Alþýðublaðið - 16.12.1965, Page 1

Alþýðublaðið - 16.12.1965, Page 1
Fimmtudagur 13. desember 1965 — 45. árg. — 286 tbl. — VERÐ 5 KR. HOUSTON, Texas, 15. desember (NTB-Reuter). — Bandaríkj am enn náðu í dag mikilvægum áfanga í tilraununum ti] að senda mann til tunglsins er Gem- ini-geimförum þeirra tókst að hittast í geimnum. Geimförin Gemini-6 og Gemini-7 flugu sambliða í kvöld og voru aðeins tveir til þrír metrar á milli þeirra og þar með hafa Bandaríkjamenn í fyrsta sinn í sögu geimferða náð á sitt vald tækni, sem nauðsyn leg er ef takast á að senda mann til tunglsins. Gemini 6 var í fcvöld svo ná lægt Gr.Tiini-7, að geimfararnir Walter’, Sehirra og Thomas Staf- ford sáu skeggið, sem þeir Frank Borman og James Lovell hafa safnað á 11 da'ga ferð umhverfis jörðu. Fintn lög Reykjavik, EG ALÞINGI afgreiddi í gær fimm frumvörp, sem lög til rík isstjónnarinnar. Frumvörpin eru þessi: Frumvarp til laga um húsnæð ismálastofnun riikisins, sem gerir ráð fyrir stórfelldum lánahækkun ura og ýmsum öðruim toreytingum til hagshóta fyrir íhúðabyggjend ur í isamræmi við yfirfýsingu rík isstjórnarinnar frá í sumar. Fi'umvarp um breytingu á al- mannatryggingalögunum. Frumvarp til breyttoga á lögum um ríkisíramfærslu sjúkra manna Og örkumla. ' Frumvarp um Igjaldaviðauka. Fruimvarp til breytinga á vega lögum, sem gerir ráð fyrir bækk im á verði benzíns og hækkun þungaskatts af tlieselbifreiðum. Lokaundirbúningur Gemini-6 undir stefnumóti'ð við Gemini-7 ihófst laust fyrir kl. 18 að ís- lenzkum tíma, og þá þegar sáu þeir Schirra og Stafford ljósin frlá Gemini-7. Þegar Gemilnii-6 var yfir Tananarive á Madagask ar minnkaði Gemini-6 fjariægðina mi'lli geimfaranna í 45 kílómetra. Framh. á bls. 1*. HJÓNIN Björn Eiríksson oq Guðbjörg Jónsdóttir að Sjón- arhóli við Reykjavíkurveg í Hajnarfirði, hafa ákveðið að gefa Fimleikafélagi Hafnar- fjarðar (FH), hxiseign sína — Sjónarhól — ásamt lóð þeirri er lixisið stendur á og tveimur bilskúrum, sexn á lóðinni standa. Formlega var gengið frá þessari gjöf á lieimili hjónanna mánudaginn þ. 13. desember síðastliðinn, að viðstöddum stjórnarmeðlimum FH, Birni Sveinbjörnssyni, settum bæjar- fógeta í Hafnarfirði og börn- um þeirra öllum, nema einum syni er var á síldveiðum. 13. desember er giftingardagur þeirra hjóna og hann kusu þau til að ganga frá hinni höfð- inglegu gjöf. Fimleikafélag Hafnarfjarðar fær húsið til frjálsra afnota, þegar það hjónanna er lengur lifir, er fallið frá. Sem ástæðu fyrir höfðing- skap sínum í garð FH, nefna hjónin, að félagið hafi gengt mikilvægu uppeldislegu hlut- verki fyrir börn þeirra, sem öll hafa verið starfandi í því. Húsið Sjónarhóll er stórhýsi 13 sinnum ellefu metrar að flatarmáli, en samanlagður gólfflötur allra hæða og bíl- skúranna beggja er um 600 fermetrar. Lauslega er áætlað að húsið sé rúmlega 7 milljón króna virði. Fyrir hönd FH skrifuðu þessir undir gjafabréfið: Axel Kristjánsson, formaður FH, Hallsteinn Hinriksson varafor- maður og Finnbogi F. Arndal gjaldkeri félagsins. Birgir Björnsson frá Sjónar- hól er þú þjálfari hins frækna Björn Eiríksson undirritar gjafabréf sitt, en þar segir, að FH sé eigandi Sjónarhóls eftir hans dag. Neðri myndin er af Sjónarhól, sem ásamt lóð og bílskúrum er metið á 7 millj. handknattleiksliðs FH, sem oft hefur orðið íslandsmeistari í íþróttinni og er nú. Segja má, að með gjöfinni verði í fram- tíðinni gerbreytt allri aðstöðu félagsins til iðkunar áliuga- mála sinna og jafnvel mættí ætla að hún ylli aldahvörfum í íþróttalífi kaupstaðarins. GEFA F.H. HÚS A SJÚ MILU.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.