Alþýðublaðið - 20.07.1965, Blaðsíða 3
Frakkar kvarta við
USA vegna njósna
PARIS, 19. júlí( NTB-Reuter).
— Bandarísk könnunarflugvél
flaug fjórum sinnum á föstudag
Gistihúsa-
ráðstefna
að hausti
Reykjavík — GA
EDWARD FREDERIKSEN, for-
stöðumaður Veitingasölu- og gisti
staðaeftirlits ríkisins sendi
snemma á þessu sumri orðsend-
ingu til allra hóteleigenda utan
Reykjavíkur, þar sem hann skýrði
frá því, að fram hefðu komið ósk-
ir þess efnis, að hann gengist fyr-
ir ráðstefnu fyrir gisti- og veitinga
húseigendur eða forstöðumenn
slíkra stofnana utan Reykjavíkur
á hausti komanda. Mundi ráðstefn
an fjalla um ráðningu og þjálfun
starfsliðs slíkra staða svo sem
þjónustufólks, eldhússtarfsfólks og
móttöku gesta. Ennfremur yrði
Framhald á 14. síðu
yfir bannsvæðið umhverfis kjarn
orkustöðina Pierreiatte í Suður-
Frakklandi, að því er segir í mót-
mælaorðsendingu, sem franska
stjórnin hefur sent bandaríska
sendiráðinu í París. 1 orðsending
'inni segir, að vélin hafi tekið 175
ljósmyndir og hafa þær verið af
hentar frönskum yfirvöldum.
í aðalstöðvum bandarískra her-
sveita í Evrópu er játað, að flug
vél af gerðinni RF-101 frá Fam-
s+ein í Vestur-Þýzkalandi hafi ver
ið á flugi yfir Frakklandi umrædd
an dag en ekki sé til þess vitað
að hún hafi flogið yfir Pierrelatte.
t kjarnorkustöðinni á að fram-
’eiða það úraníum, sem þarf til
framleiðslu franskra vetnis-
snrengja og kjarnorkukafbáta.
í Washinigton er sagt, að frönsk
vfirvö’d hafi greinilega ábyggiur
af málinu. Minnt er á, að fvrr á
bessu ári báðu Frakkar Banda-
>-''kiamenn um að loka ræðismanns
skrifstofu sinni á Tahiti, sem þá
hafði nvleía verið opnuð á ný.
rietum var að því leitt hvort Frakk
ar hefðu óttast að Bandaríkia-
menn mundu nota ræðismanns-
skrifstofuna sem miðstöð ti’
niósna um kjarnorkutilraunir
vrakka á bessum slóðum.
Féll af svölum
og beið bana
Rvík, ÓTJ.
ÁTJÁN ára piltur beið bana sl.
laugardag er hann féll niður af
svölum f jölbýlishúss við Ljós-
heima. Fannst liann liggjandi fyr
ir neðan svalir húss númer átta,
en átti sjálfur heima við númer
tólf, sem er í sömu biokk. Piltur
inn heitir Viktor Gunnlaugsson.
Ekki er vitað af hvaða hæð hann
féll, en lítil stúlka kvaðst hafa séð
hann í fallinu.
Kristján Sigurðsson hjá rann-
sóknarlögreglunni tjáði Alþýðu-
blaðinu, að litlar líkur væru til
þess að hægt væri að komast að
því hvar Viktor var þegar hann
féll. Engin vegsummerki væru
sjáanleg neins staðar.
HER ERU ÖLL ÞÆGINDI
ORLOFSHEIMILl Alþýðusam-
bands íslands við Hveragerði er
tekið til starfa. Síðastliðinn
laugardag fluttu fyrstu fjöl-
skyldurnar inn í smáhýsin
eystra til viku dvalar og um
íiæstu helgi er búizt við að öll
húsin, 22 talsins, verði full og
svo haldist það sem Iifir sum-
arsins.
Fr-éttamaður og ljósmyndari
Alþýðublaðsins brugðu sér
austur fyrir fjall í gær og var
megintilgangur fararinnar að
hitta sumarleyfisfólk á orlofs-
heimili verkalýðssamtakanna.
Það er myndarlegt að sjá
heim að húsaþyrpingunni þar
sem standa tuttugu og tvö smá-,
hýsi, öll nákvæmlega eins, og
skipulega fyrir komið Þessa
dagana er verið að leggja síð-
ustu hönd á verkið, ganga frá
bekkjum við húsin, hengja upp
gluggatjöld, sá í flög og slétta,
tyrfa næst húsunum og hellu-
leggja gangstíga.
Við kvöddum dyra hjá Axel
Jónssyni og könu hans Rósu
Konráðsdóttur-, en þau voru í
einu af þrem húsum, sem
Verkamannafélagið Dagsbrún á
í landi orlofsheimilisins. Hjá
þeim var frændfólk þeirra, Páll
Beck og kona hans Guðný Sig-
urðardóttir og börn þeirra tvö
fimm ára og tveggja ára.
Axel hefur verið meðlimur
Dagsbrúnar um rúmlega tutt-
ugu ára skeið, en hann starfar
nú við gatnahreinsun hjá
Reykjavíkurborg. Hann sýndi
okkur um húsakynnin þarna og
rómaði mjög hve allt væri vist-
legt og skemmtilegt. Óhætt er
að taka undir það. í hverju
húsi er ein stór stofa með góð
um gluggavegg mót suðri. Inn
af stofunni er lítill eldhúskrók
ur með skápum, hitunarplötum
og tilheyrandi. Til hliðar við
stofuna er svo allrúmgott hjóna
herbergi og tvö barnaherbergi
með kojum, þar sem geta sofið
fjögur börn. Þarna getur sem
sé verið rúmt um sex manna
fjölskyldu.
— Það má heita að ekkert
Sigurður (fimm ára) og Krlstín Þóra (tæplega tveggja ára).
hafi vantað, þegar við komum
hingað, sagði Axel Hnífapör og
diskar og önnur eldhúsáhöld,
allt var þetta til staðar í skáp
unum, og hrein rúmföt á hvérju
rúmi. Þegar við förum tökum
við rúmfötin af og skilum þeim,
en ný eru sett áður en næstu
gestir koma.
— En er ekki erfitt með að-
drætti?
— Nei, nei, hingað kemur á
hverjum morgni bíll frá Sel-
fossi með allskyns matvörur, og
það eina sem þarf að panta dag
inn áður er mjólk, kjöt og
fiskur.
— Og hvað kostar þetta svo?
— Það kostar þúsund krónur
að vera hér í viku, og ég held
að það séu ekki nein ósköp, að
minnsta kosti ef miðað er við
ýmislegt annað.
— Hvað ætlið þið að vera
lengi?
— Við ver-ðum hérna í viku,
fram til næsta laugardags, svo
koma aðrir. Það á áreiðanlega
eftir að verða mikil aðsókn að
þessu, því margir hafa ekki átt
kost á að bregða sér svona í
sumarleyfinu, fyrr en þetta
kom til.
— Við erum mjög ánægð með
húsið. Hér eru öll þægindi, raf-
magn og góður hiti, húsið vist
legt og skemmtilegt og umhverf
ið fallegt. Það eina, sem skygg-
ir á er að veðrið hefun ekki
Framh á 14 síðu
Orlofsheimili ASÍ við Hveragerði. Húsin eru nýtízkulegt og mynda skemmtilegt hverfi. (M.: JV).
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 20. júlí 1965 3