Alþýðublaðið - 28.07.1965, Qupperneq 8
I
í
I
i
SÍMl .15-555 PÖSTHÓLF 863
8 millimetra litfilmur frá TECHNICOLOR
GLERAUGNASALAN Cni/'IIC
LÆKJARGÖTU 6B I U IV U U
Þér leggið Rapid-kasettuna á
myndavélina, lokið henni, snú-
ið þrisvar sinnum, myndavélin
er tilbúin til notkunar.
Á vélum, sem ekki eru með inn
byggðum fjarlægðamæli verður
ljósmyndarinn sjálfur að ákvarða
hve langt er í þann hlut, sem ver-
ið er að taka mynd af og stilla
stilla fjariægðamælinn á vélinni
eftir því, en hann er auðmerktur
með fetum eða metrum. Sé fjar-
lægðastillingin. ekki rétt verður
myndm.óhjákvæmilega óskýr. Það
er bara að muna þessar þrjár still-
jngar, Ijósopið, hraðinn og fjar-
Iægðin. Þótt byrjendum þyki þ'etta
Höfum á boðstólum allar gerðir af
filmum og myndavélum.
Framhald af 7. síðu
ar, nema hvað filmurnar eru ekki
í sams konar hylki og á Kodak vél-
unum, og filmuflöturinn er minni.
Það er aðeins flóknara að setja
filmur í Agfa vélarnar, en ætti þó
ekki að flækjast fyrir neinum.
Verð á þessum vélum er frá 682.00
kr. og upp í 3535.00 kr. Hjá Agfa
eru framleiddar alls 31 gerð
myndavéla, en þær ódýrustu kosta
415.00 kr. og þær dýrustu um 25
þús. kr. Þeirri vél fylgja 6 linsur
sem hægt er að skipta um eftir
þörfum.
Oft er spurt um, hvernig standi
Hvað
RAPID ER NÝ AÐFERÐ
SEM GERIR ÖLLUM KLEIFT
AÐ TAKA GÓÐAR MYNDIR
Auðvifað
Agfa Rapid
á hinum mikla verðmun á mynda-
vélum. Veldur þetta ýmsum, sem
kaupa sér vél í fyrsta sinn miklum
áhyggjum. Munurinn stafar af því,
að dýrari vélar eru miklu vandaðri
að öllum frágangi, þar sem reikn-
að er með að þær séu mikið not-
aðar, og á þeim eru alls kyns til-
færingar, sem gera mögulegt að
taka myndir við erfiðustu skilyrði,
t. d. í lítilli birtu og af hlutum á
hraðri hreyfingu.
Mestur hluti verðsins í dýrum
vélum liggur í linsunum, en slípun
þeirra og öll gerð er kostnaðar-
söm. Þá eru þær þannig úr garði
gerðar, að hægt er að skipta um
linsu í sömu vél, allt eftir því við
hvaða staðhætti myndir eru tekn-
ar.
Við skulum haída okkur við ó-
dýrari vélarnar, því þetta spjall
er ekki ætlað þeim, sem lengra
eru á veg komnir í kúnstunum.
Þótt hér hafi ekki verið getið
nema örfárra tegunda myndavéla,
er ótrúlegur fjöldi þeirra til á
markaðnum. Eitt er það, sem þarf
að ákveða þegar myndavél er
keypt, og það er hvaða stærð af
filmum er notuð í henni. Um
nökkrar stærðir er að ræða. Al-
gengastar eru 35 millimetra film-
ur, eða 2,4x3.6 cm., 6x6 cm og 6x9
cm. Af 35 mm. filmum er hægt að
kaupa filmúr með bæði 20 mynd-
um og 36 myndum. Af stærðinni
6x6 eru 12 myndir á hverri filmi
og af stærðinni 6x9 eru átta mynd-
ir á filmúnni. Augljóst er, að
beztu kaupin eru í 35 mm. filmu,
þar sem hægt er að taka á hana
flestar myndir, en hún er lítið eitt
dýrari en hinar filmurnar. Yfir-
leitt eru 35 mm. myndavélar þann-
ig, að mögulegt er að taka á þær
góðar myndir í minni birtu en á
vélar sem taka stærri filmu.
★ LJÓSMÆLIR OG LJÓSOP
Eigi maður myndavél, sem ekki
stillir sig sjálf, en er samt sem
áður með alls kyns stillingum,
þarf helzt að eiga ljósmæli til að
stilla vélina eftir. Þeir kosta frá
300.00 kr. Helztu stillingar eru á
ljósopinu og á hvaða hraða maður
ætlar að taka myndlna. Ljósops-
stillingin er þannig, að það er
stækkað eða minnkað eftir birtu-
magni, og þar kemur Ijósmælirinn
inn í. Eins og nafnið bendir til, er
ljósmagnið mælt með honum og
síðan vélin stillt eftir honum, í sam
ræmi við þann hraða sem tekið er
á. Því meiri, sem birtan er, því
minna verður ljósopið að vera. Það
er stillt eftir tölum, sem eru greini
lega þrykktar á myndavélina. Á
flestum vélum er f við ijósopstöl-
urnar. Opið stækkar eftir því, sem
fært er á lægri tölu. T. d. þegar
stillt er á ljósopstöluna 8 er opið
helmingi stærra en á 11, og því
lægri sem lægsta talan er, því
ljósnæmari er linsan.
Önnur aðalstilling er hraðinn.
Á flestum vélum er hægt að velja
um hraða frá 1 sek. til %0o hluta
úr sek. Þýðir þetta, að ljósopið er
opið þennan tíma, þegar þrýst er
á takkann, sem smellir af.
Ekki er mögulegt að halda á
myndavéiinni, ef tekið er á einni
sekúndu, því þá verður myndin
áreiðanlega hreyfð. Verður að nota
þrífót undir vélina, ef tekið er á
svo löngum tíma. Yfirleitt er ekki
ráðlegt að taka mynd þannig, að
maður haldi á vélinni nema hrað-
inn sé stillur á %0 hluta úr sek-
undu eða hraðar. Ráðlegast er
samt að stilla hraðann í minnst
y100 kluta úr sek. Þá er lítil hætta
á, að myndin verði hreyfð. Á
sumrin er engin hætta á öðru en
að næg birta sé til að taka á þess-
um hraða.
Ein stillingin er enn, sem ekki
má gleymast, og það er að athuga,
að fjarlægðin sé rétt. Til eru
tvenns konar fjarlægðamælar, sem
eru iimbyggðar í vélarnar, þó ekki
þær ódýrustu. Önnur gerðin er
þannig að liorfi maður gegnum
leitarglugga myndavélarinnar, er
í honum punktur, oftast gulleitUr,
þar sem myndin er tvöföld ef
fjarlægðin er ekki rétt stillt og
snýr maður þar til gerðum hring
á linsunni, þar til myndin rennur
saman í eitt, þá er f jarlægðin rétt
stillt. Hin gerðin er þannig, að
horft er út í gegnum linsuna með
aðstoð innbyggðg spegils. Þá still
ir maður, þar til myndin er orð
in skýr, og er þá vélin tilbúin ti)
töku, það er að segja, ef ekki hef
ur gleymst að stilla liraðann og
ljósopið.
4 3 28. júlí 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ