Vísir - 17.12.1958, Blaðsíða 6
p
VÍSIB
Miðvikudaginn 17. desember 195S
WISIR
D A G B L Á Ð
Útgeíandi: ELAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 5.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla. Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19.00.
Sími: (11660 (fimm línur)
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
BerfínarmáEið.
Um fátt hefir verið meira rætt
að undanförnu en Berlínar-
málið sem svo er nefnt, þeg-
ar alþjóðamál hefir borið á
góma. Er þá átt við þá til-
lögu sovétstjórnarinnar sem
hún bar fram í lok síðasta
mánaðar, að Vestui'-Berlín
skuli vera „frjálst borgríki“,
hersveitir stórveldanna sem
þar sitja samkvæmt Pots-
dam-samningnum, skuli
kvaddar á brott, og Austur-
Berlín sameinuð „alþýðulýð-
veldi“ þeirra Grotewohls og
Ulbrichts og þar með inn-
limuð í austur-þýzka lepp-
ríkið.
Það hljómar ekki illa að Vest-
ur-Berlín skuli vera frjálst
borgríki, óvopnað og sjálf-
stætt. Og engan furðar á því,
þótt kommúnistar um allan
heim taki undir þessa kröí'u
sovétstjórnarinnar, því að
hér er vissulega frekar um
kröfu eða úrslitakosti en til-
lögu að ræða. Kommúnistar
þreytast ekki á að lýsa
blessun þeirri, sem Vestur-
Berlínarbúum myndi falla í
skaut, ef þeir féllust á þessi
áform Rússa. En ekki þarf
ýkja mikla skarpslcyggni til
þess að sjá úlfinn undir
hinni kommúnistisku sauð-
argæru.
Urn síðustu helgi komu saman
á fund í París utanríkisráð-
herrar stórveldanna þeir
Selwyn Lloyd, Dulles og
Couve de Murville, svo og
von Brentano, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, en
auk þeirra sat hinn skeleggi
borgarstjóri Vestur-Beriín-
ar, Willy Brandt, fundinn.
Samþykkt sú, sem þar var
gerð, er í alla staði hin
merkasta. Þar var því lýst
yfir, að vesturveldin gætu
Hugtfjarfir
Vestur-Berlínarbúar eiga því
láni að fagna að leiðtogi
þeirra, Willy Brandt borgar-
stjóri, er óvenju vel gerður
maður, hugrakkur og fylginn
sér, maður sem heykist ekki,
þrátt fyrir hótanir komm-
únistískra samlanda sinna
og hins erlenda kúgunar-
valds. Árum saman dvaldist
hann í Noregi, kynníist
norrænum lýoræðis venj um,
og er því lýðræðissinni í
þess orðs bezta skilningi.
Willy Brandt nýtur óskor-
aðs trausts samborgara
sinna og alls hins frjálsa
heims. Kosningarnar, sem
fram fóru til íylkisþings
í Vestur-Berlín fvrir
i. skemmstu, sýndu líka svo
ekki fallizt á, að sovét-
stjórnin gæti einhliða fellt
úr gildi Potsdam-samning-
inn ,og myndu vesturveldin
því hafa áfram her í Berlín
og jafnframt áskildu þau sér
rétt til þess að hafa opnar
samgönguleiðir frá borginni
til vesturs, um austurþýzkt
land, eins og verið hefir.
Þessi ákvörðun vesturveld-
anna hefir vakið mikinn
fögnuð í Berlín. íbúum
Vestur-Berlínar er að sjálf-
sögðu ljóst, að mikil hætta
vofir yfir þeim, ef Rússar
fara sínu fram í þessu máli,
einangra borgina og freista
þess að hrekja hermenn
vesturveldanna brott þaðan
með valdi. Slíkt gæti kostað
styrjöld, hugsanlega stór-
styrjöld, sem allir óttast, en
þó vilja þeir heldur hætta á
það, en sæta hinu ömurlega
hlutskipti ánauðugra manna,
ofurseldir harðstjórn, hrotta
skap og kúgun. Lái þeim
það hver sem vill.
Vestur-Berlínarbúar vita mæta
vel, að „frjálst borgríki“ í
Vestur-Berlín er ekkert
nema blekking. Frjálst borg-
ríki, einangrað í hinu
kommúnistiska hafi, fær
ekki staðizt. Næsta skrefið
yrði vitanlega að innlima
borgina endanlega í kúgun-
arkerfi kommúnista. Þá
myndi slokkna sá kyndill
frelsisins, sem Vestur-
Berlín hefir fram að þessu
verið í vitund Þjóðverja, og
raunar alls hins frjálsa
heims. Þá myndi ungverskt
réttarfar verða innleitt í
borginni, þá myndi sagan um
Imre Nagy og Pal Maleter
endurtaka sig. Og þetta rná
ekki verða.
líienn.
ekki verður um villzt, hvern
hug borgarbúar bera til
hans. Jafnframt urðu úrslit
þeirra viljayfirlýsing um
það, að borgarbúar vísa á
bug tillögum um „frjálst
borgríki" á kommúnistíska
vísu. Kommúnistar Vestur-
Berlínar fengu ekki nema
tæp 2% greiddra atkvæða,
og sýnist því ekki þurfa að
velta því lengi fyrir sér,
hvort 98% eða 2% eiga að
ráða framtíð borgarinnar.
Ao vísu telja kommúnistar
urn allan héim, að eðlilegt sé
og sjálísagt, að tvö prósenD.
in skuli ráða yfir 98 pró-
sentunum, það er þeirra
skilningur á lýðræði.
Vestur-Belínarbúar eru hug-
Krafnhetta Guðmundar.
Hrafnlietta. Skáklsaga frá
18. öld, eftir Guðniund Daní-
elsson. títg.: ísafoldarprent-
smiðja. Reykjavík 1958.
Það sýnist vei'a orðin sterk
freisting sagnaskáldum órum
er þeir nálgast miðjan aldur, að
sækja yrkisefni í sögima, þ. e.
sögu landsins.
Ekki er vert að leggja þaim
það til lasts, og það er engin á-
stæða til að kalla það ellimörk
heldur né að þeir geri það ailir
af sömu hvötum og rómantíkar-
arnir á sínum tíma. Þó er Hrafn-
hetta rómantísk saga, sem á
margan hátt er snilldarvel gerð.
1 rauninni skiptir ekki mestu
máli, hvert efniviðurinn er sótt-
ur. Það sem sumum finnst sótt
langt yfir skammt, verður hluíi
af nærverunni, þegar skáldið
hefur farið um efnið sínu næmu
höndum og gefið verkinu algildi,
sem hefur það yfir stund og
stað, svo það talar til allra.
Hrafnhetta er ástarsaga og
harmsaga, eins og slíkri byrjar
að vera frá hendi skálds. Lesend-
um Guðmundar Danielssonar
þarf ekki að koma á óvart, úr þvi
að hann sneri sér að sögulegu
(historísku) efni, að hann skyldi
hafa notað hina dulrömmu sögu
Appoloníu Schwartskopf sem i-
vaf í skáldsögu, því að efnið hæf-
ir honum vel. Þessi framandi
50 ára afmælisrit
VéEstjórafélagsíns.
í tilefni af hálfrar aldar af-
maeli Vélstjórafélags íslands á
þessu ári hefur verið gefið út
stórt og' myndarlegt afmælisrit,
þar sem saga félagsins er rakin
frá upphafi.
Var þegar á árinu 1955 ákveðið
að hefjast handa um útgáfu aí-
mælisrits og þriggja manna rit-
nefnd kjörin. Hlutu til þess kosn
ingu Hallgrímur Jónsson, Júlíus
Kr. Ólafsson og Þorsteinn Áma-
son. Féll það þó aðallega í hlut
þess fyrstnefnda að kanna heim-
ildir og draga saman efnið. í eft-
irmála segir Hallgrímur m. a.
að tilgangurinn með ritinu sé sá
að sýna með fáum dráttum
starfshætti samtakanna frá
byrjun og geta um helztu mál-
efni, sem verið hafa á dagskrá.
Þarna er fyrst og fremst um
heimildarrit að ræða og á bókin
að verða öllum sem þessi mál
varða', eða vilja kynna sér þau,
til nokkurs fróðleiks.
Ritið, sem er á 3ja hundrað
síður að stærð.er prentaðáþykk
an myndapappír og prýtt fjölda
mynda. Þar er saga Vélstjórafé-
lagsins rakin frá upphafi og til
þessa dags og drepið á öll helztu
vandamál, sem að félaginu og
félagsmönnum sUðia. Þá er og
í ritinu birt lög Vélstjórafélags-
ins, þau sem nú gilda.
kvenpersóna, sem ástóð elti
landa sinn út hingað til lands
fyrir meira en tveim öldum, hef-
ur verið mörgum manninum ráð-
gáta, töfrandi og hrindandi í
senn, hefur orðið að seiðþungri
þjóðsögu, og örlög htennar hér
á útskeri fremur runnið Islend-
ingum til rifja en hitt. (Mér
finnst endilega, að Davíð hljóti
að hafa ort um hana kvæði, en
það hefur hann nú víst ekki
gert).
Verið getur, að ekki þyki öll-
um að höfundur Hrafnhettu hafi
mjög ríka samúð með höfuðper-
sónunni, þegar litið er á allt það,
sem hún leggur á sig fyrir ást
sína. En allt um það verður sag-
an að spennandi manntafli, þar
sem heillandi og skapgerðarsterk
kona á við elskara sinn og neyt-
ir til þess allrar sinnar lífsorku
andlegrar og líkamlegrar. til að
ná yfir honum,-sem er linkind á
við hana, fullkomnu valdi, en
vinnur fyrir gýg — og þó. Eina
huggun fær hún, er hún getur
meinað honum að ganga að eiga
aðra konu.
Þessi saga er líklega heilsteypt
asta verk Guðmundar, e. t. v. að
fráskildum Blindingsleik. Gall-
arnir á henni eru hverfandi á við
kostina, sem eru yfirgnæfandi.
Mál persónanna er stundum slíkt
sambland af dönskuskotnu emb-
ættisstéttarmáli 18. aldar og
tárhreinm islenzku sögualdar, að
það stangast einhvernveginn á.
Ósjaldan ber á tilgerð. Stundum
verða atvik með ólikindum, eins
og hlaupið sé yfir tengiliði i eðli-
legri atburðarás sögunnar..
En sagan er í heild sterk og
heit, iðar af lifi, persónurnar eru
af holdi og blóði.. .„Andrúmsloft-
ið“ er prýðilega við hæfi. At-
burðafrásagnir eru litríkar og
staðalýsingar mjög „málandi".
Höfundur er ágætur í því að gá
til veðurs og reyndar snjall lýs-
andi á alla náttúru í jörðu og á.
Mikið er fengið, þegar allt það
hefur verið á bók fest með ágæt-
um. Slík bók á langt líf fyrir
höndum. - G.
JólsgjafasjóS
„storu
djarfir menn, sem eiga
þakkir skilið allra þeirra.
sem unna frelsi og lýðræði í
heiminum. Allir þeir, sem
óska ekki eftir því, að svart-
nætti kommúnismans fara að
grúfa yfir löndum þeirra,
munu óska þess, ao Vest. r-
Berlín fái að halda li-elsj
sínu, þvi frelsi, sem bargar-
hlutinn hefir nú, og a'ö hið
„frjálsa borgríki“ megi
aldrei upp rísa.
Heiðruðu samborgarar:
Mörgum er orðið kunnugt um
þennan litla sjóð, því, sam safn-
azt i hann fyrir jólin, cr vr-'ð til
að gleðja vangoflð fólk, sem
dvelst á hæhsstofnunum. Allir,
sem leggja eitthvað af morkum
í því skyni, geta verið þess fu.ll-
vissir að þeim hefur lánazt að
gleðja aðra. Því aö vangefið
fólk gleðst hjartanlega af litlu
tilefni, en það hryggist einnig
eins og börnin ef því er gleymt.
I sumar var stofnað Styrktar-
félag vangefins íólks hér á landi.
Stafi þess fylgja góðar óskir og
fyrir bænir margra. Mörg likn-
arfélög bera nafn með rentu,
ekki sizt félög til líknar, þeim,
sem ekkert geta hjólpað sér
sjálíir, ekki bundizt neinum sam
tökum sér til hagsbóta. Jóla-
gjafaSjóður Stóm barnanna, sem
starfað hefur í nokkur ár, verð-
ur nú afhentur hinu nýja féla"i,
það er eð’ilo-ast að ham ý.tnrrt
innan vébanda þoss þe''"r ’-;>ð
c-r komið til sögunnar. Við, ccm
að honum höfum staðið, óskum
aðeins eftir að hann fái að bera
sama nafn framvegis og hafi á-
1 öllu því „bókaflóði", sem
dynur yfir um jólin verða ýmsar
góðar bækur útundan, sem eðli-
legt er. Bergmáli liefur borizt
eftirfarandi bréf um litla en góða
bók handa börnum. Fer bréíið
hér á eftir: í
Biblían. .
Á markaðinn er komin lítil
bók, Biblíulitabókin. Hún lætur
lítið yfir sér þar, sem hún er út-
stilt í bókabúðum, gul með lítilli
englamynd framan á kápunni.
Mér datt í hug að athuga hana
lítillega og sá þá, að þetta voru
bibliumyndir, handa litlu börn-
unum til að líta í. Ekkert er þar
sem getur skaðað þau, en getur
hinsvegar gefið foreldrum tæki-
íæri til að kaupa fyrir litla pen-
inga gjöf, er getur tendrað þann
neista, hjá börnunum, og orðið
þeim ómetanlegur, um leið og
þau reyna sig á því að lita mynd-
irnar sér til gamans.
Falleg gjöf.
Bergmál getur vel tekið undir
með bréfritara um það, að þessi
litla bók, sem hér er minnzt á,
sé falleg og góð gjöf handa börn-
um. Sá hugsunar háttur virðist
ríkjandi hér á íslandi, eins og úti
i hinum stóru löndum, að kepp-
ast eftir þvi sem spennandi er.
Það er ekki aðeins að slíku sé
haldið að fullorðnu fólki heldur
og börnum. Allir, sem þekkja
nokkuð til barnauppeldis viður-
kenna að flest er börnum betra
en það er veldur truílun á geðs-
munum þeirra og æsir skap
þeirra. Þess vegna eru bækur og
leikföng, sem miða að rólegri
íhugun og göfgun sálarinnar hið
I eftirsóknarverða í þessum efn-
I um.
1
Jól og kristni.
Það er nú einu sinni svo að
jólin eru sá tími er kristinn mað-
ur leitast mest við að gleðja með
i bræður sína en oft vill það verða
! að í örlæti sinu gleymir gefand-
inn að íhuga áhrif gjafarinnar
og er hún því ekki í samræmi við
þann anda, sem jólahelgin út-
heimtir. Gjafir sem líkjast þvi
sem bréfritari minnist á eru ein-
mitt til þess íallnar að vekja
hinn sanna jólaanda, sem oft vill
verða útúndan í ofgnótt gjafa og ■
veizlugleði sem jólunum fylgir.
fram það markmið, sem í nafni
hans felst.
Undanfarin ár hefur Ragn-
hildur Ingibergsdóttir læknir,
Kópavogshælis, keypt jólagjafir
handa öllum b.ælunum og sent
þær og kann ég henni miklar
þakkir fyrir. En nú mun hver
forstöðukona kaupa Iianda sínu
. heimilisfólki fyrir það fé, sem
úthlutað er úr sjóðnum. Gjöfum
. í jólagjafasjóðinn veita viðtöku
| auk Ragnhildar þau Kristrún
| Guðmundsdóttir Auðarstræti 17,
I sem er gjaldkeri Styrktarfélags
jvangefinna, og Georg Lúðvíks-
j son forstjóri Ríkisspítalanna,
! Klapparstíg 29, sem er gjaldkeri
! Jólagjafasjóðsins.
Að svo mæltu þakka ég blað-
f inu birtingu þessa greinarstúfs
og öllum þeim, sem muna eftir
Jólagjafasjóði Stóru banianna,
Gleðileg jól.
Emil Björnsson.
----•------
JólasKfnun
í'„ r* 1 n-
er á Laufásvegi 3. Opið frá
kl. 1.30—6 e. h. alla virka
claga. — Móttaka og úthlut-
i un fatnaðar cr á Túngatu 2.