Alþýðublaðið - 18.12.1965, Blaðsíða 9
Eiginkona japanska sendiherrans leidd til sætis af Sir
Lawrqnce Bragg.
á svið, þar sém hann þakkar við-
urlcenninguna með hneigingu
áður en hann sezt aftur í sæti
sitt.
Hið sama endurtekur sig í
hvert sinn. Ég ætla mér ekki þá
dul að rekja hér ræður, sem
fjalla um mólikúl og veirur og
erfðaeindir og það virðast fleiri
en ég freistast til að hugsa um
annað á meðan á slíku stendur:
einn franski verðlaunahafinn
upphefur augnamál við konu
sína niðri í sal meðan gerð er
grein fyrir vísindaafrekum hans.
Sýnilega ér það eitthvað skemmti
Iegt sem hann er að segja henni,
en virðulegur embættismaður
Nóbelsathafnarinnar sem gegnt
honum situr kann ekki að meta
það.
Hrukkurnar í andliti hans
verða djúpir farvegir vanþókn-
unar og áminningar. Frakkinn
roðnar og fer hjá sér eins og
skólastrákur, augnamálið þagnar
í miðri setningu. Honum verður
fyllilega ljóst, að vísindin eru
ekki til að gantast með.
Loks er Sjolokov einn eftir.
Hinir hafa allir sótt verðlaun
sín til konungs. Dr. Anders Öst-
erlig talar um sagnabálk hans
„Lygn streymir Don” og segir
rn.a. „Vel mætti segja, að Sjolo-
kov riti þrautreyndan stíl, raun-
sæjan stíl án þess að plægja nýj-
an akur, stíl, sem virðist barna-
legur í einfaldleik sínum, sé hann
borinn saman við ýmislegt sem
komið hefur fram í skáldsagna-
gerð síðar. En efnið, sem hann
tekur til meðferðar, hefði ekki
komizt til skila með öðru móti...”
Það fer ekki hjá því, að hug-
urinn reiki til þeirra atburða,
sem á undan eru gengnir með-
an Sjolokov er á dagskrá. Lítill
vexti, en teinréttur stendur hann
á sviðinu. Þetta er ekki bara mað-
urinn Sjolokov; þetta er sjálft
Sovét-Rússland. Þennan skiln-
ing hefur hann sjálfur hvað eftir
annað lagt áherzlu á. Hann hefur
afneitað Pasternak og Bunin,
annar var útflytjandi í eigin
Framhald á 10. síðn.
Ekki a&eins bækur
-einnig bókmenntir
Þorgeir Sveinbjarnarson:
VÍSUR UM DRAUMENN
Ný Ijóðabók — Verð 258 kr. innb.
Jón ur Vör:
MAURILDASKÓGUR
Ný Ijóðabók. — Verð 258 kr. ínnb.
Einar Krisíjánsson:
BLÓM AFÞÖKKUÐ
Smásögur — Verð 172 kr. innb.
Juan Ramón Jiménez:
PLATERO OG ÉG
Verð 172 kr. innb.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
j? NYJUNG
C
NÝJUNG
Nýft frá COTY
Ilmkrem í glösum. — Einnig Talcum
og Baðsölt.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. des. 1965 9
Austurstræti 7. — Sími 17201.
Nýjung frá Svisslandi
MYBOB SLEÐAR NYKOMNIR.
Sleðanum má stýra og undir sætinu er rúm-
gott geymslurúm fyrir nesti og annan f'ar-
angur.
SPORTVÖRUHÚS REYKJAVÍKUR
Rafha-húsinu við Óðinstorg. — Sími 1-64-88.
7.1 iHfwftaKiaB-aa. r-rf.vy,