Alþýðublaðið - 17.09.1965, Side 8
WÆ&ÍMI&
.
- ’s </'£'•* '■< 7 '
s-Æ. - ,<í' “' S®
;>*/ J V' %4m-
. ..": '■ ‘ •
% ' V s v-./ -• ,r4a&§&%£?s&A
í{ . •' >>
■ :y:
■
'■ ' . • -:, . ;■"■'■
• ':”■■•• ' ';" ■ ■■■"••'
í'É'ÉM’v' III
»»_______ ‘ M _ ._............ ' ........
■ .' •'•:•■
'/< 'V' 'X'
,v".';
'
.. .
..... •*: ». ..'.
Sandgerðis.
höfn. Stöffugt
hefur verið unn
iff aff endurbót
ura á henni síff
astliffii þrjú
ár.i'
nu
upp úr 1940 og er hann
orðinn 300 metra langur.'
jnnsiglingin inn til Sandgerðis
hefur löngum verið örðug stærri
bátum. Hafa þeir gjarnan orðið
að j sæta sjávarföllum til að kom-
asfc út og inn um Hamarssund, en
svó heitir innsiglingin. Síðan 1962,
eða sl. 3 ár hefur stöðugt verið
unnið að hafnarbótum. Garður-
inn lengdur um 42 metra og
Gijettir hefur unnið að dýpkun á
sundinu 4-6 mánuði á ári hverju.
Það er seinunnið verk og erfitt,
enda stórgrýtt í botni. Til þessa
hafa framkvæmdirnar kostað um
20 milljónir króna.
Sú sögn er til um Hamarssund
að þar eigi aldrei að farast skip,
en sá fyrirvari fylgir, að fara verði
rétt í sundið. Þjóðsagan segir, að
kerling ein, sem bjó á Bæjar-
skerjum hafi átt börn tvö, pilt og
stúlku. Þeim barst á í sundinu
og fórust bæði. Kerlingu varð
svo um þetta slys, að hún mælti
svo um, að aldrei skyldi farast
þar skip, væri rétt farið. Boðar
tveir, sem jéru norðan og sunnan
við sundið; heita eftir börnum
kerlingar, £ Þorvaldur og Bóla.
Raunin hefur líka orðið sú, að bát
hefur aldrei svo vitað sé hlekkst
á í sundinu sjálfu, en komið hef-
ur fyrir að borið hefur út úr því og
getur þá verið tvísýnt um afdrifin.
Verzlunarstaður myndaðist
fyrst í Sandgerði um leið og út-
gerð hófst þaðan, eða á árunum
MIÐNES H.F.
SANDGERÐI
Símar 7403 skrifstofa, 7450 forstj., 7418 frystihúsið.
ÚTGERÐ - VERZLUN
LEIGJUM VÉLBÁTUM VIÐLEGUPLÁSS
((íbúð, beitinga- og aðgerðarpláss).
Hraðfrystihús •- Beitufryst(ng -- Fiskimjölsverksmiðja - Fiskverkun -- Síldarsöltun
Umboð fyrir:
Olíufélagið Skeljung h.f.
Sjóvátryggingarfélag Islands h.f.
1907-1908 og þar hefur verið verzl-
að stöðugt síðan. Búsettu fólki fer
fyrst að fjölga fyrir alvöru á ár-
unum upp úr 1940 og nú eru um
1000 íbúar í Miðneshreppi, en svo
heitir sveitarfélagið.
Hér áður á árum var fjörugt
verbúðalíf í Sandgerði. Þá mátti
heita að tvöföld áhöfn væri á
hverjum báti. Helmingur áhafn-
arinnar var i landi og beitti lín-
una, gerði að fiskinum og vann
önnur aðkallandi störf, en sjó-
mennirnir réru yfirleitt með
skrínukost. Þá hafði hver bátur
sína verbúð, þar sem mennirnir
nutu svefns og matar og höfðu
ráðskonu til halds og trausts. —
Yfirleitt voru verbúðir þannig
innréttaðar að fiskhús og beit-
ingaaðstaða var niðri, en íbúðir
uppi. Frægust hrakningasaga
tengd við Sandgerði, er um það,
þegar vélbáturinn Kristján hrakt-
ist vélarvana um hafið í vondum
veðrum í hálfan mánuð eða meira
og var iöngu búið að telja hann
af. Þá barg það lífi áhafnar-
innar, að vélstjórinn hafði feng-
izt eitthvað við brugg og gat
eimað drykkjarvatn úr sjó í
litlum mæli þó. Þegar þeir
loks gátu hleypt bátnum á land
við Stafnes í vitlausu veðri voru
þeir búnir að brenna hann hér
um bil upp til agna til að halda
þessari einstæðu bruggun í gangi.
Nú hefur orðið ákaflega mikil
breyting á. Verbúðalífið, eins og
það þekkist fyrr á árum er aS
mestu horfið, enda línuvertíð úr
sögunni svona hér um bil.
Nú munu skráðir 10 stórir vél-
bátar í Sandgerði og urmull
smærri báta og trilla. Sú var þó
tíðin, að vertíðarbátar voru þar
miklu fleiri, en smærri. 1918 voru
til dæmis gerðir 90 bátar út frá
Sandgerði, en ekki voru það allt
merkilegar fleytur að stærðinni
til. Nú landa 40—60 bátar í Sand-
gerði á hverri vertíð, en sú breyt-
ing hefur orðið á, að bátarnir eru
lausari við en áður og geta not-
Framhald á næstu síðu.
Sandgerðingar
Annast alla MÁLNINGARVINNU.
HEFI EFNI.
K a 11 i málari.
Sími 7525. — Sandgeréi.
8 17. sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ