Alþýðublaðið - 20.07.1965, Síða 6
Japanskar fá sér
vesturlenzk augu
□ Japanskar konur vilja ekki leng
ur hafa skásett augu. A. m. k. í
stórbæjunum er það nú orðið svo
að eins og þær ganga æ meir í
velsniðnum kjólum og drögtum
upp á vestræna vísu, en geyma
sína dýru kimonóa til helganna,
þannig vilja þær líka vera evr
ópskar í útliti. „Western style“ er
það eina, sem dugar nú orðið í
Japan og kvikmyndir með Marilyn
Monroe og Diana Dors hafa orðið
til þess, að sala gúmmibrjósta
hefur stóraukizt.
Nýjasta nýtt í fegurðarmálum
austur þar er samt augnaaðgerð,
sem tekur 15 mínútur og kostar
rúmar 3000 krónur. Einn helzti
„plastic” skurðlæknir Japana,
Fumio Umezawa við Jijinsjúkra
húsið í Toklo, skýrir frá því, að
þær konur, sem hann hefur gefið
auga í ,,vesturlandastíl“ fari sæl
ar og glaðar af sjúkraliúsinu og
gersamlega lausar við sínar minni
| máttarkenndir. .
Augnalokin eru staðdeyfð og
1 með einni ristu er þeim breytt úr
tvöföldum augnalokum ; einföld
1 svo að þau geta dregizt inn í augna
tóttirnar.
Um 13.5 af hundraði sjúklinga
dr. Umezawa eru skrifstofustúlk
ur, en meðal sjúklinganna er samt
líka að finna prinsessur, embættis
mannafrúr og afgreiðslustúlkur á
börum. Flestar kvennanna eru
milli 19 og 22 ára aldurs — en
aðeins 0.9% eru yfir 55 ára ....
Ingmar Bergman hóf nýja
myndatöku i gær
□ Norska leikkonan Liv Ullman,
sem starfar við norska þjóðleikhús
ið í Osíó, fær ef til vill stærsta
tækifæri sitt sem kvikmyndaleik- j
kona í hinni nýju mynd Ingmar
Bergmans, „Persona“, sem nú verð I
ur farið að taka. Þetta er í fyrsía
sinn sem Bergman fær aðalhlut-
verk í hendur erlendri leikkonu.
í myndinni á Ullmann að leika
leikkonu.
Hitt aðalkvenhlutverkið í mynd
Nýjasta hatía-hugmyndin í London er þessi frolla úr flaueli
með langri flettu og slaufu í. Nafnið — ekki á stúlkuuni held-
ur froilunni — er Chinatown.
inni verður í höndum Bibi Anders-
son, en hún er ein af þeim leikkon
um sænskum, sem mest hafa leik-
ið hjá Bergman. Þessar tvær leik
konur léku áður saman í kvikmynd
inni „Pan“, sem gerð var eftir sam
nefndri skóldsögu Hamsuns. Aðrir
aðalleikendur í kvikmyndinni
verða Svíarnir Margreta Krook,
sem er mjög þekkt úr sænska sjón
varpinu, og Gunnar Björnstrand,
sem áður hefur leikið í fjölmörg-
um af myndum Bergmans.
Á blaðamannafundi í Stokk-
hólmi fyrir helgina upplýsti Ing
mar Bergman, að myndin „Per-
sona“ mundi fjalla um ást og hat
ur milli tveggja persóna. Mynda-
takan átti að hefjast í gær og
myndin verður frumsýnd í haust.
Þetta verður fyrsta myndin, sem
Bergman gerir, síðan hann varð
leikhússtjóri á Dramaten í Stokk-
hólmi. Hann hefur verið í veik
indafríi síðan í vetur, fékk fyrst
lungnabólgu og sló s'ðan niður
l aftur, svo að hætta varð við aðra
mynd sem hann hafði hugsað sér
að gera, með þeim Ullman og An-
dersson. Bergman skrifaði hand-
ritið að myndinni á meðan hann
lá á sjúkrahúsinu. !
Bergman varð 47 ára gamall
snemma í síðustu viku, og hefur
hann gert alls 26 kvikmyndir. —
Eins og flestar aðrar myndir hans,
verður „Persona" tekin í svörtu og
hvítu. „Eftir tvö og hálft ár sem
leikhússtjóri verður yndi legt að
fá að vinna við eigin framleiðslu i
í stað þess að sjóða súpu úr hug- :
myndum annarra, sagði Bergman
á blaðamannafundinum á fimmtu
dág. ,Personá“ er nafníð á ándlits
grímum þeim, sem leikarar í hinu
klassíska leikhúsi báru.
Hinn þekkti, póliski kvikmyndastjóri Kawalerowicz er um þessar
mundir að vinna að kvikmynd um faraóinn Ramses og er talsvert
af myndinni tekið í Egyptaland'i. Hér sjáum við Jerzy Zeinik, sem
leikur Ramses. myndin er tekin undir egypzkri sól.
Rafeindaheili
□ Rafeindaheilinn hefur á mai'g
an hátt reynzt mannkyninu hinn
nýtasti, og nú þurfa menn ekki
einu sinni lengur að eiga í nein-
um erfiðleikum með að finna sér
hæfilegan ektamaka. Einnig það
má láta þetta tækniundur sjá um.
í háskólanum í Michigan hafa
þeir rafeindaheila, sem eingöngu
sinnir þörfum ungmenna, sem
vilja ná sambandi við annað fólk,
og nú hefur fyrsta giftingin, sem
vélin hefur komið í kring, átt sér
stað.
Fyrir þrem mánuðum gaf Paul
Nelson, 25 ára gamall, vélinni upp
lýsingar um sína draumastúlku, og
jafnframt mataði Sandra Titus, 22
ára gömul, vélin á sams konar
upplýsingum um sjálfa sig.
Rafeindaheilinn komst að raun
um, að þau hæfðu livort öðru, og
Nelson bauð Söndru út. Samband
ið var í ágætu lagi, svo að segja
j frá fyrstu stundu, og nú eru þau
gift.
Satt er það, að þetta er ekki al-
Framhald á 15. síðu
6 20. júlí 1965 - ALÞYÐUBLAÐIÐ