Alþýðublaðið - 15.12.1965, Side 1

Alþýðublaðið - 15.12.1965, Side 1
MiSvikudagur 15. desember 1965 - 45. árg. — 285. tbl. — VERÐ 5 KR. □ Við biðjum alla viðskipta vini happdrættisins að athuga að dregið verður í happdrætt- inu 23. desember, drætti verð ur undir engum kringumstæð- um frestað. □ Ennþá eru til miðar, en þeim fækkar ört og viljum við vekja athygli ykkar á að kaupa miða nú þegar. □ Það er dregið um 3 bíla að verðmæti um hálfa milljón króna. □ Miðinn kostar kr. 100,00. □ Skrifstofan er á Hverfis- götu 4, opin kl. 9-5, nema laugardaga kl. 9—12. Síminn er 22710. □ Miðar sendir heim ef ósk að er, bara hringja eg miðar sendir um hæl. □ Látið ekki H.A.B. úr hendi sleppa. □ Munið 23. d£„9mber 3 bílar. □ Það er vegleg jólagjöf. SKÝRSLA Á ALÞINGI Á FUNDI sameinaðs þings, sem væntanlega mun hefjast klukkan 20,30 í kvöld, mun Jóhann Haf- stein iðnaðarmálaráðherra gefa Alþingi skýrslu um þær viðræð- ur, sem undanfarið hafa átt sér stað um byggingu alúminíumverk- smiðju við Straumsvík. Á dagskrá sameinaðs þings eft- Framhald á 10. síðu. VETRARHJÁLPIN: EIÐNIR UM ADSIOÐ FIEIRI EN NOKKRU SINNI ADUR Reykjavík. — OÓ. Hjálparbeiðnir til Vetrarhjálp- arinnar eru ekki minni í ár en í fyrra, en söfnun og úthlutun er nú í fullum gangi. í fyrra var úthlutað á tæp 800 heimili og búast starfsmenn Vetrarhjálpar- innar við að sú tala aukist nokk- uð í ár. Það eru ótrúlega margir sem þurfa aðstoðar við og ekki sízt fyrir jólin. Vetrarhjálpin hef- ur ekki úr miklum peningum að moða miðað við það sem beðið er um, en reynt er að veita öllum sem með þurfa einhverja úrlausn. Þeir sem einkum eru hjálpar þurfi eru ekkjur og fráskildar konur með bETnahópa, heimili þar sem fyrirvinnan getur ekki stund- að vinnu vegna veikinda og í sorglega mörgum tilfellum vegna drykkjuskapar, svo og gamal- menni og einstaklingar, sem ekki geta stundað vinnu. Vetrarhjálpin .úthlutar ekki peningum, heldur fötum, nýjum og notuðum, ávisunum á matar- verzlanir og mjólkurbúðir. Spjald skrá er yfir þau heimili sem helzt þurfa hjálpar við og sé gluggað í hana sést greinilega hve hart fólk getur verið leikið í vel- ferðarríkinu á íslandi. Ein af hjálparbeiðnunum er frá manni sem á sex börn undir 16 ára aldri og hefur verið rúmfastur síðan í vor vegna veikinda og tekjur lieim ilisins sáralitlar sé miðað við þörfina. Önnur beiðni er frá frá- Framhald á 7. síðu. Tveir af starfsmönnum Vetrarhjálpax'innar, Magnús Þorsteins sdn framkvæmdastjóri os' Nói Kristjánsson blaða í spjaldskránni. I stjórn Vetrarhjálparinnar eru séra Garðar Svavarsson, Þorkell Þórðarson yfirframfærslufulltrúi og Kristján Þorvarðarson læknir. Mynd: JV. EMIL JÓNSSON utanríkte máiaráðherra er nú staddur í París, þar sem hann situr fund í ráðherranefndum Ev- rópuráðsins og Atlantshafs- bandalagsins. Myndin er tek in á fundi Evrópuráðsins s. I. föstudag. Ráðherrann er lengst til hægri við fundar borðið, en hjá honum situr fastafulltrúi íslands hjá Ev- rópuráðinu, Pétur Eg-gerz ambassador. írskir fulltrúar eru sessunautar íslending- anna. >ooooooooooooc>o<>i Konu leStað IIJÁLPARSVEIT skáta hér I Reykjavik og björgunarsveitin Ingólfur voru boðaðar út til leitar á ellefta timanum í gærkvöldi. Var leitað aðstoðar sveitanna til að leita 39 ára gamallar konu, sem farið hafði að heiman frá sér kl. 2.30 í gærdag og síðan ekkert spurzt til. Var það síðast vitað til ferða konunnar, að talið var að hún hefði tekið sér far með leigubifreið út á Seltjamar- nes. :j Þegar blaðið fór í prentun kl. að ganga 2 í nótt stóð leitin enn yfir og hafði þá engan árangur borið. Stockholms-Tidningen verð- ur lagt niður í apríl 7966 SÆNSKA dagblaðið Stockholms Tidningen, sem er eign sænska alþýðusambandsins mun hætta að koma út í apríl á næsta ári, en blaðið liefur að undanförnn ver- ið rekið með miklum halla. Er- lander forsætisráðherra Svía ræddi þetta mál meðal annars í sænska þinginu í gær, en þar er nú til umræðu tillaga um fjár stuðning til stjórnmálaflokkanna. Árið 1956 keypti sænska al- þýðusambandið tvö dagblöð af sænska blaðakónginum Torsten Kreuger. Þessi blöð voru Stock- boLms-Tidniiiigien og Aftonþladet. Alþýðusambandið lá enn Afton- Frh. á 10. sfðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.