Alþýðublaðið - 07.10.1965, Side 3
Sukarno fordæmir
byltingartilraun
SINGAPORE, 6. október (NTB-
AFP). — Sukarno, forseti Indónes
fu, fordæmdi harðlega í dag hina
mish,eppnuðu byltiií?artilraun,
isem gerð var í síðustu viku, og
morðin á sex herforing-jum, en um
leið skoraði hann á þjóðina að
varpa frá sér allri hefnigirni, að
því er Djakarta-útvarpið hermir.
Forsetinn sagði þctta á fyrsta ráðu
neytisfundinum sem lialdinn hef-
ur verið síðan byltingartiiraunin
var gerð á föstudaginn,
Ráðuneytisfundurinn táknar þó
engan veginn, að ófriðarástandinu
í Indónesíu sé lokið. Fréttir ber-
ast sífellt af bardögum umhverfis
bæinn Jogjakarta á Mið-Jövu, og
kröfunni um hefnd yfir herforingj
unum sex eykst sífellt fylgi. Jafn-
framt eru bornar fram nýjar kröf-
ur um, að indónesiski kommúnista-
flokkurinn skuli bannaður.
Reuter hermir, að þrír kunnir
herforingjar hafi sakað kommún-
ista um grimmdarverk og krafizt
hefndarráðstafana. Djakartaútvarp
ið hermdi í dag, að 200 vopn-
Avarp dómsmálaráðherra
vegna umferðarvikunnar
verið staðið á verðinum sem
skyldi. Hitt veit ég, að þar hafa
margir lagt maigt gott til mála af
einbeittum áhuga og góðvild, til
þess að bæta úr misfellum og
koma góðu til leiðar. En ljóst er
að betur má, ef duga skal — og
að því skal stefnt.
En ég bið jafnframt um samúð,
samstarf og samstilltan ásetning
einstaklinganna, hvers og eins —
til þess að ráðast gegn og sigrast
á þeim vanda, sem við okkur
blasir.
Það þykir prýði og höfuðkostur
einstaklinga og þjóðá að temja
sér kurteisi í umgengni við aðra.
Einn þáttur slíkrar kurteisi er að
sýna liver öðrum tillitssemi í um-
ferðinni. Án slíkrar tillitssemi ná
ekki strangari boð eða bönn eða
! hin þyngstu viðurlög þess opinbera
! því marki, sem að er stefnt.
| Það er ósk mín og von, að rísa
megi alda samstilltra átaka þess
opinbera og einstaklinga um gjör-
vallt land. er að því stefni, að
forðast hin ógnvekjandi umferðar-
slys. Að okkur megi öllum lán-
ast að skapa þá umferðarmenn-
ingu, aðhald og festu, er leiði
skugga sorgar og sóunar hjá dyr-
um borgaranna.
aðir kommúnistar hefðu verið
handteknir.
Hinir tveir ráðherrar kommún-
ista, Lukman og Njoto, sátu hins
vegar ráðuneytisfundinn í dag,
þótt báðir hefðu staðið bak við
byltingartilraunina samkvæmt
fyrri fréttum. Sagt var að Luk-
mann og Njoto, hefðu látið í ljós
skoðanir sínar á atburðunum eins
og aðrir.
>00000000000000000000000oooooooo<
Ódýr f Jölskyldu'
fargjöld hjá Fí
Á FARGJALDARÁÐSTEFNU eru í aðalatriðuni byggð á sama
IATA flugfélaganna, sem haldin
var í Aþenu sl. ár, beitti Flugfélag
íslands sér fyrir því, að tekin
yrðu upp sérstök ódýr fjölskyldu-
fargjöld milli íslands og útlanda.
Þessi tillaga Flugfélags íslands
náði samþykki ráðstefnunnar og
ganga fjölskyldufargjöld milli 'ís-
lands og Norðurlanda í gildi um
næstu mánaðamót.
Fjölskyldufargjöld Flugfélags-
ins milli íslands og Norðurlanda
grundvelli og fjölskyldufargjöld
félagsins á flugleiðum þess innan-
lands, sem nú hafa verið í gildi
í eitt ár.
Samkvæmt þeim reglum, greiðir
forsvarsmaður f jölskyldu, fullt far
en aðrir fjölskylduliðar aðeins
hálft fargjald (maki og börn 12-
26 ára).
Fjölskyldufargjöldin gilda frá
1. nóv, til 31. marz 1966.
í TILEFNI herferðar Umferð-
arnefndar Reykjavíkur og sam-
starfsnefndar bifreiðatrygginga-
félaganna hefur Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra, sent frá sér
eftirfarandi ávarp:
„HIN geigvænlegu og sívaxandi
umferðarslys valda öllum almenn-
ingi ugg og kvíða. Líf og heilsa
er í veði. Gífurlegir fjármunir
fara í súginn.
Hraði, — roeiri hraði, staðfestu-
leysi og skortur á tillitssemi í
samfélaginu eru ógnvaldar
þeirra tíma, sem við lifum á. —
Vandamálin eru ekki einstæð í
okkar litla þjóðfélagi. Það leysir
olckur hins vegar ekki undan
þcirri ábyr'gð, sem á okkur hvílir
að bregðast sjálfir við vandanum
með manndómi og einurð.
Þau sár, sem umferðarslysin
skilja eftir sig í þjóðfélaginu, —
sorg, örkuml, ógæfa og fjárhags-
legir stórskaðar samborgaranna
hljóta að knýja okkur öll til að
beita viðnámi og aðgót.
Mér er lióst, að þungi ábyrgðar-
Innar hvílir ekki hvað sízt á opin-
beru stjórnvaldi, — fulltrúum
sveitarstjórnarmála, löggæzlu og
annarra greina ríkisvaldsins. Eg
legg ekki dóm á, hvort þar hefur
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
SpUakvöld / Reykjavík
FYRSTA spiískvöld vetrarins hér í Reykjavík verður hald
ið annað hvöld, föstudag í iðnd og hefst kl. 8,30 stundvíslega.
Eggert G. Þorsteinsson félagsniálaráðherra, flytur ávarp, en á
eftir verður dansað. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna
og mæta síundvíslega.
Spilakvöld í Hafnarfirði
FYRSTA spilakvöld vetrarins í Hafnarfirði verður haldið
í kyöld, fimmtud. í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Spiluð
verður félagsvist. Emil Jónsson, utanríkismálaráðherra, flytur
ávarp kvöldsins. Auk þess verður sameiginleg kaffidrykkja,
* verðlaunaafhending og dans. Fólk er vinsamlega beðið rnn að
mæta stundvíslega og tryggja sér þar ír.eð sæti.
foooooooooooooooooooooooooooooooó
LYSUNUM
Reykjavík. — OÓ.
ÁREKSTRAR OG SLYS af
völdum umferðar fara..vaxandi
hér á landi ár frá ári og-óhemju.
fjárupphæðir fara í súginn af
þessum sökum. Nú hafa um-'
ferðarnefnd Reykjavikurborgar.
og samstarfsnefnd bifreiðatrygg
ingafélaganna efnt til umferð-
arkynningar sem standa á yfir
í allan vetur.
Einn liður þessarar kynning-
ar er að hafa til sýnis á áber-
andi stöðum í borginni flök af .
bílum sem lent hafa ‘f■ árekstr-
um, sem ekki einasta hafa eyði
Iagt bílana heldur valdið slys-
um á fólki og jafnvel dauða.
Umferðarherferð þessi hófst
1. þessa mánaðar, en það eru
leiðbeiningar til gangandi
fólks, hvernig það eigi að haga
sér í umferðinni. Um miðjan
næsta mánuð verður tekinn
fyrir Ijósaútbúnaður bíla.
Helztu orsakir umferðarslysa
eru of hraður akstur, aðgæzlu-
Ieysi og ölvun við akstur. —
Alls valda fyrrgreindar orsakir
95% þeirra slysa, sem hér eiga
sér stað.
Áætlað er að greiðslur trygg-
ingafélaganna verði rúmar 100
millj. kr. ó þessu ári vegna
bílaárekstra, en þeir eru áætl-
aðir alls 10-12 þús. Þá eru ó-
taldar þær greiðslur sem bíla-
eigendur verða sjálfir að standa
skil á og munu þær vera 100
millj. til viðbótar. Af þessu má
sjá að það er ekki lítið eigna-
tjón, sem bílaárekstrar valda,
og þar á ofan bætist örkuml
og dauði sívaxandi fjölda fólks
af völdum umferðarslysa og
verður sá skaði ekki metin til
fjár.
Komið hefur verið fyrir fimm
bílum til sýnis almenningi, sem
allir hafa lent í árekstrum
undanfarið og eru stórskemmd-
ir eða ónýtir. Verðmæti þeirra
áður en árekstrarnir urðu nam
um 700 þús. kr. Við bílaflök-
in eru skilti, þar sem skýrt er
frá orsökum slysanna og afleið-
ingum.
Á horni Sölfhólsgötu og
Kalkofnsvegar er bíll sem valt
á Eiðsgranda. Orsökin: Ofhrað
ur akstur, bílstjórinn próflaus.
Á horni Austurstrætis og Að-
Framh. á 14. síðu.
Bifreiðaflaki ásamt aðvörunarorðum hefur verið komið fyrir á Kalkofnsvegi. (Mynd: j.V).
ALÞÝÐUBLAÐiÐ - 7. okt. 1965 3