Alþýðublaðið - 15.06.1965, Side 4
Bltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfuil-
trúi: Eiöur GuBnason. — Símar: 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 1490S.
Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Keykjavik. — Prentsmíðjá Alþýðu-
biaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I .lausasölu kr. 5.00 eintakið.
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn.
FRÆÐSLUMÁLIN
rRÆÐSLUMÁLIN hljóta jafnan að vera einn
mikilvægasti málaflokkurhm í hverju nútíma þjóð-
félagi. í sívaxandi mæli eru gerðar kröfur um mennt-
un, og próf eru orðin lykill að öllum ábyrgðarstöð-
um þjóðfélagsins.
Til þess að standast kröfur tímans verður fræðslu-
löggjöf að 'vera breytingum undirorpin og aldrei má
láta staðar numið í framkvæmdum 1 skóla- og
fræðslumálum.
í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur vel verið á
þessum málum haldið, og margt er nú að gerast í
íslenzkum fræðslumálum, þótt stjórnarandstæðingar
í málefnaþröng freistist stundum til að láta að því
liggja, að ekki sé nægilega vel að þessum málum
unnið.
Á döfinni eru nú margvíslegar framkvæmdir og
nægir í því sambandi að nefna fátt eitt:
Stækka á heimavist Menntaskólans að Laugar-
vatni í áföngum um helming, þannig að skólinn get-
ur eftir þá stækkun rúmað helmingi fleiri nemendur
en áður. Næsta haust verða þar í fyrsta skipti 50
nemendur í fyrsta bekk.
Ákveðið hefur verið að stofna þrjá nýja mennta-
skóla. Einn í Reykjavík, einn á Austurlandi og emn
á Vesturlandi.
Sérstök nefnd starfar nú að endurskoðun náms-
efnis menntaskólanna og því að samræma það kröf-
um tímanna. Lýkur hún væntanlega störfum áður
en langt um líður.
Gerð hefur verið áætlun um eflingu Háskóla
íslands. Þar verður námsgreinum fjölgað, fjölhreytni
| aukin og bætt við nýjum prófessorsembættum.
Stofnaður hefur verið í Reykjavík Tækniskóli
til að fullnægja þörfum þjóðfélagsins fyrir tækni-
menntað fólk.
Á síðasta Alþingi var lagt fram frumvarp um
gjörbreytingar á iðnfræðslu í landinu, sem gerir ráð
fyrir að iðnnámið verði að nokkru leyti fært inn í
verkstæðisskóla.
Margt fleira mætti telja, sem verið er að vinna
að um þessar mundir, en framangreint nægir til að
sýna, að í þessum efnum er verið að gera stöðugar
umbætur, fjölga skólum, stækka skóla og endurskoða
aiámsefní.
Það þjóðfélag, sem við lifum í nú á dögum, er
tækniþjóðfélag, þar sem miklar og vaxandi kröfur
eru gerðar um menntun þegnanna. Á þessu atriði
ríkir skilningur hjá valdhöfum.
Það er auðvitað langt frá því, að íslenzka skóla-
kerfið sé gallalaust, engri þjóð hefur tekizt að skapa
slíkt kerfi. Hins vegar megum við allvel við una
meðan jafn ötullega er að þessum málum unnið og
nú er gert.
4 15. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kvenskór
Frá Englandi, Þýzkalandi
og Danmörku
Nýjar sendingar. — Stórglæsilegt úrval.
SKÖVAL AUSTURSTRÆTI 18
EYMUNDSSONARKJALLARA
hannes©©
á horninu
ÞAÐ VAR FJÖLMENNT á Þing
völíum um helgrina. Égr held að égr
hafi ekki séð annan eins mann
fjölda Þar um venjulegrar helgrar
Þar var að sjiálfsögrðu miklu fjöl
mennara 1930 ogf 1944- Nú voru
tjö'Td um allt jafnvel inni í Bola
bás var tjajd við tjald. Bifreiða
straumurinn viðstöðulaus frá
Þingvöllum til Þingvalla bæði þeg
ar ég fór austur og eins þegrar égr
fór lieim- En vegrurinn er viðsjáll
og furða að ekki skuli verða mik
il slys. Hann er mjór ogr vegrbrún
irnar svikuíar, mölin laus svo að
stórhættulegt er að víkja, enda
var ekjð svo þröngt að hvað eft
ir annað þoldi ég önn fyrir að
hliðin yrði rifin úr bílnum mín
um.
FÓLKIÐ STREYMIR um land
ið og það streymir til annarra
landa. Allir, sem hafa heimsótt
önnur lönd nokkrum sinnum, eru
orðnir leiðir á því og tala um það,
að miklu betra sé að ferðast um
okkar eigið land. Þétta
skil ég. og ég skil það líka, að
fólk sem ekki hefur farið til út
landa, dreymi um það. En fólk
verður mettað af utanlandsferð
um, því að þar er ekki allt í
sómanum fremur en hér hjá okk
ur sjáifum. Hins vegar flnnst
manni, að fyrst sé að kynnast sín
u eigin landi og síðan að
skyggnast svolítið um í öðrum
löndum-
ENN VERÐ ÉG að minnast á
mesta hneykslið í vegamálum okk
ar Reykvíkinga, brautina upp frá
Elliðaánum. Hún er gjörsamlega
óhæf og veldur svo miklum vand
ræðum, að varla þekkjast önnur
dæmi- Ég bað um fyrir tveimur
árum, að gerð væri aukabrú til
bráðabirgða yfir árnar og rudd
væri braut einnig til bráðabirgða
upp frá þeim, en ekkert hefur ver
ið gert. Það er bókstaflega að
verða hlægilegt hvernig ráðamenn
þessara mála streytast við að
bíða eftir „skipulagi". Svona er
þetta raunverulega einnig með
Hafnarfjarðarveginn, þó að enf
valdi hann ekki eins miklum vand
ræðum.
REYKVÍKINGAR EIGA heimt
ingu á því að þegar í stað sé haf
ist handa. Við borgum milljónir
á milljónir ofan til vegamálanna
með benzínskattinum nýja, en svo
virðist sem ekki einn einasti eyr
ir fáíst til framkvæmda í nágrenni
mesta fjölbýlisins. Hvað á þetta
að ganga lengi?
FÓLKIÐ ER FARIÐ að búast
við skýringum, en þær fást ekki.
Ef um hrein mistök eða hand
vömm er að ræða, þá ber að segja
frá því. Það eina, sem við vitum
af þvi að við höfum það fyrir aug
unum, er að ástandið er algerlega
óþolandi. Það fer að líða að því
Fjöimennt á
ÞingvöIIum.
★
Tjöld um alla
velli.
★
Mjór og viðsjár-
verður vegur.
★
Enn um öng-
þveitið við EHiða-
árnar.
með hinum vaxandi bifreiðafjölda
að ófært verði austur úr borginni
um helgar nema með löngum bið
um og umferðarhnútum.
TIL VIÐBÓTAR því sem ég
sagði um Þingvelli, vil ég leggja
það til að fyrirskipaður verði ein
stefnuakstur um Almannagjá-
Hannes á horninu.
TILBOD ÓSKAST
í nokkrar fólksbifreiðir, er verða sýndar að Grensásvegi
9 þriðjudaginn 15. júní kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
HAGTRYGGING h.f.
auglýsir eftir starfsfólki:
1. Skrifstofustjóra.
Z. Skrifstofustúlku.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, leggist inn á skrifstofu HAGTRYGGING H.F.
fyi-ir 25. júní n.k. — Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
HAGTRYGGING H.F.
Bolholti 4.