Alþýðublaðið - 20.07.1965, Page 9
RAUNSÆ STEFNA
BOUMEDIENNES
ALMENNT virðist viðurkennt, að
hin nýja stjórn Buomediennes of
ursta í Alsír muni einbeita sér að
innanríkismálum. Meiri áherzla
verður iögð á efnahagsleg og fé
lagsleg vandamál en gert var :•
valdatið Ben Bella, og minni á
herzla verður lögð á utanríkismál.
Ben Bella var m.a. borinn þeim
:sökum, að hann hafi lagt höfuð
kapp á það í utanríkisstefnu sinni
að afla sér álits og frægðar og
látið hagsmuni Alsír sitja á hak
anum- Raunsæi er eitt helzta víg
orð hinnar nýju stjórnar Boumed-
iennes, og hann hafnar eindregið
þeim staðhæfingum andstæðinga
sinna að hann muni gera mikil-
vægar grundvallarbreytingar á
hinni alsírsku stefnu.
Boumedienne og samstarfsmenn
hans hafa aftur á móti lýst því
yfir, að það hafi verið Ben Bella
sem brotið hafi í bága við þær
meginreglur, sem lágu til grund
vallar alsírsku byltingunni. Hann
hefur mótmælt „innflutningi fram
andi hugmynda“, sem hann segir
að átt hafi sér stað í valdatíð
Ben Bella.
Ekki er hægt að ætla annað, en
brögð gegn tilraunum nokkurra
erlendra ríkja til að hafa áhrif
á hina alsírsku stefnu. Ben Bella
hafði gerzt mjög háður kommúnist
ískum ráðunautum, og nú hefur
Boumedienne sett þá alla af.
Orðagjálfri lokið
i>ótt fylgismenn Ben Bella væru
fljótir að stimpla Boumedienne
sem fasista bendir ekkert tjl þess
að ofurstinn hafi tekið afstöðu
gegn þeim marxistísku og sósíal
istísku hugmyndum, sem mikilvæg
ar eru uppbyggingu hins alsírska
þjóðfélags. Þegar á árum striðsins
♦
gegn Frökkum var Boumedienne
undir áhrifum frá marxisma og
hann hefur verið kallaður ofstæk
isfullur stuðningsmaður róttækr
ar bændabyltingar.
BOUMEDIENNE
— áherzla lögð á innanlandsmál
Það má jafnvel geta sér þess
til, að Boumedienne hafi talið
Ben Bella fara of hægt í sakirn
ar og ekki hæfan til þess að hrinda
þeim huginyndum í framkvæmd
sem lýst var yfir frelsissumarið
1962.
Boumedienne hefur heitið þjóð
inni því, að nú verði endi bund
inn á „orðagjálfurs-sósíalisma“
Ben Bella. Þetta samsvarar fullviss
un um, að hér eftir verði stóru
orðin spöruð og í þess stað hend
ur látnar standa fram úr ermum
: starfinu að lausn raunhæfra
verkefna.
Frestun hinnar miklu ráðstefnu
Afríku- og Asíuríkja, sem ásamt
fyrirhuguðum fundi með de Gaulle
átti að vera kórónan á tilraun
um Ben Bella til að gegna verki
mikils stjórmálaskörungs á alþjóða
vettvangi, sýnir að Boumedienne
hyggst leggja metorðagirndina á
sviði utanríkismála á hilluna, að
minnsta kosti fyrst. í stað.
Minni áhrif FLN
Hann hefur neitað því, að Serk
ir hyggist taka upp nýja utan
ríkisstefnu- Landið muni halda
fast við hin nánu tengsl sín við
hlutlaus ríki og viðhalda góðum
samskiptum við herbúðir komm
únista. Hins vegar bendir ýmis
legt til þess, að Boumedienne
muni reyna að sýna meira sjálf
stæði gagnvart austurblokkinni
en Ben Bella.
Enn er of snemmt að spá um
það hvaða breytingum stjórn hans
muni koma tit leiðar í innanlands
málunum. En svo virðist sem
hann sé að draga úr áhrifum einu
stjórnmálasamtaka landsins, Þjóð
frelsisfylkingarinnar (FLN).
Hvert er hlutverk þjóðþingsins?
Það er enn mjög óljóst og sömu
sögu er að segja um stjórnar
skrána í heild. Boumendienne hef
ur lagt áherzlu á nauðsyn þess að
koma í veg fyrir persónudýrkun
og að völdin komist í hendur eins
manns. Þetta kann að þýða, að
Boumedienne hyggist fastmóta þá
valdaskiptingu, sem setti svip sinn
á pólitísku forystuna í Alsír í upp
hafi.
Myndun byltingarráðsins eftir
fall Ben Bella benti til þess, að
herforingjastjórn yrði sett á lagg
irnaír. En þ'ar sem bo’-garaleg
stjórn hefur verið mynduð virðist
áhrif hersins munu verða minni en
í fyrstu var ætlað- Þó er ekki vit
að hvort byltingaráðið, sem her
foringjar hafa tögl og hagldir í,
verði leyst upp eða hvort það verð
ur látið halda áfram störfum og
hafa eftirlit með stjóm landsins-
Nýir menn
Samsetning nýju stjórnarinnar
er forvitnileg. Einn úr hópi elztu
uppreisnarleiðtoganna og fangels
isfélaga Ben Bella, Rabah Bitat,
hefur fengið mikil völd og gegnir
embætti ráðherra án ráðuneytis-
Sennilega gengur hann næst Bou
medienne að völdum. Bitat sagði
skilið við Ben Bella og hefur ver
ið í útlegð undanfarin tvö ár.
Skipun Abdessalem Belaid í emb
ætti orku- og iðnaðarmálaráð-
herra er talin bera vott um, að
nýja stjórnin vilji viðhalda góð
elnu af uámskeiðum Fiskmats ríkisius.
Framhald á 15. síðu
Fyrir sumarfríið
PILS - BLÚSSUR
BUXUR — PEYSUR
Austurstræti 7. — Sími 17201.
Matráðskona
óskast í heilsuhæli Náttúrulækningafélags
íslands frá 1. september n.k. til 31 maí
1966. Upplýsingar í skrifstofu hælisins í
Hveragerði.
Útsala Útsala
byrjar á mánudag á:
HÖTTUM, HÚFUM, SLOPPUM, SKOKK-
UM, PILSUM, BLÚSSUM og fleiru.
Hattabúö Reykjavíkur
Laugavegi 10.
SJÁLFSBJÖRG
Félag fatlaðra í Reykjavík
óskar eftir húsnæði til kaups.
Þarf að vera jarðhæð eða góður kjallari,
ca. 100 fermetrar að stærð.
Sími 16538 frá 1 — 5 nema laugardaga.
Sjálfsbjörg.
ÓDÝRT - ÓDYRT
Sumarkjólar. — Verð kr. 395,00 —
295,00 og 195,00.
R. Ó. búðin
Skaftahlíð 28 — Sími 34925.
Ódýr vínnufatnaður
Köflóttar drengjaskyrtur, kr. 79,00.
Gallabuxur með tvöföldum hnjám.
Stærðir 4—14 á kr. 129,00.
Köflóttar vinnuskyrtur karlmanna á kr. 119,00.
Vinnubuxur karlmanna á kr. 195,00.
Flauelsbuxur karlmanna í öllum stærðum kr. 275,00.
Vinnufatakjallarinn
Barónsstíg 12.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 20. júlí 1965 9