Alþýðublaðið - 14.07.1965, Blaðsíða 11
".1
t=R»frstf6ri Örn Eidsson:
Félagafala Iþróttasambanda
Norðurlanda rúmar 4 millj.
RÁDSTEFNA ríkisíþróttasam-
banda Norðuilanda var haldin í
Reykjavík, dagana 18.—20. júní sl.
að Hótel Sögu. Ráðstefnuna setti
og stjórnaði forseti íþróttasam-
bands íslands, Gísli Halldórsson.
Fulltrúar á ráðstefnunni voru:
Frá Danmörku: Mogens Bred-
feldt, Aage Feldt, A. Fredslund
Peder.sen, Axel Lundqvist.
Frá Finnlandi: Axeli Kaskela,
Marti Vikström, Aaro Laine, Unto
Siivonen, Henry Lindbergh.
Frá Noregi: A. Proet Höst, J.
Chr. Schönheyder, Tormod Nor-
mann, Harald Römcke, Johan Von
Koss.
Frá Svíþjóð: Henry Allard, Tore
G. Brodd, Gustaf Adolf Bouveng,
Bengt Leman, Sten Svensson, Bo
Bengtson.
Frá íslandi: Gísli Halldórsson,
Benedikt G. Wáge, Guðjón Einars-
son, Gunnlaugur J. Briem, Sveinn
Björnsson, Þorvarður Árnason,
Hermann Guðmundsson, Þorsteinn
Einarsson, Jens Guðbjörnsson.
Ritarar ráðstefunnar voru: Bragi
3. fl. Þróttar
til Danmerkur
ÞRIÐJI FLOKKUR Þróttar lagði
á laugardaginn af stað til Dan-
merkur með Gullfossi og mun
hann leika þar nokkra leiki og
fara jafnframt til Þýzkalands, en
ekki ákveðið hyort þar verður
leikið.
Flokkurinn hefur staðið sig með
ágætum í sumar og kvöldið áður
en lagt var af stað unnu piltarnir
Víking, Reykjavíkurmeistarana í
3. flokki, í leik sínum í íslands-
mótinu.
Þróttararnir munu heimsækja
„vinafélag“ sitt, Holbæk, en með
félögunum hefur tekizt hið bezta
samstarf og hefur Þróttur heimsótt
Holbæk þrívegis og piltar frá HIF
komið hingað jafnoft. Þá verður
leikið í Sönderborg og Söborg. Þá
munu piltarnir fara til Þýzkalands,
ekki er ákveðið hvort leikið verður
þar. Heim leggja þeír af stað 31.
júlí með Kronprins Olav-
Leikmenn eru 17 í ferðinni, far
arstjórar eru þeir Óskar Péturs-
son, Sölvi Óskarsson, sem jafn
framt er þjálfari, og Helgi Þor-
valdsson.
Kristjánsson, Sigurgeir Guð-
mannsson.
Þessar voru helztu gjörðir ráð-
stefnunnar:
1) Fluttar voru skýrslur frá
starfi hvers íþróttasambands og
kom af þeim í ljós m. a. að með-
limatala þeirra samanlagt eru
rúmar fjórar milljónir.
2) Rætt var um samvinnu
Norðurlanda, varðandi kvikmynd
ir um fræðslu og þjálfun íþrótta-
manna. Samþykkt var að íþrótta-
samböndin skipuðu fyrir 1. sept.
1965 hvert fyrir sig trúnaðar-
mann, er hefði það verkefni að
fylgjast með því, er kvikmyndir
koma á markaðinn, sem þýðingu
hafa fyrir íþróttafólk, hvað þær
kosta o. s. frv. Þessir trúnaðar-
menn hafi síðan samband sín á
milli.
3) Rætt var um notkun
íþróttafólks á örvunarlyfjum, og
starf Evrópuráðs til hindrunar
slíks. Samþykkt var að senda Evr-
ópuráðinu eftirfarandi ályktun:
Ráðstefna íþróttasambandanna á
Norðurlöndunum, haldin í Reykja
vík, dagana 18.—20. júní 1965,
hefur með miklum áhuga athugað
starf Evrópuráðsins til að fyrir-
byggja að keppendur í íþróttum
noti örvunarlyf. Lýsir ráðstefnan
yfir fyllsta samþykki sínu við á-
framhaldandi starfi Evrópuráðs
ins og UNESCO á þessu sviði.
Ráðstefnan leggur sérstaka
áherzlu á samþykkt, sem Alþjóða
olympíuneíndin hefur gert í máli
þessu.
4) Miklar umræður urðu um
starf Evrópuráðsins og UNESCO
á sviði íþrótta, svo og á hvern veg
hin norrænu íþróttasambönd eigi
aðild að fulltrúavali á ráðstefnur
alþjóðasamtaka, svo sem nefnd
Evrópuráðsins um heilsugæzlu,
UNESCO og m. fl., þegar íþrótta-
máj eru tekin til meðferðar. Nið
urstöður ráðstefnunnar í máli
þessu voru þær, að hún teldi að
hin mörgu alþjóðasamtök hefðu
aukið vinnu sína á íþróttalegum
grundvelli á seinni árum. Hins veg
ar hafi fulltrúaval viðkomandi
landa á ráðstefnur þessar að
mestu verið á opinberum grund-
velli, þ. e. fulltrúar sem ráðu-
neyti landanna hafa valið án nauð
synlegrar samvinnu við íþrótta-
samböndin.
Því beri hverju íþróttasam-
bandi Norðurlandanna að taka mál
Frh. ö 14. síUu
Kristleifur vann
KUISTLEIFUR Guðbjörnsson, KR,
sigraði í 2000 m. hlaupi, sem fram
fór í leikhléi leiks Vals og KR I
fyrrakvöld, timi hans var 5.32.9
mín., en metið, sem Kristleifur á
er 5.27.0 mín. Annar varð Agnaí
Leví, KR, 5.34.5 mín., þriðji Hall»
dór Guðbjörnsson, KR, 5.36.9 mín.
og fjórði Þórður Guðmimdssoþ,
UBK, 5.53.2 mín. Myndin sýnir
Kristleif í viðbragðinu.
VESTMANNAEYJAR GJÖR-
SIGRUÐU BREIÐABLIK 5:0
3. flokkur Þróttar, sem keppir í Danmörku. Mynd: JBP.
ÍBV sigraði Breiðablik í II. deild
með miklum yfirburðum eða 5—0.
Fór leikurinn fram sl. laugardag
á grasvellinum í Eyjum. ÍBV hafð.i
algera yfirburði í leiknum og á öll-
um sviðum knattspyrnunnar. Mörk
in fimm voru hvert öðru fallegra
og alveg óviðráðanleg. ÍBV skoraði
3 mörk í fyrri hálfleik og voru þar
að verki Grímur Magnússon, Val-
ur Andersen og Sigmar Pálmason.
Síðari hálfleikur fór að mestu
fram ó vallarhelmingi Breiðabliks
og var IBV í stanzlausri sókn. Að-
eins tókst þeim þð að skora tvö
mörk enda nær allt Breiðabliks
liðið í vörn. Fyrra markið skoraði
v. framv- Valur Andersen með
brumuskoti frá vítateigslínu og
small boltinn í bláhornið hægra
megin, stórfallegt mark. Fjmmta
markið kom frá Grími Magnús
syni. Siðustu 10 mín gaf ÍBV mik
ið eftir og sótti Breiðablik þá
nokkuð en aldrei tókst þeim að
skora.
Sigur ÍBV var stór en fyllilega
vcrðskuldaður. Sýndi liðið nú einn
sinn bezta lcik í sumar og náði á
köílum góðum samleik. Beztir
voru framverðirnir Sigurður Ingi
Ingólfsson og Valur Andersen.
Breiðablik skortir allt skipulag
í leik sinn en liðið er skipað mörg
um ágætum einstaklingum. Liðs
menn eru frekar jafnir að getu og
skarar enginn fram úr. Þó var mið
vörðurinn sennilega beztur.
Róbert Jónsson dæmdi leikinn
af festu og öryggi en þurfti lítið afr
beita sér.
Daginn eftir lék Breiðablik vi'ð
Týr og sýndi nú miklu betfi og
ákveðnari leik en gegn ÍBV. Lauh
leiknum með jafntefli 2—2. — H,
Framhaldsnám-
skeið í dans-
kennsiu fyrir
kennara
MEÐ LEYFI Menntamálaráðu-
neytisins efnir íþróttakennara-
skóli íslands til framhaldsnám-
skeiðs í danskennslu fyrir þá al-
menna kennara, íþróttakennara,
söiigkennara og handavinnukenn
ara, sem sóttu í september 1962
námskeið skólans í danskennslu.
Námskeiðið verður haldið hér i
Reykjavík frá 6. september til 18.
september n. k.
Daglega verður kennt frá kl. 14
til kl. 19.
Kennarar verða Sigríður Þ. Val-
geirsdóttir og Mínerva Jónsdóttir.
Síðar verður nánar auglýptr um
kennslustöðu. i m
(Frá Fræðslumálaskrifstofunni).
Ráðsfrefíia ríkisíþrófrfrasambanda Norðurlanda var háð i Reykjavík:
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. júlí 1965 u