Alþýðublaðið - 26.09.1965, Side 16

Alþýðublaðið - 26.09.1965, Side 16
Vantar stúlku. Hótelið á Hornafirði vantar nú þegar eina eða tvær stúlkur í eld- hús og lierbergin. Augl. í Tímanum. Ef fólk talaði aðeins um það, sem það hefur vit á, mundi vera hljótt í heiminum .... — Þetta kemur mér svo á óvart, sagði skvísan, þegar gæinn bað hennar eftir fimm ára trúlofun .... f>ei, þei og ró, þögn breiðist yfir allt, kvað skáldið, og þessar ljóðlínur verða ugglaust letraðar með gulln um stöfum á hlið hins væntanlega þögula bæjarhverfis í Breiðliolt- inu. Eins og alþjóð er nú kunnugt er það kempan Jón Leifs, sem fætt hefur af sér þessa nýstárlegu flugu, og ef að líkum lætur verður þetta síðasta stef í hugmyndasin- fóníu hans leikið með viðeigandi 1 hávaða í hljómleikasal framkvæmd arinnar. Breiðholt er engan veg- inn heppilegt nafn, því að oft er í holti heyrandi nær, og í þessu hverfi mun að sjálfsögðu ríkja grafarþögn og steinhljóð og eng- ar hleranir mögulegar. Nær lagi væri að kalla hverfið Leifsland. í Leifslandi verður öll umferð auðvitað stranglega bönnuð og þarf því ekki að leggja þar akvegi heldur einungis mjóa gangstíga. Þetta mun flýta mjög fyrir allri framkvæmd málsins og spara Geir borgarstjóra stórfé. íbúar hverfis- ins munu þar af leiðandi leggja tryllitækjum sínum á sérstöku plani, sem staðsett verður í minnst 10 kílómetra fjarlægð, læsa þeim þar, fara síðan úr skónum og læð- ast á sokkaleistunum inn í para- dís þagnarinnar. Einnig verður stranglega bannað að leika á hvers konar hljóðfæri, og verður sá íbúi gerður brott- rækur þegar í stað, sem dirfist að strjúka boga yfir fiðlustrengi eða blása í lúður. Tónskáldin munu semja hugverk sín í algerri þögn og má segja, að þeim sé ekki vand- ara um en meistara Beethoven, sem samdi sín fegurstu verk, án þess að heyra einn einasta tón. Samskipti milli hjóna verða sér- staklega athyglisverð í þessu hverfi, því að þau munu fara fram bréflega. Öllu erfiðara viðfangs kann að reynast, ef svo skyldi bera við, að barn fæddist í hverfinu. Mun þá reynast nauðsynlegt að fjarlægja það hið snarasta og setja það á uppeldisstofnun. Vel væri við hæfi að lieiðra stofnanda hverfisins árlega, til < •••••■. :• •:•:• •.•••;•;:•• ••• Hver sá, sem dirfist að strjúka boga yfir fiðlustrengi verður tafarlaust rekinn úr hverfinu. dæmis á afmælisdegi hans. Þar sem ekki verður unnt að hafa nokk urra mínútna þagnarstund honum til heiðurs, vandast málið óneitan- lega. Ef til vill mætti reisa af honum eina styttu á ári, raða þeim hlið við hlið í Leifsgarði, síðan gætu íbúarnir spreytt sig á því, á heilsubótagöngum sínum að gizka á hver myndanna líktist nú stofn- andanum minnst. Listamenn íslands eygja nú glæsta framtíð. Loksins eftir alda- langt píslarvætti í heimi skrölts og skarkala verða þeim sköpuð starfs- skilyrði við hæfi. Þeir munu, lof- aður sé guð, fá að hvílast í friði og þögnin mun halda sinni vernd- arhendi yfir þeim .... oooooooooooooooooooooooooooooooo s/ ROMANTIK. í kvöldsins lieillandi liúmi, og liægum þey, ég gekk um götuna og mætti glæstri mey. j Ég bar upp bónorðið þegar. Hún brosti og sagði: nei! — Eg sá hana aldrei aftur. — OK ! 0 0 ■8 0 0 K a n k v í s . Oooooooooooooooooooooooooooooooo

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.