Alþýðublaðið - 05.08.1965, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 05.08.1965, Qupperneq 4
í,7*fe Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Bencdikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900 - 14903 — Augliýsingasími: 14906. Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmlðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 cintakið. Utgofandi: Alþýðuflokkurinn. ERUM KAUPENDUR AÐ ÖLLUM TEG- UNDUM FISKS. FRELSISSTRÍÐ LEIÐTOGAR SOVÉTRÍKJANNA og aðrir kommúnistar hafa talað mikið um frið á síðari ár- um. Þeir hafa látið á sér skilja, að þeir trúi ekki leng- ur hinni gömlu kenningu Lenins, að heimsófriður sé SEUUM ÍS OG BEITU Sendum þjóðhátíðargestum og lesendum Alþýðublaðsins beztu kveðjur úr Eyjum. óhjákvæmilegur og kommúnisminn muni ná völdum á þann hátt einan. Ein undantekning er þó jafnan gerð í friðartali kommúnista. Þeir telja svokölluð „frelsisstríð“ vera góð stríð og draga ekki dul á, að þeir vilji skipta sér af þeim. Eiga þeir við baráttu nýlenduþjóða fyrir frelsi sínu. Ekki er þó sama, hver þjóðin er. Þeir kölluðu það ekki „frelsisstríð“, þegar Austur-Þjóðverjar risu upp gegn kúgurum sínum — eða þegar ungverska þjóðin gerði tilraun til að varpa af sér okinu. Þeir kölluðu það heldur ekki „frelsisstríð“, þegar íbúar Tíbet gerðu uppgreisn gegn kínverskum kommúnistum. Nei, „frelsisstríð“ eru aðeins þær uppreisnir, sem beint er gegn ríkisstjórnum, sem ekki eru á valdi kommúnista. Til dæmis Vietcong í Suður Vietnam. Það stríð styðja kommúnistar, ekki aðeins með vopn um og matvælum, heldur með því að senda heilar her cleildir sérþjálfaðra manna frá Norður Vietnam. Þess vegna er um að ræða innrás kommúnista í Suður Vietnam og rniklu meira en borgarastyrjöld. , Af öllu þessu er ljóst, að útþensla kommúnism- ans nú á dögum á að gerast á þennan hátt, með því að magna byltingar, kalla þær „frelsisstríð11 og senda síðan vopn og hermenn, unz kommúnistar ná yfirtök Linum. r Ef þetta tekst í Suður Vietnam, verður Thailand fiæst. Svo koma Malaysía og Burma, þá Indland og kíðan hvert landið á fætur öðru. Hér er um að ræða ^kríðandi heimsbyltingu, sem á ekki frekar skylt við yilja fólksins í þessum löndum en kommúnistastjóm 3óllands eða Tékkóslóvakíu. Enn hefur engin þjóð cosið sér kommúnisma af fúsum vilja. Þess vegna Deita kommúnistar enn stríði, þótt þeir kalli það nýju nafni til að réttlæta friðartal sitt og forða sér frá kjarn orkuvopnum. Sannleikurinn um frelsið er sá, að lýðræðisríkin hafa á síðustu 20 árum veitt tugum þjóða frelsi á sama 1 tíma og Sovétríkin innlimuðu hverja þjóðina á fæt- ur annarri nauðuga undir stjórnkerfi kommúnis- mans. Lýðræðissinnar geta því kinnroðalaust spyrnt við fæti, þegar kommúnisminn reynir að vinna ný lönd undir yfirskini „frelsisstríða“. Ef yfirgangur kommúnista í Vietnam og víðar verður ekki stöðvað- ur, má búast við, áð börn eða barnabörn okkar allía búi við kommúnistískt éinræði. Baráttan gegn komm únismanum er hið sanna frelsisstríð. ÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA Símar: nr, 1101 á skrifstofunni — nr. 1102 í frystihúsinu — nr. 1103 í fiskverkun. m m m rr iik B-ZM „LANDI“ SKRIFAH mér frá Kaupmannahöfn. „Danir virðast ekki ætla að gera það endasleppt við okkur íslendinga. Þeir hafa samþykkt að gefa okkur handrit- in og hafi þeir þökk fyrir. Nú eru þeir önnum kafnir við að velja lianda okkur forseta Þegar núver- andi kjörtímabili Iýkur. Land og folk hefur þegar tilnefnt Halldór Laxness, en hann hefur þegar mót- mælt. Nú liefur myndablaðið Se og Hör, sem er nokkurs konar hirðblað konungsfjölskyldunnar, tilnefnt Gunnar Thoroddsen, en hann hefur enn ekki svo að mér sé kunnugt, hreyft mótmælum. ÞETTA VEKUR dálítið gaman með okkur Löndunum hérna og því ekki nema líklegt að við förum að leita í huga okkar meðan við erum að bíða eftir því, að þið þarna hafið einhverja tillögu fram að færa”. SÓLVEIG EYJÓLFSDÓTTIR SKRIFAR: Nýlega kom ég í fyrsta sinni í Tónabíó og sá þar „Bleika Pardusinn”, sem var mjög skemmtileg mynd. Eins og að vanda lætur í öllum kvikmynda- húsum, var hlé í miðri mynd, sem sennilega er gert til þess að fólk geti rétt úr sér og fengið sér öl- drykk eða annað munngæti, og er ekki nema gott um það að segja. En í þessu hléi var flutt tónlist, sem var svo hávaðasöm að naum- ast var á hlustandi. ÖDRU SINNI VAR ÉG í Tóna- bíó, hinn 19. júlí og sá þar hina stórbrotnu mynd „Flóttinn mikli”, og í hléinu þétta kvöld tók ekki betra við með tónlistina. Aðeins Bítlatónlist. svo fáranleg sem hún nú er, í allflestum tilfellum. Og ekki nóg með það, heldur munu aliir hátalarar hússins hafa verið keyrðir áfram allt hvað þeir þoldu. Enda var hávaðinn slíkur að líkja mætti við öskrandi óð albrjálaðs lýðs, og éfast ég um að allar hlióð himnur hafi verlð jafngóðar eftir ■Jic Danir tilnefna forsetaefní. Heimsóknir í kvikmyndahús. ic Ágætar kvikmyndir, en óþolandi hávaói. if Ber ekki nafn meS rentu. þá þolraun, sem á þær var lögð j þetta kvöld. "TEL ;ÉG ÞAÐ MJÖG vafasama ráðstöfun af forráðamönnum húss- ins að bjóða friðsömu fólki uppá slíkt eyrnakonfekt. Þegar ég heyrði Tónabíós fyrst getið, kom í huga minn að þar myndi ánægju- legt að koma. Þeir sem réðu þar húsum, hefðu það áreiðanlega í hávegum að flytja góða tónlist, bæði fyrin sýningar og eins í hlé- unum. Því varð mér allhverft við að heyra þessar vansköpuðu tón- smíðar sem gestum hússins var boðið á að hlusta bæði þessi um< ræddu kvöld. MUNDI EKKI STJÓRNEND- UM hins nafnfræga kvikmynda- húss þykja sómi að því að húsið bæri nafn með rentu, og flytti tón- list á þann hátt að gestir þess biðu ekki tjón á heilsu sinni. Og varla myndi það saka að leikið væri eitfc og eitt létt sígilt tónverk innan um dægurlögin, svo segja mætti að eitthvað væi'i fyrir alla”. Tilkynning frá Loftskeytaskóla n u m Loftskeytanámskeið hefst í Reykjavík um miðjan september 1965. Umsóknir, ásamt prófskírteini miðskóla- prófs eða annars hliðstæðs prófs og sund- skírteini sendist póst- og símamálastjórn- inni fyrir 29. ágúst næstkomandi. Inntökupróf verða væntanlega háldin dag- ana 7—9. september 1965. Prófað verður í ensku og reikningi, þar á meðal bókstafareikningi. Nánari upplýsingar í síma 1 10 00 í Reykja- yík. Póst- og símamálastjórnin. Alþýðubla&ið vantar barn eða ungling til biaðburðar , í miðbæinn. 5. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ r... Lt.úA!80örH.í•

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.