Alþýðublaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 1
FOSTUDAGUR, 4. júní 1965 - 45. árg. - 124. tbl. - VERÐ 5 KR.
28.010 KM. Á KLUKKUSTUND
Þessi símsenda mynd frá Kennedy-höfða sýnir þegar geimför-
unum James McDivitt (til vinstri) og Edward White (til hægri)
var komiö fyrir í Gemini-geimfarinu áður en því var skotið.
White dvaldist utan geimskipsins í 20 mínútur eða átta mín-
útum lengur en upphaflega var ráðgert. Sovézki geimfarinn
Alexei Leonov dvaldist 10 mínútur utan geimfarsins „Voskhod
2“ í ferð sinni í marz. White liafði meðfcrðis ljósmyndavél
og litlar eldflaugar til að stýra sér. Ferð geimfarsins var
28.010 km á klukkustund, þegar White var utan geimfai's'ins.
White talaði án afláts þegar hann var úti í geimnum og reynt
var árangurslaust að fá hann til að hætta og snúa aftur til
geimfarsins.
1 11 bátar meö
I rúm 6000 mál
Frh. á 14. slöu
yfirvofandi eystra
Reykjavík. — GO.
ÞEIR sex staðir á Austurlandi, sem hafa tekið við síld á þessari
vertíð, voru búnir að taka Við 85.578 málum í gærkvöldi. Eru þá
allar þrær fullar, nema á Vopnafirði, en þangað er ófært vegna
ísreks. Aðeins tveir staðanna hafa byrjað bræðslu, Fáskrúðsfjörður
og Eskifjörður og vonast var til að Reyðarfjarðarverksmiðjan færi í
gang í gærkvöldi. Hámarksafköst þessara sex verksmiðja eru 18.000
mái á sólarhring og þróarrými er fyrir 83.000 mál.
Ástandið á hinum einstöku stöðum er sem hér segir:
VOPNAFJÖRÐUR er búinn að
taka við 5614 málum, en siglinga-
leiðin inn á fjörðinn tepptist í
nótt. ísinn liggur alveg upp að
bryggju og dreifður :s er um all-
an fjörð. Króarrými er fyrir
20.000 mál, en afköst verksmiðj-
unnar eru 4500—5000 mál á sólar
hring. Bræðsla hefst i næstu viku.
BORGARFJÖRÐUR EYSTRI er
búinn að taka á móti um' 5000
málum og eru þrær þá fullar. Af-
köst verksmiðjunnar eru 600—700
mál á sólarhring og vinnsla hefst
um helgina.
NESKAUPSTAÐUR hefur tekið
við 25.850 málum. Þróarrými er
þar fyrir 27.000 mál. Hámarksaf-
köst verksmiðjunnar eru 5000 mál
á sólarhring. Bræðsla hefst um
næstu helgi.
ESKIFJÖRÐUR hefur tekið á
móti um 20.000 málum. Þróarrými
Framhald á 14. síðu.
Reykjavík. — GO.
SAMKVÆMT upplýsingum síld-
arleitarinnar á Dalatang.i, köst-
uðu báíarnir talsvert í gær, e»
árangur varð misjafn. Sumir bátar
ná aldrei neinni sild, en öðnun
gengur sæmilega að tjó ika vi®
hana. Margir voru á leið í land
með slatta, en allar þrær fyrir
austan eru að verða fullar, nema
á Vopnafirði og lítilsháttar í
Breiðdalsvík.
Síldin er á sömu slóðum og áð-
ur. Svartaþoka er á miðunum, en
logn og gott veður að öðru leyti,
Framhald á 14. síðu.
Loksins
hef ég fundið happ-
drætti, ssm mér
geðjast vei aö: Það
þarf aldrei að end-
urnýja í því. 20. júní
á ég kost á fiug-
ferðum bæði tii
Ameríku og meg-
inlands Evrópu. Og
án þess að þurfa að
hugsa um að end-
urnýja á ég í des-
embermánuði kost
á hvorki meira né
minna en þremur
bílum: — tveimur
Volkswagen og ein-
um Landrover-
jeppa. Ég hringi í
síma 22710 — og fæ
miða senda heim
um leið.
HAB
Houston, 3. júní (NTB-Reuter).
BANDARÍSKI GEIMFARINN Edward White steig í kvöld út úr geim-
farinu „Gemini 4“, sem skotið var frá Kennedy-höfða síðdegis í dag.
White dvaldist 20 mínútur í geimnum. Hann er þar með annar geim-
farinn, sem „svifið“ hefur í geimnum, og auk þess hefur hann
svifið lengur í geimnum en nokkur annar.
White steig út úr geimfarinu kl. 19,45 eftir íslenzkum tíma.
Geimfar hans og félaga hans, James A. McDivitt, var þá í 160 km
hæð yfir Kyrrahafi á leið til Bandaríkjanna. White, sem er 34 ára
gamall, var ter.gdur við geimfarið með 7,6 metra langri taug.
Milljónir sjónvarpsáhorfenda,
sem fylgdust með ferð Whites í
geimnum, heyrðu hann hundza
skipanir um að snúa aftur inn í
geimfarið. Seinna kom í ljós, að
fyrirskipanirnar frá eftirlitsstöð-
inni á jörðu niðri höfðu ekki
heyrzt í geimfarinu.
Meðan White var úti í geimn-
um var fylgzt með hjartslætti
hans og andardrætti á jörðu
niðri.
Geimfararnir höfðu stöðugt
samband sín á milli meðan
White dvaldist utan geimfarsins.
Eitt sinn gerði McDivitt gys að
White að sakaði hann um að ó-
hreinka glugga geimfarsins. Ekki
heyrðist hverju White svaraði til.
McDivitt tók myndir af White er
hann var úti í geimnum. White
tók einnig myndir er hann var úti.