Alþýðublaðið - 05.08.1965, Side 10

Alþýðublaðið - 05.08.1965, Side 10
SAFÍRAR Á SILFURHRING Framhald af 8. síðu. að komast upp á sumar þeirra. Þótt Vestmannaeyjar væru fuglalausar, Surtslausar og fisk- lausar mundi samt sem áður verða farið þangað — sakir náttúrufeg- urðar þeirra. Enn skín sól á sundin blá — sumarlangt í Eyj- um, kvað Örn Arnarson. ★ FJÖLBREYTT SAGA. Þeir íslendingar, sem kunna að njóta ferðalaga um land sitt, ferð ast bæði í nútið og fortíð. Þeir skoða það, sem fyrir augun ber, og rifja um leið upp sögur og sagnir af þeim stöðum, sem þeir sjá. Fyllist þá allt af annarlegum :persóniim, einstæðum viðburðum :og syipur staðanna verður allur dýpri og meiri. Á þennan hátt má fara um Vest- mannaeyjar, svo að segja skref fyrir skref. Þrælaeiði heitir þar, sem Ing- ólfur kom að þrælunum, er drepið höfðu Hjörleif og flúið í Eyjar út. Það er rétt við höfnina. Ræningjatangi heitir þar, sem Tyrkir gengu á land 1627. Höfðu : þeir skotíð út þremur bátum og ! voru þar ekki færri en 200, að því er sagan segir. Komu þeir (:fyrst að landi, þar sem Kópvík ’heitir, en treystust eigi til upp- göngu og reru suður með eyjunni. : Kaupmaður hafði njósnir um ferð- íir þeirra og hugðist veita við- nám, en menn hans hlupust til kvenna sinna og barna og varð lítið meir um varnir, sem kunn- úgt er. Ýmis fleiri örnefni minna á þessa sorgarsögu, svo sem Hundraðmannáhellir, en þar áttu hundrað manns að hafa falizt. Það getur þó ekki verið rétt, því hvorki sluppu svo margir né mundi sá fjöldi manna komast í hellinn. tlppi á Ræningjatanga er Skírn- arlón eða Mormónalón, en þar létu mormónar skírast um miðja síðustu öld, og fóru sumir vestur til Utah í Klettafjöllum til land- náms. í Herjólfsdal bjó landnáms- maður Eyjanna, og er dalurinn við hann kenndur. Þar var eina góða vatnsból Eyjanna, og seldi Herjólfur grönnum sínum vatn, þegar byggð jókst á Heimaey. — Þótti dóttur hans, Vilborgu, karl vera helzt til harðdrægur í vatns sölunni, og gaf hún ýmsum vatn án þess að hann vissi. Sagan segir, að skriða hafi fallið á bæ Herj- ólfs og hann farizt þar, en hrafn einn, sem Vilborg hafði verið góð, hafi forðað henni frá bænum og bjargað lífi hennar. Þannig mætti lengi halda á- fram, en svo var kveðið að sönnu: Veit ég úti í Vestmannaeyjum verður stundum margt í leyni. ★ KVEÐJA TIL EYJA. Þótt glatt verði á hjalla í tjald- borginni í Herjólfsdal um næstu helgi, er vonandi að ferðamenn, sem þar koma, noti tækifærið til að fara sem víðast um Heimaey og skoða aðrar eyjar, ef þeir eiga þess kost. Hér hefur aðeins fátt eitt verið talið af því, sem er að sjá og læra í Vestmannaeyjum. Þeir, sem hugsa til Eyjaferðar, ættu að leita upplýsinga hjá Flug- félagi íslands eða Eyjaflugi, ef þeir vilja fara loftleiðina og vera t fljótir í ferðum, eða hjá Skipa- útgerð ríkisins, ef þeir vilja sigla á því sómaskipi Herjólfi, anda að sér úthafslofti og ef til vill sjá vel Surt og Syrtlu og aðrar úteyjar á leiðinni. Meginlandsmenn, sem ekki geta skroppið til Eyja að þessu sinni, senda þangað beztu kveðjur með ósk um gleðilega hátíð. LIFRARSAMLAG Vestmannaeyja sendir sínar beztu kveSjur og árnaðaróskir til viðskiptavina sinna i tiSefni Þjóðhátíðar Veslmannaeyja 1965 LIFRÁRSAMLAG Vestmannaeyja ? ,8 10 5. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Stílhrein hús við rólega götu í Eyjum. Bættar samgöngur Framhald af 9. síðu. I heild, að allt sé gert sem hægt er, til að bæta aðstöðu fólksins, sem hér býr, til þess að skapa skilyrði til eðlilegrar fólksfjölg unar. — Hvað telur þú að helzt þurfi til þess? „Það er fyrst og fremst þrennt, sem efst er í huga mínum, sem gera þarf. Það eru bættar sam- göngur, vatnsveita og öflugra menningarlíf.” VATNSÖFLUN. „í Vestmannaeyjum hefur verið um lítið annað vatn að ræða en rigningarvatn, sem safnað er af þökum húsa. Til að það sé sæmi- legt, þarf mikla hirðusemi á þök- um, rennum og brunnum og er það þó engan veginn nægilegt að magni til. Við þetta bætist ó- hemju þörf fiskiðnaðarins. Síðast liðinn vetur var ástandið mjög al- varlegt vegna mikilla þurrka, og var lengi vel ekki unnt að fá nothæft vatn. Nýverið hefur það verið tekið til bragðs að fá vatn flutt með Herjólfi frá Reykjavík. Það hjálpar nokkuð, en nú þarf að bíða hálfan mánuð eftir vatni úr skipinu til heimilisnota, því að langur biðlisti er yfir þá, sem pantað hafa vatn. Það er alveg bráðnauðsynlegt að fá meira vatn vegna heilbrigðis- sjónarmiða og vegna vaxandi þarfa iðnaðarins. Aðallega er talað um þrjár leið- ir, sem til greina kæmu varðandi vatnsöflun. Djúpborun hefur ver- ið reynd en árangur varð ekki. Vinnsia vatns úr sjó er ennþá öf dýr, það er að segja þær aðferðir, sem fullprófaðar eru, en aðrar að- ferðir eru enn á tilraunastigi, sem lofa þó góðu, ég mundi halda inn- an 5—6' ára. í þriðja lagi er svo vatnsleiðsla úr landi, sem ekki er útilokað að gefist vel, en þó er mikill uggur í mönnum út af hætt- unni, sem slíkri vatnsleiðslu er búin af veiðarfærum og sjávar- gangi. Efni og vinna í verkið hef- ur þó verið boðin út, og hafa 50 fyrirtæki vitjað útboðsgagna. Til- boðum á að skila fyrir 1. október. Þetta verk yrði nokkuð dýrt, laus- Framhald á 15. slðu | VÉLA OG SfCIPA- VIDGERÐIR Vélsmiðjan Magni h.f. Strandvegi 75-76 — Vestmannaeyjum — Sími 2238

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.