Alþýðublaðið - 24.06.1965, Blaðsíða 11
KR-ingar börðust vel og gerðu
jafntefli við SBU í góðum leik
Þórólfur vék crf vellinum í
síðari hálfleik vegna meiðsla
LIÐIN TALIN frá markverði til
vinstri útherja:
★ S. B. U.: Mogens Johansen,
Leif Gram Petersen, Kresten
Bjerre, Knud Petersen, Niels Yde,
Sören Hansen, Palle Reimer, Jör-
gen Jörgensen, Arne Dyremose,
Ove Andersen, Finn Wiberg- Lar-
sen.
★ K. R.: Heimir Guðjónsson,
Kristinn Jónsson, Bjarni Felixson,
Sveinn Jónsson, Þorgeir Guð-
mundsson, Ellert Schram, Gunn-
ar Felixson, Gnðmundur Haralds-
son, Baldvin Baldvinsson, Þórólf-
ur Beck, Sigurþór Jakobsson.
TÍr Dómari: Steinn Guðmundsson.
★ Línuverðir: Baldur Þórðarson,
Jón Friðsteinsson.
★ Áhorfendur: 5.600. •
ÁÐUR en leikur hófst skiptust
fyrirliðar á oddfánum og Heimir
Guðjónsson afhenti markverði
SBU blómavönd, en hann lék í
gærkvöldi sinn 55. leik með SBU.
★ FYRRI HÁLFLEIKUR 3:2
Danir byrja með knöttinn, en
KR-ingar snúa vörn í sókn og á
3. mín. fá þeir hornspyrnu, sem
Gunnar framkvæmir og Baldvin
stekkur upp — skallar knöttinn
mjög fallega í netið og lifnaði nú
heldur yfir áhorfendum. En ekki
leið á löngu þar til SBU jafnar,
Ellert brá sóknarleikmanni í víta-
teig og vítaspyrna var dæmd.
Ove Andersen innherji skoraði
Helsingfors, 23. júni (NTB-FNB)
ÍTALÍA sigraði Finnland 2—0 í
undankeppni HM í knattspyrnu.
örugglega úr henni með föstu
skoti.
Skömmu síðar tekur Gunnar
aftur hornspyrnu og nú skallar
Ellert fallega en markvörður ver
laglega. Á. 19. mín. kom svo ann-
að mark KR. eftir dálítið ein-
kennilegan aðdraganda. Baldvin
brýst upp völlinn og er hindrað-
ur, en nær knettinum aftur og er
í dauðafæri, þegar dómarinn flaut
ar og dæmir aukaspyrnu á SBU.
Heyrist þá mikill kurr frá áhorf
endum og var það mjög eðlilegt.
Sveinn Jónsson tók aukaspyrn-
una og gaf á Þórólf sem lyfti
snilldarlega yfir markvörðinn, en
viti menn, þar stendur þá Ellert '
greinilega rangstæður og skaUar
i netið, 2:1 fyrir KR. Og eins og
til að leiðrétta mistökin rétt áður
létu dómari og línuvörður, sem
þeir sæu ekki rangstöðuna.
Á 33. min. er Sigurþór með
knöttinn og leikur fram völlinn og
sendir knöttinn af um 30 m. færi
í hetið. Þetta var fallegasta mark
leiksins, stórglæsilegt, það eru
einmitt svona mörk, sem áhorf-
endur vilja fá að sjá.
Á 35. mín. er nokkur þvaga
fyrir framan mark KR. sem endar
með skalla frá Jörgensen h. inn-
herja, en Heimir misreiknaði
Framhald á 15. síðu.
Hætta við danska markið —
Síðustu fréttir af Cassius
Clay eru þær, að hann hef
ur farið fram á skilnað!
Guðmundur Haraldsson og Dani berjast um boltann.
JAZY SEni TVÖ HEIMSMEJ
Sigurþór (lengst til vinstri) skorar þriðja mark KR glæsilega. — (Mynd: JV).
Melun, 23. júní, (NTB—AFP)
MICHEL JAZY, hinn 29 ára gamli
franski hlaupari og Ron Clarke,
Ástralíu, sem sett hefur hvert
heimsmetið af öðru undanfarnar
vikur hlupu 2 mílur á móti hér í
kvöld.
Jazy sigraði og setti glæsilegt
heimsmet, hljóp á 8:22.6 min. —
Hann bætti gamla metið, 8:26.4
mín., sem Schul,-USA tók af Jazy
í fyrra. Millitimi Jazy á 3000 m.
vao betri en gildandi heimsmet,
sem Jazy á, hann fékk 7:49.0 mín.,
en staðfesta metið er 7:49.2
Clarke hljóp á 8:24.8 og 3. varð
Gammoundi Túnis á 8:37,8.
Hlaupararnir skiptust á um for-
ystu þar til tveir hringir voru eft-
ir, en þá tók Jazy mikinn rykk,
sem Clarke tókst ekki að svara
og vár 20 . m. á eftir. Veður var
mjög gott, þegar hlaupið fór fram.
Þessir tveir fræknu hlauparar
hafa nú alls sett 10 heimsmet í
11 vor og sennilega eiga fleiri eftir
11 að sjá dagsins ljós á næstunni. í
: byrjun júlí fer fram stórmót í
Helsinki, svokallaðir heimsleikar,
þar sem margir beztu frjáls-
íþróttamenn veraldar eru meðal
þátttakenda. Aðalgrein mótsina
verður samt 5000 m. hlaupið, en
þar eru Jazy og Clarke báðir með-
al þátttakenda.
><><><>C><><><><><X><><><><|<>
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. júní 1965