Alþýðublaðið - 13.08.1965, Side 11

Alþýðublaðið - 13.08.1965, Side 11
Akranes - Valur 5:2 LEIKURINN í I. deildinni í gær kvöldi milli Akurnesinga og Vals fór svo, að þeir fyrrnefndu sigr- uðu stórt, skoruðu 5 mörk gegn aðeins 2. Eftir öllum gangi fyrri hálfleiksins, er Valur lék gegn nokkurri golu, mátti ætla, að enn betur tækist til í síðari hálfleikn- um. En bsð var nú eitthvað ann- að. Þá fyrst komust Akurnesing- ar í gang fyrir alvöru. Sókn Vals er mikil í fyrri hálf- leiknum, eins og sjá má af því að þá fengu Valsmenn 10 hornspyrn- ur á mótherjana gegn aðeins 2. — En þrátt fyrir margvísleg tækifæri þar á meðal vítaspyrnu, fóru þau öll í súginn. Ríkharður skoraði fyrsta mark Akurnesinga er 20. mín. voru liðnar, og aðeins 5 mín. síðar bjargaði Þorsteinn bakvörður Vals í horn hörkuskalla frá Ei- leifi og enn 10 mín. síðar skoruðu Akurnesingar aftur, eftir regin mistök í Vals-vörninni. Stóðu þannig leikar þar til á 37. mín. að Hermann Gunnarsson, miðherji Vals skoraði ljómandi skalla úr hornspyrnu. Rétt fyrir leikslok bjarga Akurnesingar á línu. í síðari hálfleiknum skoruðu Akurnesingar þrívegis, fyrst Skúli úr aukaspvrnu, boltinn fór undir markvörðinn, Sigurð Dagsson, sem nú átti sinn lélegasta leik til þessa, hægri útherji, Matthías, óð næst beint af auga með knöttinn, og sendi hann úr opnu færi og óáreittur í markið og inn. Eoks skorar svo Björn Lárusson, vinstri útherji ekki ósvipað mark 15 mín. síðar. Þessari markasúpu fékk Valur aðeins svarað með einu marki, sem Ingvar skoraði úr góðri fyrirsend- ingu Gunnsteins. Þrátt fyrir öll þessi mörk var leikurinn heldur tilþrifalaus, mikið um ónákvæmar sendingar og fum. Akurnesingar léku þá betur og áttu nákvæmari sendingar, en bezti maðurinn í liði þeirra var Jón Leósson, hinn mikli dugnaðarþjarkur. í liði Vals átti Hermann Gunnarsson beztan leikinn. Knattleikni hans bar af. í liði Vals eru nú fjórir leikmenn úr 2. flokki. Tveir þeirra hafa lítt eða ekki komið við sögu meistara- flokks áður, þeir Sigurður Jóns- son, liægri útvörður og Gunnsteinn Skúlason, hægri innherji og dugðu þeir báðir mjög vel, sem vænta má mikils af er stundir líða. Magnús Pétursson dæmdl leik inn vel. — EB. Valur (b) og Breiðablik keppa í bikarkeppni KSÍ í kvöld kl. 20.00 á Melavelli. DAN SHERRY, Kanada setti heimsmet í 110 yds flugsundi í gær — 58,1 sek. 9/10 úr sek. betra en gamla metið, sem Berry. Ástra líu átti. HERRMANN, Au.-Þýzkalandi setti landsmet í 5 km. í fyrradag, hljóp á 13,30,0 mín., sem er 12,4 sek. betra en gamla metið. Þetta er fjórði bezti tími, sem náðst hefur í greininni. — Nordwig, Au. Þýzkal. stökk 5,05 m. á stöng, sem er bezti árangur í Evrópu í sum ar. ÍBV SIGRAÐIÍA 4:1 AN LÁNDSLIÐSMANNANN Keppendur íslands á Norðurlandameistaramótinu komu til Helsing- fors í gær. Á myndinni sést Valbjörn Þorláksson kasta spjóti, en hann er talinn mjög sigurvænlegur í tugþraut á mótinu. VESTMANNAEYJAR og Akra- nes háðu um liðna helgi bæjar- keppni í knattspyrnu á grasveU- inum í Eyjum. Margt fólk horfði á leikinn enda völlurinn staðsett- ur skammt frá Herjólfsdal þar sem Þjóðhátíðin fræga fór fram um sama leyti. Ekki sendu Akur- nesingar sitt sterkasta lið til leiksins, landsliðsmennirnir sátu heima. Kannski hafa Akurnesing- ar ekki reiknað með neinni telj- andi mótspyrnu hjá II. deildar- liðinu en raunin varð nú önnur. Akurnesingar urðu að bíta í það súra epli að tapa fyrir Eyjamönn- um og það með miklum mun eða 1—4. Eyjamenn voru vel að sigr- inum komnir, þeir höfðu alla yfir- burði í leiknum og voru um tíma einráðir á vellinum. Leikurinn var all fjörugur og á köflum á- gætlega leikinn og þá sérstaklega af hálfu Eyjamanna. Það er ekki laust við að Vestmannaeyingar séu ánægðir með lið sitt og eru miklar vonir bundnar við það þegar það mætir Þrótti á Laugan- dalsvellinum á laugardaginn. Vest mannaeyingar telja vera kominn tíma til aö lið þeirra fari að sýna sig í 1. deild og þeir munu fjöl- menna ,,suður” til að hvetja strákana sína til dáða. KAREN Muir, 12 ára gömul skóla- stúlka frá Suffur-Afríku setti ný- lega heimsmet í 110 yds baksundi, synti á 1.08.7 mín. Hún vann af- rekiff á brezka meistaramótinu í Blacltpool. Gamla metiff, 1.09.5 mín. átti Ludgrove Englandi Unglingakeppni FRÍ á morgun Á MORGUN kl. 4 liefst ungl ingakeppni FRÍ aff Laugum í Suffur-Þingeyjarsýslu og lýkur á sunnudag, en þá hefst keppnin kl. 2. Um 60 stúlkur og piltar 18 ára og yngri frá 15 affilum keppa í fjölmörgum greinum, en áff- ur hefur fariff fram eins- konar undankeppni um allt land. Á móti þessu koma því fram drengir og piltar morgundagsins, ef svo má aff orffi kveffa. Á myndinni er Einar Þorgrímsson, ÍR, sem keppir í sveinaflokki (16 ára drengir og yngri) en liann er í úrslitum í fimm greinum, 100 m. hlaupi, 80 m. grindahlaupi, hástökki, langstökki og stangarstökki. Einar er meff bczta árangur- inn í tveim greinum, grinda hlaupi og hástökki. nmWWMMMHMUMmiMV Urslitaleikir í II. deild og yngri flokkum íslands- mótsins MÓTSNEFND KSÍ hefur nú á- kveðið, að úrslitaleikir í eftir- greindum landsmótum skuli fara fram sem hér segir: 2. deild. úrslitaleikur miIH Þróttar og Vestmannaeyinga fet fram á Laugardalsvellinum 1 Reykjavík, laugárdaginn 14. ágúst n. k. kl. 16. 2. flokkur. Úrslitaleikur milli Vals og FH fer fram á Melavell- inum í Reykjavík miðvikudaginn 25. ágúst n. k. 3. flokkur. Úrslitaleikur milli KR og Fram fer fram á Melavell- inum í Reykjavík sunnudaginn 15. ágúst kl. 8 e. h. 4. flokkur. Úrslitaleikur milli Fram og ÍBK fer fram mánudag- inn 16. ágúst nk. á Melavellinum kl. 8 e. h. 5. fiokkur. Úrslitaleikur milli Vals og Vikings fer fram mánu- daginn 16. ágúst á Melavellinum kl. 7 e. h. 1:58,4 mín. í 800 m. hlaupi Á LAUGARDAG var keppt í 800 m. hlaupi á Melavellinum, hlaup- ið var fyrst og fremst úrtöku- keppni milli Þórarins Arnórsson- ar, ÍR og Þórarins Ragnarssonai- KR um það, hvort þeir ættu að hlaupa 880 yds í landskeppninnl gegn Skotum. Úrslit: Halldór Guðbjörnsson, KR, 1.566 Agnar Leví, KR, 1.58.0 mín. Þórarinn Arnórsson, ÍR, 1.58.4 * Þórarinn Ragnarsson, KR, 2.02.0. Kristl. Guðbj.son, KR. 2.02.6. Tími Þórarins Arnórssonar er sá bezti, sem hann hefur náð Á vegalengdinni. Heimsmet í kringlukasti kv. TAMARA PRESS, Sovét, hcíúr sett heimsmet í kringlukasti kvenna, kastaði 59.70 m., sem er 41 sm. betra en gamla metiff. — Beljajev setti sovézkt met í 3000 m. hindrunarhlaupi í Moskvu, hljóp á 8.29.6 mín. Beztu afrekin í 3000 m. hindrunarhlaupi í heim inum frá upphafi eru nú: Roe- Iants, Belgíu, 8.26,4 mín.. Belja- jev, Sovét, 8.29.6 mín., Krzyszko- wiak, PóIIandi, 8.30.4 Kmlinski, Sovét, 8.31.0, Tran, Sovét, 8.31.2 Alzksejunas, Sovét, 8.31.8, Chro- mik, Póllandi, 8.32.0, Sokoloy, Sovét, 8.32.4, Herriott, Englgndi, 8.32.4 mín. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. ágúst 1965"'

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.