Alþýðublaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 28.07.1965, Blaðsíða 9
erfitt fyrst í stað kemur áreiðan- lega upp í vana að muna þær. Og munið að fara alltaf yfir þær allar áður en myndin er tekin, á eftir er það orðið of seint. Ef þið eruð ekki alveg viss um hvernig á að stilla myndavélina skuluð þið bara spyrja einhvern ferðafélaga ykkar sem alltaf er með dýru, fínu myndavélina sína á lofti, og hann segir ykkur áreiðanlega til með umburðarlyndum þóttasvip, en honum er ekki eins leitt og hann lætur, því honum þykir talsvert varið í að vera spurður ráða sem þaulvanur ljósmyndari og ferða- langur. HVERNIG FILMUR Og þá er að ákveða á hvers kon- ar filmu á að taka, og þá fyrst og fremst hvort nota á svart hvíta filmu eða litfilmu Um margar gerð ir er að ræða af hvorri tegund. Verðmunur er nokkur eftir teg- undum en ekki ýkjamikill. Hér verður gefið upp verð á nokkrum Kodak filmum og þótt verðið á öðrum tegundum skakki einhverju munar það aldrei miklu. Svart- hvít filma 35 mm. með 36 mynd- um kostar 36.60 kr. framköllun 24.00 kr. og síðan hver mynd sem gerð er í stærðinni 9x13 cm kr. 5.25. Kodak framleiðir aðallega þrjár gerðir af litmyndum. Koda- chrome sem á eru 20 myndir kostar 248.00 kr. með framköllun og með 36 myndum kostar hún 376.00 kr. Ektachrome með 20 myndum kostar 151.00 kr. en fram köliunina.verður að kaupa sér og kostar 117.00 kr. Báðar þessar teg- undir eru svokallaðar litskugga- myndir, sem þýðir að myndirnar eru ekki gerðar á pappír eins og venjulega heldur koma þær fram pósitífar á filmunni og eru sýndar með sérstakri sýningarvél, sem kastar myndinni á vegg svipað og kvikmyndum. Ódýrustu sýningar- vélarnar kosta 1051.00 kr. Þá er einnig hægt að fá negatífar filmur. Eftir þeim eru gerðar litmyndir á pappír 20 mynda filma af þessari gerð kostar 114.00 kr. og framköll- unin 84.00 kr. Síðan kostar hver mynd í stærðinni 9x12 cm. 29.00 kr. Með hverri filmu, af hvaða teg und sem er fylgja nákvæmar upp- lýsingar um hana og hvernig á að nota filniuna. T. d. hve ljósnæm filman er. Þar með er tafla sem sýnir hvernig á að stilla ljósopið við hin ýmsu birtuskilyrði og ættu þeir sem ekki eiga ljósmæli að halda þessari töfiu til haga, því á henni má sjá hvernig stilla á ljós- opið í samræmi við hraðann, og ef ekki gleymist að fara- eftir töfl- unni, sem er aúðskilin, er varla hætta á öðru en að filman verði rétt lýst. Enginn byrjandi þarf að gefast upp og hætta þótt hann fái ekki góðar myndir eftir fyrstu filmun- um sem hann tekur, heldur að skoða þær vel og reyna að gera sér grein fyrir í hverju gallarnir liggja og taka síðan fleiri myndir og sjá hvort ekki rætist úr. ÞAÐ ER DÝRI AÐ TAKA SLÆM AR MYNDIR! KAUPIÐ AÐEINS GÓÐAR MYNDAVÉLAR SEM SKILA GÓÐUM MYNDUM - vMl£5 Sb GE FRAMKÖLLUIVI OG KOPERUSVI FLJÓTAR—BEYUR GEVAFÓTÓ Lækjaríorgi mm. gleiðhornslinsa kr. 3705.00 kr. og svokölluð Zoomlinza, sem er 85—300 mm. það er að segja að hægt er að nota hana bæði sem að- dráttarlinsu og venjulega linsu kostar kr. 22100.00. Ein vinsælasta vélin sem framleidd hefur verið, bæði meðal áhuga- og atvinnuljós- myndara er Rolleiflex. Filmu- stærðin í henni er 6x6 cm. Þetta er mjög vönduð vél og einkar handhæg, og auðlært að fara með hana. Einn aðalkosturinn er að þegar horft er í hana áður en mynd er tekin kemur myndin fram í fullri filmustærð. ★ DÝRARI MYNDAVÉLAR Eins og komið hefur fram er byrjendum í ljósmyndatöku ekki ráðlegt að kaupa dýrar myndavél ar, nógur er til þess tíminn síðar, þegar lengra er á veg komið, en til gamans fylgir hér með verð á ágætri vél, en alls ekki þeirri dýr- ustu. Þetta er reflex myndavél af Canongerð, 35 mm. Reflex þýðir að kíkt er út í gegnum sjálfa lins- una. Verðið á vélinni með einni linsu er kr. 10.465 og þar sem hún er gerð þannig að skipta má um linsur í henni er ekkert vit í öðru én að kaupa fleiri og kostar 38 • ÍÍSTWP- AUÐVELT AÐ NOTA FLASH gggSSS-n rKodak AUÐVELT AÐ HAFA MEÐ SER HANS PETERSEN" SiMi 20313 BMUSTRIETI 4 KODAK INSTAMATIC 100 með innbyggðum flashlampa, KR. 864,- ALÞÝÐUBLAÐfÐ - 28. júlí 1965 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.