Alþýðublaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 2
ffft meimsfréttir
..........siéasflidna nótt
★ SAIGON: — Herforingjar tóku völdin í Suður-Vietnam í
sínar hendur í gær. Nýja stjórnin er skipuð tíu herforingjum,
sem allir vilja binda enda á ósigrana í stríðinu og stjórnmáladeil-
nrnar í Saigon. Liðsauki hefur verið sendur til Dong Xoai vegna
mikils liðssafnaðar Vietcong. Þar má búast við fyrstu beinu átök-
nnum með bandarískum liermönmun og Viet-cong.
★ BELGRAD: — Þúsundir hermanna og óbreyttra borgara
unnu að því í gærkvöldi að stífia Dóná, sem hefur flætt yfir bakka
sína og er hér um að ræða mestu vatnavexti í Austur-Evrópu
síðan 1954. Fjöldi þorpa í sjö löndum eru í hættu og þúsundir
manna hafa yfirgefið heimili sín.
★ BRUSSEL: •— Vestur-Þjóðverjar hvöttu eindregið til þess
á utanríkisráðherrafundi EBE-landanna í gærkvöldi að Efnaliags-
bandalagið samþykkti tillögu Friverzlunarbandalagsins, EFTA, um
nánarí samvinnu. Vestur-Þjóðverjar muuu semja uppkast að til-
lögu um nánari samvinnu og verður það lagt fyrir næsta utan-
ríkisráðherra EBE í lok mánaðrains. Frumkvæði Vestur-Þjóðverja
kemur á óvart, þar sem EFTA hefur ekki opinberlega samþykkt
tillögu um nánari samvinnu við EBE.
★ AÞENU: — Ellefu menn hafa verið handteknir vegna
skemindarverka á herflutningabílum skammt frá landamærum
Tyrklands. Hinir handteknu eru úr æskulýðssamtökum öfgasinna
til vinstri. IVXál verður höfðað gegn blaði, sem segir að 17 skrið-
drekar hafi verið eyðilagðir í marz.
★ OTTAWA: — Forsætisráðherra Indlands sagði í Ottawa í
gær, aö Johnson forseti hefði boðið honum í heimsókn til Was-
hington í haust, en hann gæti ekki þekkzt boðið vegna anna.
Johnson hafði boðið Shastri að koma til Washington um leið og
hann færi til Kanada, en dró boðið til baka á þeirri forsendu að
hann væri önnurn kafinn i sumar.
★ PARÍS: — De Gaulle forseti leggur af stað í dag í enn
eitt ferðalag um ýmis héruð Frakklands. Þar sem forsetinn ferð-
ast um þéttbýl héruð er þessi ferð talin ein sú hættulegasta af
22 opinberum ferðalögum lians um Frakkland. Yfir 3.000 lögreglu-
menn munu gæta hans.
,★ STOKKHÓLMI: — Til uppþota kom í gær á aöaltorginu í
Stokkhólmi. Lögreglan varð að beita valdi til að bæla uppþotin
niður, þar sem henni var sýndur mótþrói. Hópur unglinga liafði
safnazt saman á torginu til að mótmæla stefnu Bandaríkjanna í
Vietnam. ~\$SBÍ
ÍSLENZKUR BÁTUR ÚR TREFJAPLASTl
HRAÐBÁTAEIGENDUM fer stöð-
ugt fjölgandi og bátar, sem kosta
allt að 50 þúsund krónur, renna
út eins og heitar lummur. Hingað
til hafa flestir eða allir þessara
báta verið fluttir inn erlendis frá,
en nú ætti að geta orðið nokkur
breyting á því.
Fyrirtækið Trefjaplast á Blöndu
ósi er fyrir nokkru farið að fram-
leiða hraðbáta eftir sænskri fyrir-
mynd. Trefjaplastbátar eru léttir,
sterkir og hraðskreiðir og endast
vel, og verða það að teljast góðir
kostir. Þar sem innflutningstollur
og annar kostnaður er úr sögunni
getur Trefjaplast hf. selt báta sína
ódýrari en annars, sem er einn
kosturinn í vlðbót.
Ljósmyndari Alþýðublaðsins tók
þessa mynd af tveimur ungum
fönnum, sem voru að royna trefja
plastbát frá verksmiðjunni, i
Rey kj avíkurhöf n.
Vel heppnuð skemmtiferð
Alþýðuflokksfélaganna
★ ADDIS ABEBA: — Aöalframkvæmdastjóri Einingarsamtaka
Afríku (OAU), Diallo Telli, sagði í gær á fundi nýlendumála-
nefndar SÞ í Addis Abeba, að aðgerðarleysi stórveldanna í ný-
lendumálunum hefði fært Afríku á barm frelsisstyrjaldar.
★ BERLIN: — Þrír Vestur-Berlínarbúar liafa verið handteknir
af austur-þýzku landamæralögreglunni undanfarna daga. Heim-
sóknir hafa verið leyfðar til Austur-Berlínar síðan á hvítasunnu,
en nú er heimsóknartimanum lokið.
★ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN
efndu til skemmtiferðar um Borg-
arfjörð sl. sunnudag. Þátttaka
var mjög góð og tókst hún liið
bezta í alla staði. Voru þátttak-
endur mjög ánægðir með ferða-
lagið og alla tilhögun þess.
Ekið var frá Reykjavík kl. 9,30
á sunnudagsmorgun, fyrir Hval-
Japanskir bílar komnir
á markaðinn hérlendis
Reykjavík, 14. júní. — ÓTJ.
JAPANSKA bifreiðasalan h.f. hef
nr nú hafið sölu á Toyota bifreið-
unum, en þeirra hefur verið beð-
ið með nokkurri eftirvæntingu
síðan fréttist uin innflutning á
þeim. Á fundi með fréttainönn-
um kynutu forráðamenn bifrciða-
sölunnar þrjár tegundir, Toyota
Crown, Toyota Corona og Toyota
Landcruiser.
Toyota Crown er flaggskipið, ef
svo rhá segja, stærsta og dýrasta
bifreið, sem verksmiðjurnar fram
leiða. Verðið er frá 228 þúsund
krónum. Crown hefur 4 cylendra
toppventlavél, 85 til 95 hestöfl.
Gírarnir eru ýmist þrír eða fjór-
ir, fáanlegir bæði á stýrisstöng og
í gólfi. Eru þeir allir synkroniser-
aðir. Toyota Corona kostar 194
þúsund. Iiann er með 4 cyl. topp-
ventlavél, sem er 75 ha. Gírarnir
eru fjórir í gólfi Þungi hans er
aðeins 12,5 kg. per ha., sem gerir
viðbragðsflýtínn ágætan. Toyota
Landcruiser er jeppabifreið, sér-
Framhald á 15. síðu
fjörð og yfir Dragháls í Borgar-
fjörð. Hádegisverður var borðað-
ur í Borgarnesi og síðan ekið upp
í Borgarfjarðardali. Voru skoðaðir
allir fegurstu og sögulegustu stað-
ir héraðsins og var Björn Th.
Björnson, listfræðingur, leiðsögu-
maður liópsins. Skýrði hann frá
ýmsum markverðustu viðburðum,
sem skeð hafa á hverjum stað og
var leiðsögn hans bæði fróðleg og
skemmtileg. Meðal þeirra staða,
sem komið var við á, voru Reyk-
holt, Húsafellsskógur og Hraun-
fossar.
Heimleiðis var ekið um Kalda-
dal og komið til Reykjavíkur kl.
11 að kvöldi, og voru allir þátt-
takendur ferðarinnar sammála um
Framhald á 15. síðu
Féll sjö metra
fram af hömrum
Reykjavík. — ÓTJ.
MAÐUR stórslasaðist, er hann féll
7 metra af hömrum fram ofan í
grjóturð. Slysið varð við Grímsá
í Borgarfirði í fyrrinótt. Maður
þessi hafði verið við laxveiðiliús
þar ásanit þremur félögum sínum,
og var hann meðvitundarlaus þeg-
ar að honum var komið í skrið-
unni.
Björn Pálsson flugmaður sótti
hann um nótlina, og var hann
lagður inn á Landakot. Er blaðið
hafði samband við spítalann um
kvöldverðarleytið í gær var hann
enn meðvitundarlaus. Ekki virðist
liggja ljóst fyrir, hvernig slysið
vildi til. Alþýðublaðið hafði sam-
band við yfirvöld í Borgarnesi, en
fékk engar upplýsingar aðrar en
þær, er að framan greinir.
í fyrra varð banaslys á sama
stað, og má því ætla að klettarnir
séu hættulegir yfirferðar.
2 15. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ