Alþýðublaðið - 09.09.1965, Síða 3

Alþýðublaðið - 09.09.1965, Síða 3
HARDNAR oooooooooooooooc Á kortinu hér að neðan sjást vígrstöðvarnar í Pakist- an. og örvar gefa til kynna, livar Indverjar réðust fyrst inn í landið. NÝJU DELHI, 8. september (NTB-Beuter). — Styrjaldaraðgerð ir Indverja og Pakistana færðust enn í aukana í dag. Indverskar hersveitir fóru yfir landamærin á tveimur nýjum stöðum og pak- istanskir fallbyssubátar grerðu árásir á indverskan hafnarbæ. I London tilkynnti brezka stjórn- in að hún hefði bannað sending- ar vopna og hergagna til Indlands (engin brezk vopn eru seld til Pak- istan) og franska stjórnin skoraði á Indverja og Pakistana að sýna skynsemi áður en deilan kæmist lá alvarlegra stig. U Tliant, aðal- framkvæmdastjóri SÞ, heldur á- fram friðarferð sinni til höfuð- borga deiluaðila, hafði viðkomu í Genf í dag og er væntanlegur til Pakistan á morgun. Páll páfi sagði í dag, að hann mundi gera allt sem í hans valdi stæði til að stöðva styrjöldina, en hann heim- sækir SÞ 4. október og mun hvetja til friðar í heiminum. Hinar nýju vigstöðvar, sem Ind- verjar opnuðu í dag, eru í 800 km. fjarlægð frá hvor annarri. — í suðri fóru Indverjar inn í sunn- anvert Vestur-Pakistan og náðu Framhald á 14. síðu. Hélf milljón flýja fellibyl MIAMI, 8. september (NTB- Reuter). — Hálf milljón manna leitaði hælis í kjöllurum og loft- varnarbyrgjum er fellibylurinn „Betsy“ geisaði á nær 500 km hreiðu svæðí yfir Florida í dag. Níu maiuis hafa sennilega týnt lífi í bátum, er sukku þegar felli hylurinn færðist yfir Ragged Keym sunnan við Miami. Að sögn Havana-útvarpsins er hafinn brottflutningur fólks frá norðurhéruðum Kúbu þar eð mik il hætta var á fárviðri og flóðum. Ljósastaurar og tré brotnuðu eða voru rifin upp í loftviðrinu og kokóshinetur Jjutu eins og fall- byssukúlur um loftið. Miðpunktur óveðursins var að eins 65 km frá Miami. Eignatjón er metið á margar milljónir doll- ara. Kuldar í Hornafirði HÉR í Hornafirði hefur verið mjög kalt að undanförnu og síð- ustu nætur hefur gert frost, svo að kartöflugrös hafa fallið. Kart- öflurækt hefur verið nokkur hér í sveitinni, en uppskeruhorfur eru ekki góðar í sumar. Heyskap er nú að ljúka og er heyfengur heldur í rýrara lagi. — Vorið var þurrt og 'kalt og snretta sein, og ekki getur heitið að um neina seinni sprettu sé að ræða. Slátrun sauðfjár er á leið að hefjast um miðjan mánuðinn, og “r ráðgert að slátra hér 15-17 þúsund fjár, en það er nokkru fleira en venjulegt er. Slátrun nautgripa hefur staðið yfir, en er 'kki lokið. Frá- Höfn hafa humarbátar ver- *ð geröir út í sumar og hafa þeir aflað vel Snurvoðarbátar hafa haft eitthvað minni afla, og á síld eru héðan fimm bátar. Mikill smokkfiskur Isafirði, BS, — ÓTJ. .ríIKlÐ er nú um smokkfisk á .nnfjöröum ísafjarðardjúps, og fá bátarnir upp í tonn í róðri. Myndir Kjarvals á tæp 800 þúsund Reykjavík. — OÓ. ÞRÖNG var á þingi i súlnasal Hótel Sögu í gær, þar sem boðnar voru upp 74 myndir eftir Kjarval, Var boðið í allar myndirnar og samanlagt söluverð var kr. 796.- 500,00. Allar myndirnar voru áð- ur í eigu listamannsins. Málverkauppboðið átti að hefj- Heldur er hann smár, en selst á ] ast kl. 5 síðdegis, en nokkur drátt fimm krónur pr. kíló. Hann er hrað ! ur varð á því, og byrjaði það ekki frystur og seldur í beitu. Að öðru fyrr en hálftíma seinna. Þegar um leyti er stopult til róðra og frem þrjúleytið var fólk farið að tínast ur erfið tíð. j í salinn og kl. 4 voru öll borð upp- tekin, en ekkert lát varð á að- streyminu og þegar uppboðið hófst var salurinn troðfullur af fólki, og þeir, sem höfðu þá forsjá, að koma í tíma og tryggja sér sæti uppskáru illa laun síns erfiðis, því virðulegir góðborgarar tróðust um eins og börn á bítlahljómleik- um og þóttust þeir sem fyrr voru komnir, bara góðir, ef þeim var ekki rutt úr sætum sínum, — en margir tóku þann kostinn, að yfir- gefa borð sín og standa, því hvorki sást eða heyrðist til uppboðshald- Landslag spilað á píanó seldist á 37000 krónur og var keypt af Listasafni ríkisins. arans fyrir yfirtroðslulýð þessum. En hvað um það, uppboðið var haldið og fór hið bezta fram af hálfu uppboðshaldarans, Sigurðar Benediktssonar. í upphafi ávarpaði Kjarval gestina: Kæru vinir. Verið ljúfir og góð- ir við uppboðshaldarann og svo bið ég fyrir seljendum og kaup- endum. Fyrst í stað var boðið heldur dræmt en, eftir því sem leið á uppboðið hækkuðu myndirnar í verði og var sú dýrasta, Vindur og sólfar, slegin á 47 þús kr. Sú ódýrasta fór á 2 þús. kr. í miðju uppboði skeði það, að Kjarval sté á pall og vakti athygli væntan- legs kaupanda á mynd, sem þegar var búið að bjóða í um 20 þús. kr. að hann hefði nýverið unnið myndina og hann verði að passa að strjúka lienni ekki við jakk- ann sinn. Samstundis buðu marg- ir í myndina í einu og linnti ekki Framhald á 14. síðu ELDUR í VEL Rvík, - ÓTJ. ELDUR kom upp í henzínknúinnl rafsuðuvél sem var til viðgerðar í Vélsmiðjunni Héðni, um kl. 5.30 i gærdag. Varð af mikill eldur, sem þó var fljótlega slökktur er slökkvi Iiðsmenn komu á vettvang. Skemmdir munu hafa orðið litlar. ALÞÝÐUBLAÐiÐ - 9. sept. 1965 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.