Alþýðublaðið - 23.12.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 23.12.1965, Blaðsíða 9
Minningarorð; Guðmundur Ölafsson frá Fjalli Hinn 15. október síSastliðinn andaðist á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna hér í bæ, Guð mundur Ólafsson, sem lilngum var kenndur við Fjall á Skeiðum. Jarðarför hans fór fram 22. sama mánaðar. Guðmundur var fæddur 9. des ember 1874, og var því nærri 91 áris að aldri, er hann andaðist. For eldrar hans voru Ólafur Stefáns son, bóndi á Fjalli, og kona hans Margrét Ófeigsdóttir hins ríka, er svo var oft nefndur. Guðmundur ólst upp og dvaldist á Fjalli til 17 ára aldurs, en eftir það stund aði hann sjómennsku á Suðurnesj um. 1896 gekk hann að eiga Guð rúnu Sigurðardóttur og hófu þau býskap jí Móíakoti í Sandvíkur hreppi. Þau eignuðust 6 börn, 3 syni og 3 dætur, sem öll eru á lífi að einu undanteknu (syni). Árið 1919 fluttist Guðmundur með fjöl skyldu sína að Læk í Ölfusi, og bjó þar í 5 ár. Þaðan lá svo leið in til Reykjavíkur og stundaði hann þar sjómennsku um skeið, en vann svo nokkur ár hjá Þor oddi Jónssyni heildsala. Síðustu árin var hann umsjónarmaður með húsi Tónlistarskólans hér í bæ. Þannig lítur æviferill Guðmund ar Ólafssonar frá Fjalli út í stór um dráttum og stuttu máli. Ekki er AÞÁTTUR hægt að segja, að líf hans væri Viðburðaríkt eða óvenjulegt að neinu leyti, en það var farsælt og auðugt að sólskinsblettum, enda var Guðmundur gleðimaður og fé lagslyndur að eðlisfari, — gat í sannleika verið hrókur alls fagn aðar í vina og kunningja hópi. Hann var gamansamur og hafði Guðmundur Ólafsson. yndi af skáldskap. Sérstaklega mun hann nafa haft mætur á ljóðum Einars Benediktssonar. Hann var og maður hljómvís (músikalskur) og mjög var söngur stundaður á heimilum hans, bæði í Móakoti og á Læk, og var þá stundum svefni fórnað á altari söngdisar innar og talið sjálfsagt. Þó held ég, að Guðmundi hafi búnast vel og að ekki hafi hann öðrum frem ur þurft sinn bróður að biðja. — Það lætur að líkum, að vegna þess »ð hann var gleðimaður, sem kallað er, hafi hann við og við dýrkað vínguðinn, en aldrei var þar um ofdýrkun að ræða og tö baks neytti hann einnig í hófi. Eins og drepið var á, var Guð mundur hljómvís, enda lék hann á orgel og var organleikari í ýms um kirkjum austanfjalls. Hann mun og verið hafa trúmaður á sína vivu,en öfgalaus og óáreitinn í þeim efnum sem öðrum. Síðustu árin var hann sem fyrr segir, umsjónarmaður með húsi Tónlistarskólans hér í Reykjavík. Kynntist hann þá tónlistarmönn um ýmsum, t.d. Páli ísólfssyni, og voru þau kynni honum mjög að skapi. Hygg ég, að þeir Páll og hann hafi mjög vel kunnað að meta hvorn annan, og munu þessi ár, sem Guðmundur gegndi starfi sínu við Tónlistarskólann, hafa verið hans mertu hamingjuár. Kynni mín af Guðmundi voru ekki löng, en fljótt tókst með okk ur góð vinátta. Var það meira en frændrækni ein, sem þar var um að "-æða, og nú, begar leiðir skilja sakna ég skemmtilegs málvinar, er gaman var að hitta endrum og elns og blanda geði við. — Hann var greindur og athugull og ‘hafði gaman af þjóðlegum fræðum, hlýr í viðmóti og orðvar. Við andlát hans var þetta kveðið: hvernig Wenzel konungur stofn setti Sankti Vitus kirkjuna í Prag og ennfremur hvernig hann féll fyrir hendi launmorðingjans. Þessi frímerki, a.m.k. lægri verð gildin hafa til þessa fengist, og verið frekar ódýr, því að upplag þeirra var allhátt. Margir ;,motiv“ safnarar munu taka þetta merki með í safn sitt, þótt ekki sé bein linis um kirkjuhöfðingja að ræða. Ekki er úr vegi að minna þá sem safna „trúmálum á frímerkjum" á minningar-frímerkið um sálminn „heims um ból, helg eru jól“, sem Austurríki gaf út viku fyrir jól 1948. Á frímerkinu er mynd bæði af textaliöfundi og tónsmiðnum. X því sambandi getum við til gam ans sagt frá því, hvernig þessi jólasálmur varð til: í kirkj- unni í borginni Oberndorf vo_u þeir eitt kvöld staddir prestur inn og meðhjálparinn. Nafn prests ins var Joseph Mohr, en nafn organistans var Franz Gruber. Þetta var að kvöldlagi og beir ætl uðu sér að semia jólasálm, því nú hallaði mjög að jólum. Þá kom það unp úr kafinu, að mvsnar í kirkjunni höfðu nágað svo stórt ■ gat á belginn í orgelinu, áð það ivar næstum hljóðlaust. Nú var ekki gott í efni, en ekki gáfust þeir félagar þó upp. Þeir unnu við það meiripart nætur, að semja lag, sem væri svo einfalt, að auð veldlega mætti spila það á fiðlu eða gítar. Árangur þessarar næt urvinnu þeirra félaga var sálmur inn „Heims um ból, helg eru jól.“ Hann er nú sem kunnugt er orðinn alheimseign. Frímerkjaþátturinn þakkar les endum bréf og sendipgar á liðna áíinu og óskar ykkur öllum gleði legrá jóla. „Hneigð til sagna og hlý var lund. Hlióðu magni dveginn hefurðu á ragna stórri stund stefnt á þagnarveginn." „Á ragnastórri stund" — stund guðanna eða ö-laganna þ.e. á dauða stundinni, var hann „hlióðu magni dreginn" út á ..baenarveginn’’ •Hann fókk hægt og rólegt andlát og þurfti ekki að biást. Hér er góður maður genginn. Þetta er sannleikur, en engar eft i”mælaöfear. oe mun minning Guð mundar Ólafssonar 1 ifa. Grétar Fells. Síldarbátar komnir heim Reykjavík — GO. Allir síldarbátar frá Reykjavik eru komnir heim og munu liggja hér yfir jólin. Þann 18. desember lönduðu þessir bátar síld að aust an: Reykjaborg 762 tunnum, Helga RE 1932 og Helga Guðmundsdótt ir BA 1400 tunnum. Þessi síld fór mestöll í frystingu. Auk þess landaði Sigurkai'fi ein hverju magni í bræðslu. EGE-RYA Ný sending! Þekktustu dönsku RYATEPPIN Kærkomin jólagjöf fyrir hverja húsmóður IVI Á L A R I N N Sími 22866. Amerískir Greiðslusloppar Laugavegi 31. — Sími 12815. Aðalstræti 9. — Sími 18860. UTBOÐ Tilboð óskast í að bora í fast berg eða Otlöpp og að sprengja á eftirtöldum stöðum: 1. 15000 má í grjótnáminu í Selási. 2. 20000 m:1 í grjótnáminu á Köllunarkletti. Útboðsgcgini eru afhent i skrifstofu vorri, Vonar- stræti 8. Innkaupastofnun. Reykjavíkurborgar. Auglýsingasíminn er 14906 ALÞÝOUBLAÐIÐ - 23. des. 1965 ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.