Alþýðublaðið - 09.09.1965, Page 9
en hann er aðskotadýr, sem ekki
er vitað hvernig er til kominn.
Stórt bjarg stendur fremst á
kambinum og landmegin eru í
því djúpir bollar myndaðir þegar
brimsúgurinn stendur fyrir múl
ann. Ásgeir sýnir okkur hvernig
Ásgeir Erlendsson Látrabóndi og
refaskytta meS Brynjólfstak.
brimið holar steininn. Það er ekki
vatnið sjálft sem vinnur verkið,
eins og margur gæti ætlað. Heldur
myndast örfínn sandur í holunum
og þegar brimið sogar í bollun
um sverfur sandurinn úr steinin
um. Þessi sandur er svo örfínn,
að því er líkast að maður sé með
hveiti milli fingranna, þegar mað
handfjatlar.
Látrabæirnir eru þrír talsins.
Á þeim stærsta býr hreppsstjóri
Rauðasandshrepps, Þórður Jóns
son ^átrum, landkunnur afreksmað
ur síðan brezki togarinn Doon
strandaði undir Látrabjargi í af
takaveðri og Þórður stjórnaði
björguninni við einhverjar erfið
ustu aðstæður í heimi. Allir kann
ast við kvikmyndina, Björgunaraf
rekið við Látrabjarg, sem Óskar
Gíslason tók og sýnd hefur verið
víða um heim og allstaðar vakið
óskipta athygli.
Ásgeir býr á minnsta bænum
og á svartan hund. Það er vitur
hundur segir hann og uppástend
ur að óhætt sé að senda hann
með nesti til sín á slségjur en
hms vegar hefur aldrei verið hægt
að ná af honum frambærilegri
mynd. Undirritaður gerði heiðar
lega tilraun, sem mistókst hrapa
lega. Það á líklega fyrir þessum
hundi að liggja að drepast ómynd
aður.
Það sem vekur athygli manns
fyrst í forstofuganginum á Látra
bænum eru fjórar haglabyssur.
Fjórar haglabyssur eru kannski
ekki svo merkilegar út af fyrir
sig, það eru til milljóni* hagla
byssa í heiminum, en ein þessara
fjögurra er um það bil helmingi
lengri en hinar, helmingi hlaup
víðari og líkari fallbyssu að öllum
skapnað.
—- Þér verður starsýnt á byss
una, segir Ásgeir og það er stolt
í röddinni. — Þetta er mikil byssa
Hún er númer fjögur og er ættar
gripur. — (Haglabyssur eru því
stærri sem þær eru með lægra
númer og haglabyssa númer 12
þykir mikið voþn og eigulegt).
—Það þótti mér verst, heldur
Ásgeir áfram. — að þegar loftárás
Hann hefur ekki trú á því fyrir
tæki. Á Vestfjörðum eru uppgangs
pláss síðan landhelgin var færð
út og mestar aflaklær og sjógarp
ar á íslandi eru undantekningar
lítið ættaðir af Vestfjörðum. Þar
má nefna til dæmis Magnús Guð
Leifar af steinbítsgarði. SannköUuð' tröllahleðsla.
Agvfsii Pétursson sveitarstjóri á
Patreksfirði styður við Júdas.
mundsson á Jörundi II., Finnboga
Magnússon á Helgu Guðmundsdótt
ir, Sigurjón á Ingólfi Arnarsyni
og vandfundin mun sú skipshöfn
á báti, sem hefur meira en 10
manna áhöfn að helmingur eða
meira sé ekki af Vestfjörðum.
Á Kambinum fyrir ofan Látra
lendinguna eru auðvitað aflrauna
. steinar fullsterkur, hálfsterkur,
og amlóði og þeir standa allir á
stalli. Svo er þar fjórði steinninn
Ásgeir Erlendsson: „Reykjavík tók
af mér hásetana“.
— Hún er uppundir 20 kíló, seg
ir Ásgeir og finnst lítið til tilburða
minna koma.
— Ekki skýturðu af henni frl
hendis, segi ég. — Þú hlýtur að'
láta hana liggja á.
— Nei, nei, það má ekki. Þá
rotar hún mann. Það verður að
skjóta af henni fríhendis og fyr
ir kemur að hún fellir mann i
poll, eða á annan óæskilegan stað.
— Já þeir eru að hugsa um að
leggja Vestfirðina niður, segir Ási
geir aftur. Heyrðu það verður nú
enginn hægðarleikur. Þau er«
nefnilega há Vestfjarðafjöllin, og
hann brosir í kampinn.
— Blessaður vertu ekki áð
mynda þetta gamla drasl, segir
hann þegar ég ota myndavélinni
að gömlu húsunum við Látrabæ
iha. — Þetta er ekki þess virða
að mynda það. Samt mynda ég
gömlu húsin í trausti þess að Ás
geir refaskytta og bóndi á Látr
um, maðurinn sem gæti sem hæg
ast skotið niður hvaða flugvél
sem vera skal með haglabyssu nún»
er fjögur, fari ekki að erfa það við
mig. Annars er vissast að hætta
sér ekki í skotmál við Láíra
bóndann i náinni framtíð.
Einn steininn enn þurfti Ás-
geir að sýna okkur. Það er bjarg
mikið sem stendur utan og ofan
við túnið á Látrum, eggslétt á
einni hÞðinni, ef frá eru taldar
smáhölur, sem hægt myndi að
ná tá Off gómfestu í Steinninn er
rúm seílingarhæð fvrir stórann
mann og þeear unglingar gátu
klifið lét.fu hliðina. voru þeir vigð
ir til að fara í biargíð.
Sú saga fylgir líka grjótinu Júd
asi, að þegar hálfdrættingar gátu:
hafið hann á hné sér, eða í fang
voru þeir orðnir fullfærir sjó-
menn og fengu heilan hlut.
Látrar í Rauðasandshreppi,
munu vera vest-asti útvörður
heimsálfu þeirrar sem hefur ver
ið kölluð Evrópa. Víkin er breið1
en grunn og hún liggur fyrir opnu
hafi. Þar mun ekki hafa verið
stundað útræði á vetrum, heldur
einungis á vorin og fram eftir
sumri. Nú eru 11 menn heimilig
Frh. á 10. síðu.
in var gerð á Vörð frá Patreks
firði og við gátum ekki hreyft
loftvarnabyssuna, að þá skyldi ég
ekki vera með hana þessa. Ég er
nefnilega sannfærður um að það
er leikur einn að skjóta niður flug
vél með henni á stuttu færi.
Ásgeir sækir skot og sýnir okk
ur. Þetta skot er búið til úr fjór
um venjulegum haglaskotum og
ekkert smásmíði. Hann hleður þau
sjálfur og bræðir vax fyrir end
ann.
— Prófaðu að halda henni í
sikti.
Undirritaður lyfti byssunni
nokkurn veginn í axlarhæð ,en lét
hana síga jafnhraðan aftur.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 9. sept. 1965 9