Alþýðublaðið - 26.09.1965, Síða 11

Alþýðublaðið - 26.09.1965, Síða 11
Næsti bikar á að heita Churchill - bikar ★ EF BRASILÍUMENN sigra i heimsmeistarakeppninni í knatU spyrnu næsta ár, vinna þeir Jules Rimet-bikarinn til eignar, en hann hefur verið í gangi síðan 1930. Brasiliski menntamálaráðherr- ann hefur heitið nýjum bikar, ef svo færi og liann á að heita 1 „Churchill”-bikar. sigra eflavík í dag? I DAG verður háður síðasti Ieikur Islandsmótsins í I. deild í knattspyrnu. KR og Keflavík leika á Laugardalsvellinum. Leikurinn liefst kl. 4. Sigri FR í leiknum eru þeir íslandsmeistarar, verði jafn tefli Jiurfa KR og Akranes að leika aukaleik um meistaratitilinn, en sigri Keflavík eru Akurnesingar íslandsmeistarar. ★ SPENNANDI MÓT kom í ljós í leikjum liðsins við KEPPNIN í 1. deild hefur verið mjög spennandi í sumar, Akurnes- ingar byrjuðu illa í mótinu, hlutu aðeins 1 stig út úr þrem fyrstu leikjunum. Síðan sigruðu þeir í næstu sex leikjum, en töpuðu síð- asta leiknum við Keflavík, þó að þrjá af beztu leikmönnum Keflvík inga vantaði í liðið. KR-ingar hafa verið misjafnir, þeir hafa átt ágæta leiki af og til, en undanfarnar vikur hefur liðið verið heldur slappt, eins og t. d. í Rosenborg í Evrópubikarkeppn- inni. Það er margsannað, að KR-ingar eru harðir í horn að taka, þegar mikið er í húfi og svo sannarlega er það nú, þess vegna spá margir áhugamenn þeim sigri í dag. Þó að Keflvíkingar eigi enga möguleika á að hljóta íslandsmeistaratitilinn að þessu sinni, væri óneitanlega á- nægjulegt fyrir liðið að sigra bæði Akranes og KR í síðustu leikjum mótsins, svo að öruggt má telja að þeir leggi sig alla fram. Hver sem úrslit leiksins verða má búast við skemmtilegri og spennandi viður- eign. ★ LIÐ KR í DAG Lið KR í dag er þannig skipað: markvörður Heimir Guðjónsson, hægri bakvörður Ársæll Kjartans- son, vinstri bakvörður Bjarni Fe- lixson, miðframvörður Hörður Felixson, hægri framvörður Krist- inn Jónsson, vinstri framvörður Sveinn Jónsson, hægri útherji Gunnar Felixson, hægri innherji Einar ísfeld, miðherji Baldvin Baldvinsson, vinstri innherji Ellert Schram og vinstri útherji Theó- dór Guðmundsson. Þór Norðurlandsmeistari í knattspyrnu 1965 íþróttafélagið Þór varð norður-1 landsmeistari í knattspyrnu 1965. I Að vísu er einum leik ólokið, | milli Þórs og KA, en hann breytir engu, Þór má tapa honum, félagið hlýtur samt Norðurlandstitilinn. Keppt var nú i fyrsta sinn í tveim deildum á knattspyrnumóti Norðurlandsmóts'ns, í 1. deild leika að þessu sinni KA og Þór, Akureyri og KS, Siglufirði. í 2. deild leika HSÞ, UMSE, Völsung- ar, Húsavík og UMSS. Þeir síðast- nefndu, Skagfirðingar unnu alla sína leiki og flytjast því upp í 1. deild. Úrslit í 1. deild hafa orðið þessi: KS tapaði fyrir Þór bæði heima og heiman 6:2 og 5:0. KA gerði^ jafntefli við KS á Siglufirði 3:3* en vann á Akureyri 7:1. Fyrrileik Þórs lauk með sigri þeirra fyrr- nefndu 3:0 og Þór hefur því tryggt sér Norðurlandstitilinn á þessu ári. KOMA >EIR HINGAÐ? NOKKRUM sinnum hefur verið á það minnst í blöðum, að rúmensku heimsmeistararnir í handknatt- leik væru væntanlegir hingað, en ekki hefur þetta fengizt staðfest. Nú hefur blaðið Aktuelt skýrt frá því, að leikur Dana og Rúmena sé ákveðinn 24. febrúar og blaðið segir einnig, að Rúmenarnir fari til íslands, Noregs og Austur- Þýzkalands. Ekki tókst okkur að fá þetta staðfest hjá stjórn HSÍ i gær. Jimmy Greaves og Bobby Charlton leika aftur í enska landsliðinu ENSKI landsliðsþjálfarinn Alf Ramsey hefur breytt mjög miðju- tríói enska landsliðsins, en Eng- lendingar leika við Wales 2. októ- BOBBY CHARLTON — aftur með ber í Cardiff. Jimmy Greaves, Al- an Peacock og Bobby Charlton hafa aftur fengið sæti í liðinu í fyrsta leik þess af 14 fram ^ð heimsmeistarakeppninni næsta sumar Ramsey hefur gert fjórðu breyt- inguna á liðinu, sem sigraði Sví- þjóð 2—1 í fyrra. Ron Springett, Sheffieíd Wednesday, leikur aftur í marki, en Gordon Banks, sem er meiddur, er settur út. Springett hefur leikið 30 sinn- um í marki fyrir England eða oft- ar en nokkur annar. Hann var síð- ast í liðinu í júní 1963, þegar Eng- lendingar sigruðu Sviss í Bern 8:1. Peacock hefur fjórum sinnum leik- ið í landsliði, síðast gegn Walea 1962 JIMMY GREAVES - aftur með Það var búizt Greaves og Charl- ton í Iiðið aftur, en val Peacocka kom á óvænt. Enska landsliðið lítur þannig út: Ron Springett, Sheffield Wedn- esday, George Cohen, Fulham, Ray mond Wilson, Everton, Bonny Sti- les, Manchester Utd., Jackie Charl ton, Leeds U., Bobby Moore, West Ham, fyrirliðið Terry Paine, Sout- hampton, Jimmy Greaves, Totten- ham, Alan Peacock, Leeds U., Bobby Charlton, Manchester Utd., og John Connelly, Manchester U. Meistaraflokkur KR í knattspyrnu 1965. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. sept. 1965 ££

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.