Alþýðublaðið - 05.08.1965, Page 11

Alþýðublaðið - 05.08.1965, Page 11
•»c WRitsfjdrrOrn Eidtsson Landslibib gegn írum hefur verið valið ÞÖRÓLFUR EKKIMEÐ, FN RlKHARÐ- UR LEIKUR SINN 33. UNDSLEIK ÍSLENDINGAR og ÍRAR leika 5. landsleik sinn í knattspyrnu á Laugardalsvellinum mánudaginn 9. ágúst næstkomandi, leikurinn befst kl. 20. Þetta verður jafn- framt 41. landsleikur íslendinga í knattspymu. íslenzka landsliðið var valið í gær og er þannig skipað: Heimir Guðjónsson, KR, bak- vörður, Árni Njálsson, Val, hægri bakvörður, Jón Stefánsson, Akur- eyri, vinstri bakvörður, Magnús Jónatansson, Akureyri, hægri framvörður Högni Gunnlaugsson, Keflavík, miðframvörður, Ellert Schram, KR, vinstri framvörður, fyrirliði, Gunnar Felixson, KR, hægri útherji, Ríkharður Jónsson, Akranesi, hægri innherji, Baldvin Baldvinsson, KR, miðherji, Eyleif- ur Hafsteinsson, Akranesi, vinstri lnnherji, og Karl Hermannsson, Keflavík vinstri útherji. Varamenn íslenzka liðsing eru Helgi Daníelsson, Akranesi, Sigur- vin Ólafsson, Keflavík, Jón Leós- son, Akranesi, Skúli Ágústsson, Akureyri og Ingvar Elísson, Val. Nokkrar breytingar hafa nú ver- ið gerðar á liðinu frá síðasta leik við Dani, Sigurþór Jakobsson, KR, lék þá vinstri útherja, en Karl Hermannsson kemur i hans stað, Þórólfur Beck lék hægri innherja, en þar sem um algeran áhuga- mannalandsleik t verður nú að ræða getur hann ekki leikið með. Ríkharður Jónsson leikur h. inn- herja. Jón Stefánsson, sem lék miðframvörð á móti Dönum er nú fluttur i vinstri bakvarðastöðu, en Högni Gunnlaugsson, kemur í stað í rhiðframvarðastöðu. Allir leikmennirnir hafa leikið í landsliði áður, en langflesta hef- ur Ríkharður Jónsson leikið eða 32., hann leikur því sinn 33. lands- leik á mánudaginn, sem er ein- CONWAY, v. innherji. stakt afrek, þar sem tækifæri okk- ar knattspyrnumanna eru mun færri en í nágrannalöndum okkar. Fæsta leiki að baki hefur Magnús Jónatansson, Akureyri, sem lék sinn fyrsta leik á móti Dönum í síðasta mánuði. Ekki er gott að segja hvernig íslenzka liðinu vegni í þessum landsleik. írar hafa verið og eru í mikilli framför í knattspyrnu Þeir léku við Englendinga fyrir nokkru og töpuðu aðeins 2—3. Langflestir leikmenn írska landsliðsins eru í félaginu Bohe- minans eða sjö talsins, en það er 775 ára gamalt félag, sem leikið hefur í 1. deildinni írsku frá því hún var stofnuð 1921. Boheminans er eina áhúgamannaliðið í deild- inni og var í þriðja sæti á síðasta keppnistímabili. Fjórir leikmenn eru úr félaginu Home Fram og einn úr Drumcondre. í liðinu eru tveir ungir leik- menn, sem léku með írska ung- lingalandsliðinu í Evrópukeppni nýlega, en írarnir komust í 8 liða úrslit. Menntamálaráðuneytið og íþrótta ráð Reykjavíkur bjóða írska lands liðinu í matarveizlur og einnig verður farið með þá á Þingvöll. Sala aðgöngumiða hefst kl. 13 í dag og verðið er það sama og á leikinn við Dani, 25 kr. fyrir börn, 100 kr. stæði og 150 kr. í stúku. Dómari verður danskur, Einer Poulsen, en línuverðir Guðmund- ur Guðmundsson og Magnús V. Pétursson. SWEETMAN, miðherji. ÞÓR VANN B-LIÐ KEFLAVÍKINGA ÞÓR frá Vestmannaeyjum sigraði b-lið Keflvíkinga í Bikarkeppni KSÍ á laugardaginn með 3 mörk- um gegn 2. Fór leikurinn fram á malarvellinum í Eyjum í sól og steikjandi hita. Þór skoraði fyrsta markið en Keflvíkingar jafna og komast skömmu síðar yfir 2—1 og var staðan þannig í hálfleik. Um miðjan síðari hálfleik jafnar Þór rétt fyrir leikslok. Leikur-inn var lélegur af beggja hálfu en Þór þó betri og hefði allt eins getað unnið með stærri mun. Liðið hefur sýnt betri leiki í sumar en þennan m. a. unnið II. deildarlið Víkings og Hauka. B liðið frá Keflavík er þar með úr leik en keppnin er sem kunnugt er útsláttarkeppni. Færeyskt knatt- spyrnulið hér í boði ÍBK HINGAÐ til lands er kominn knattspyrnuflokkur B-36 frá Tórs- havn í Færeyjum í boði ÍBK. Lið- ið leikur fyrsta leik sinn í kvöld á Njarðvíkurvellinum við ÍBK kl. 20.30. Á laugardag kl. 16 leika Færeyingarnir við B-lið ÍBK á sama velli í næstu viku fer flokkurinn til ísafjarðar í boði ÍBÍ og leikur þar tvo leiki. í færeyska flokknum eru 16 leikmenn og 3 fararstjórar. — Heim fara Færeyingarnir með Kronprins Olav 16. ágúst. Geir Hallgríms- son og Guðlaug* ur Gíslason sæmdir gull- merki ÍSÍ HINN 22. júlí sl. var Guðlaugur i Gíslason, bæjarstjóri í Vestmanna eyjum sæmdur gullmerki ÍSÍ, sem framkvæmdastjórnin hafði samþykkt að veita honum fyrir mikinn og góffan stuðning við íþróttasamtökin í Vestmannaeyj- um. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, afhenti Guðlaugi gullmerkið í hófi, sem íþróttabandalag Vest- mannaeyja hélt í tilefni af heið- ursviðurkenningunni, í Hótel H.B., Vestmannaeyjum. Þá var Geir Hallgrímsson, borg- arstjóri í Reykjavík sæmdur gull- merki ÍSÍ, sem framkvæmdastjórn ÍSÍ hafði samþ. að veita honum fyrir mikinn og góðan stuðning við íþróttasamtökin í Reykjavík. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, afhenti Geir Hallgrímssyni gullr merkið í skrifstofu borgarstjóra hinn 23. júlí og var framkvæmda- stjórn ÍSÍ viðstödd. Svesnamót ÍR á BVSelaveli! í kvö?d Frjálsíþróttadeild ÍR efnir til innanfélagskeppni fyrir sveina þ. e. pilta, fædda 1949 og síðar, á Melavellinum kl. 7.30 í kvöld. Keppt verður í 100 m. hlaupi, 80 m. grindahlaupi, hástökki og kringlukasti. Skorað er á alla pilta í sveinaflokki, sem keppt hafa fyrir ÍR í sumar og aðra, sem ekki hafa æft með félaginu, en hefðu hug á að gera það, að mæta á Melavellinum kl. 7.30 í kvöld. — Hinn nýi þjálfari ÍR, Jóhannes Sæmundsson, verður staddur á vellinum og nýir geta látið skrá sig. Svíþjóð 55 stig- Norðmenn 51 í GÆR hófst á Bislet landskeppni Svía og Norðmanna, í ágætu veðri. Eftir fyrri dag hafa Svíar 55 stig, en Norðmenn 51. Norðmenn höfðu forystu til að byrja með, en Svíar sóttu stöðugt á og náðu forystu í lokin. Áhorfendur voru 19 þús- und og þ. á m. Ólafur Noregskon- ungur. Eitt met var sett í keppninni, Stein Sletten, sem varð annar í hástökki með 2.10 m. (sömu hæð og sigurvegarinn Nilsson, S, stökk) bætti eigið met um 1. sm. Þriðji varð Stig Petterson, S, 2.04 m. Skarstein, N, sigraði í 100 m. hlaupi á 10.6 sek. Johannsson, S, 10.8, Bunæs, N, 10.8. Persson, S, varð fyrstur í 10 km. hlaupi á 29.36.2 mín., G. Lars son, S, 29.46.0 og Fuglem, N, 30.24.4 mín. í 400 m. hlaupi sigraði Fern- ström, S, 47.9, Bunæs, N, 48.1, Si- monsen, N, 48.3 Lærkert S 48.5 Lars Hök, S, stökk 7.50 m. I langstökki, Ekeberg, N, 7.26 m., Bergh, N, 7.18 m„ Pedersen, N, kastaði spjóti 75,32 m„ Hedmark, S, 74.20 m„ Thorslund, N, 68.54 m. Gulbrandsen, N, sigraði í 400 m. grind á 51.9 sek„ Vistan, S, 52.5, Framh. á 14 síðu. MVMMMMMWIUMHWmm Ungverjar leika við Keflavík 28. ágúst SAMKVÆMT óstaðfestum fréttum mun fyrri leikur Keflvíkinga og Ferencvaros frá Ungverjalandi fara fram j hér 28. ágúst nk. en síðari ! leikurinn í Búdapest 8 september. wwwwwwwwwwwwiM ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. ágúst 1965 f,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.