aðeins tveir staðanna hafa byrjað bræðslu, Fáskrúðsfjörður og Eskifjörður og vonast var til að Reyðarfjarðarverksmiðjan færi í gang í gærkvöldi. Hámarksafköst þessara sex verksmiðja eru 18.000 mái á sólarhring og þróarrými er fyrir 83.000 mál. Ástandið á hinum einstöku stöðum er sem hér segir: VOPNAFJÖRÐUR er búinn að taka við 5614 málum, en siglinga- leiðin inn á fjörðinn tepptist í nótt. ísinn liggur alveg upp að bryggju og dreifður :s er um all- an fjörð. Króarrými er fyrir 20.000 mál, en afköst verksmiðj- unnar eru 4500—5000 mál á sólar hring. Bræðsla hefst i næstu viku. BORGARFJÖRÐUR EYSTRI er búinn að taka á móti um' 5000 málum og eru þrær þá fullar. Af- köst verksmiðjunnar eru 600—700 mál á sólarhring og vinnsla hefst um helgina. NESKAUPSTAÐUR hefur tekið við 25.850 málum. Þróarrými er þar fyrir 27.000 mál. Hámarksaf- köst verksmiðjunnar eru 5000 mál á sólarhring. Bræðsla hefst um næstu helgi. ESKIFJÖRÐUR hefur tekið á móti um 20.000 málum. Þróarrými Framhald á 14. síðu. Reykjavík. — GO. SAMKVÆMT upplýsingum síld- arleitarinnar á Dalatang.i, köst- uðu báíarnir talsvert í gær, e» árangur varð misjafn. Sumir bátar ná aldrei neinni sild, en öðnun gengur sæmilega að tjó ika vi® hana. Margir voru á leið í land með slatta, en allar þrær fyrir austan eru að verða fullar, nema á Vopnafirði og lítilsháttar í Breiðdalsvík. Síldin er á sömu slóðum og áð- ur. Svartaþoka er á miðunum, en logn og gott veður að öðru leyti, Framhald á 14. síðu. Loksins hef ég fundið happ- drætti, ssm mér geðjast vei aö: Það þarf aldrei að end- urnýja í því. 20. júní á ég kost á fiug- ferðum bæði tii Ameríku og meg- inlands Evrópu. Og án þess að þurfa að hugsa um að end- urnýja á ég í des- embermánuði kost á hvorki meira né minna en þremur bílum: — tveimur Volkswagen og ein- um Landrover- jeppa. Ég hringi í síma 22710 — og fæ miða senda heim um leið. HAB Houston, 3. júní (NTB-Reuter). BANDARÍSKI GEIMFARINN Edward White steig í kvöld út úr geim- farinu „Gemini 4“, sem skotið var frá Kennedy-höfða síðdegis í dag. White dvaldist 20 mínútur í geimnum. Hann er þar með annar geim- farinn, sem „svifið“ hefur í geimnum, og auk þess hefur hann svifið lengur í geimnum en nokkur annar. White steig út úr geimfarinu kl. 19,45 eftir íslenzkum tíma. Geimfar hans og félaga hans, James A. McDivitt, var þá í 160 km hæð yfir Kyrrahafi á leið til Bandaríkjanna. White, sem er 34 ára gamall, var ter.gdur við geimfarið með 7,6 metra langri taug. Milljónir sjónvarpsáhorfenda, sem fylgdust með ferð Whites í geimnum, heyrðu hann hundza skipanir um að snúa aftur inn í geimfarið. Seinna kom í ljós, að fyrirskipanirnar frá eftirlitsstöð- inni á jörðu niðri höfðu ekki heyrzt í geimfarinu. Meðan White var úti í geimn- um var fylgzt með hjartslætti hans og andardrætti á jörðu niðri. Geimfararnir höfðu stöðugt samband sín á milli meðan White dvaldist utan geimfarsins. Eitt sinn gerði McDivitt gys að White að sakaði hann um að ó- hreinka glugga geimfarsins. Ekki heyrðist hverju White svaraði til. McDivitt tók myndir af White er hann var úti í geimnum. White tók einnig myndir er hann var úti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.