Alþýðublaðið - 31.12.1965, Side 1

Alþýðublaðið - 31.12.1965, Side 1
Föstudagur 31. desember 1985 - 45. árg. - 297. tbl. - VERÐ 5 KR. Á MIÐNÆTTI í kvöld líður í aldanna skaut mesta aflaár í sögu íslendinga. Hin mikla síldveiði liefur aukið svo mjög heildarmagn það, sem borizt hefur á land, að það fer nú í fyrsta sinn yfir 1.000. 000 smálestir. Síldarmagnið hefur aukizt um meira en 200.000 smálestir síðan í fyrra, en sú aukning ein hefði þótt dágóð veiði í síldarári áður fyrr. Hins vegar h'efur annar fiskur minnkað síðan í fyrra, en hefur þó sjaldan verið meiri. Þessi miklu aflabrögð eru ársstarf rúmlega 6.000 sjómanna, sem eru bæði máttarstoð velmegunar á íslandi og aflamestu sjómenn verfaldar. Mun þjóðin því hugsa hlýlega til þeirra nú sem endranær, en í okkar litla landi úti á hjara veraldar er sjálfsagt að kjósa hinn óbreytta sjómann sem mann árs- ins. Hér fer á eftir tafla, sem gefur nokkra 'hugmynd um heild- arafla íslendinga á líðandj ári og mokkrum fyrri árum. Ár: 1925 1930 1935 1940 1944 1945 1950 1955 1962 1963 1964 1965 Maður íslands Blöð gera það les- endum til gamans um nýárið að velja mann ársins, sem var að líða. Að þessu sinni spurði Alþýðu- blaðið sérfræðinga allra dagblaðanna í utanríkismálum, — hvaða mann þeir vildu sæma þessu tignarheiti i ár. Svör þeirra eru á bls. 3. Einnig má velja mann íslands 1966, og finnst okkur, að það ætti að vera hinn óbreytti sjómaður, sem á árinu sló öll rnet í iafl'abrögðumi Hvað er mamikyn- inu nauðsynlegra en þróttmikil matvæla- framleiðsla, meðan milljónir svelta? Síld. Fiskur. Samtals: 29.000 tonn 240.000 tonn 269.000 tonn 73.000 — . 344.000 — 417.000 — 67,000 —- 243.000 - 310.000 — 215.000 — 195.000 - 410.000 — 222.000 —' ■ 326,000 — 548.000 — 57.000 — / 307.000 - 364.000 — 60.000 — 316.000 — 376.000 — 54.000 — 442.000 — 496.000 — 478.000 — 355.000 — 833.000 — 396.000 — 389.000 — 785,000 — 544.000 753,000 — 428.000 — 413,000 — 972.000 1166,000 AÐGERÐIR GEGN ÞENSLU BANKASTJÓRN Seðlabankans hefur í dag, að höfðu samráði við bankaráð, ákveðið ýmsar aðgerðir í peningamálum, sem hún telur nauðsynlegar til að hamla á móti hinni vaxandi þenslu, sem ein- kennt hefur þróun efnahagsmála að undanförnu og komið hefur greinilega fram í mikilli útlána- aukningu bankanna. Frá þessu segir í fréttatil- kynningu, sem Seðlabankinn sendi út í gær. Þar segir ennfremur: • f fyrsta lagi er skylda banka og annarra innlánastofnana til að blnda fé í Seðlabankanum aukin úr 25% í 30% af innlánsaukningu, en hámarksbindiskylda hverrar stofnunar hækkuð úr 18% í 20% af heildarinnstæðum. í öðru lagi hefur bankastjórnin ákveðið, að innlánsvextir sltuli hækkaðir almennt um 1%, svo að þeir verði hinir sömu og þeir giltu fram til ársloka 1964. Hliðstæðar Frh. á 3. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.