Vísir - 09.01.1960, Blaðsíða 7

Vísir - 09.01.1960, Blaðsíða 7
Laugardaginn 9. janúar 1960 VÍSIB 7 Uivian dornelt: petlut s p E N N A N D I s A K A M Á L A 5 A 6 A 24 „Það er heldur ekki mjög áríðandi." Hr. Pharaoh stóð upp. „Þetta herbergi er fullt af allskonar hlutum. Eg vil komast út undir bert loft og eg vil fá mér eitthvað að drekka einhvers- staðar. Það er betra fyrir yður að ná í sjalið yðar.“ Hr. Pharaoh lét Sheba-perlurnar í vasa sinn. „Eg bíð eftir yður niðri.“ Hr. Pharaoh opnaði fyrir henni dyrnar, en leit ekki á hana meðan hún gekk hjá!“ Bompard og Cyningham komu ofan veginn frá lögreglustöðinni og héldu ofan skemmtigönguveginn. Tungskinið blikaði á sjónum og er þeir nálguðust Napoleongistihúsið sá Bompard að hr. Pharaoh var á göngu á veröndinni svona síðla dags. Hr. Pharaoh tók í hendur þeim báðum og minntist á hversu fagurt kvöldið væri. „Já, kvöldið er yndislegt," sagði hr. Bompart, „við höfum góð- ar fréttir handa yður. Perlubandið er komið aftur.“ ,,Ah,“ hr. Pharaoh brosti við honum. „Hvernig fenguð þér þaö aftur?“ „Við fengum það ekki aftur, hr.“ Bompard þagnaði andartak. „Eg held það hafi komið aftur sjálfkrafa. Madame fann það í bréfakassanum í kvöld." „Aha,“ Hr. Pharaoh brosti aftur. „Cannes er furðulegur staður.“ „Það er-einmitt það, sem eg hefi verið að segja við hann félaga minn hérna, hr. Pharaoh. Bompard þagnaði andartak. „Og mér er óhætt að segja að eg er því mjög feginn að þetta mál er út- kljáð. Eg held að það borgi sig ekki að eltast við demantana. Og þegar á allt er litið er von að sá, sem stal perlufestinni, eigi dálítil verðlaun skilið fyrir að hafa skilað festinni aftur.“ „Já, einmitt það. Eg hugsa að það þurfi mikla háttvísi til að stunda starf eins og yðar hér í Cannes.“ Hr. Pharaoh var mjög ástúðlegur. „Vinnið þið alltaf svona seint eða eruð þið á heim- leið?“ „Við förum eftir klukku tízkuheimsins hérna, hr. Pharaoh. En rétt núna erum við á leiðinni til Barbleu til þess að fá okkur siðasta konjak fyrir kvöldið." „Sé svo þá getum við hizt aftur. Eg er að bíða eftir konu og það getur verið að við komum yfrum.“ „Okkur er heiðurinn,“ sagði Bompard. Þeir tókust aftur í hendur og ræddu um hvað nóttin væri fögur og kvöldið yndislegt. Hún kom út í síðri, blárri skikkju, yfir hvítum kjól og hr. Pharaoh talaði eins og ekkert samtal hefði verið þeirra í millum fyrr um kvöldið. „Eigum við að ganga svolítið og fá okkur svo dálitla „nátthúfu" í Barbleu?“ „Já.“ Hún þagnaði, hallaði sér fram á vegginn um veröndina og horfði lengi á perlur tunglsins í sjónum. Hr. Pharaoh tók Sheba-perl- uriiar úr vasa sínum, opnaði krókana á skykkju hennar og festi perlufestina um háls hennar. Hún hrökk við og flutti sig i burtu. „Eg — eg þarf hennar ekki.“ „Þess vegna,“ sagði hr. Pharaoh, „geðjast mér að henni um háls yðar.“ Hún hafði klukknahljóð fyrir eyrunum, ef til vill af kulda og hr. Pharaoh tók arm hennar á göngunni. Hún var að reyna að muna eftir því hvort hr. Pharaoh hefði tekið undir arm herinar fyrr, og þá varð henni á að hlæja og það var alveg eins og gítarstrengur væri sleginn. „Eg var að reyna að muna hvort þér hefðuð nokkurn tíma haft mig við arm yðar áður — og eg get ekki munað það.“ Barbleu var siðasti viðkomustaður skemmtana heimsins á leið- inni heim frá spilahöllinni, frá Dignonhöll eða öðrum stööum á bláströndinni. Fillippo brosti við þeim sínu tröllaukna brosi og kallaði fólkið „morgunvörðinn". Við barinn var maður með gullslitt skegg. Hr. Pharaoh nam staðar við barinn og bauð Bompard og Coyn- ingham að koma með þeim. Því næst fylgdi hann Jacgues að borði þar, bað um kampavíri, leit upp og sá að hann stóð and- spænis Olgu og Miguel. Olga leit á hr. Phahaoh, hún Var háyær af ,gin“ og sigurhrósi. Og cvipur hennar sagði: „Þú veizt aö eg missti hana en nú hefi eg fengiö hana aftur." Og hönd hennar leitaði til perlanna eins og hugur hennar. Hr. Pharaoh leyndi brosi sínu og sá að Francine ætlaði að fullvissa sig um það að skikkja hennar væri krækt að henni. Hún var rjóð í andliti eins og Sheba-perlUrnar brynnu á hálsi hennar undir skikkjunni. Þá leit hann í kringum sig og sá að Dante var að borða bacön og egg ásamt madame Lorelie, sem var glæsilegri í rauðum reiðkjól heldur en stúlka í peysu frá Dior við næsta borð. „Nú, hvað er þetta,“ sagði hr. Pharaoh. „Við erum hérna öll í hóp.“ Bompard og Coyningham komu þegar Jacques hafði opnað kampavínsflöskuna. Bompard leit yfir til Olgu, svaraði dálítilli hneigingu frá Miguel og brosti við hr. Pharaoh. Olga leit yfir til Dante og hún dökknaði í andliti þegar madame Lorelei hló og hristi rauðbrúna lokka sína. Síöan leit hún á Francine og sagði geðvonskulega við Miguel: „Hann hefur helgar- stelpuna með sér aítur.“ Olga gleymdi því tuttugu sinnum á dag að Miguel var spænskur höfðingi og aðalsmaður, en Miguel gleymdi því aldrei. Rödd hans KVÖLDVÖKUNNI uiiBiaa Raunir fréttaritarans, og lítil athugasemd. Frá fréttaritara Vísis. ' Selfossi 9. jan. Það getur verið ánægjulegt að rita í blöðin og dásamlegt að fá þar nafn sitt annað slagið, en gamanið getur stundum kám- að, þegar maður getur ekki fylgt greinum og fréttapistlum gegnum prentsmiðju og próf- arkalestur út í umbrotið. Sá, sem þetta ritar, á nokkuð langa reynslu í þessum efnum. Stundum hefur það flögrað að mér, að hinir ágætu prentarar prentsmiðjunnar hafi myndað öflug samtök á móti mér í þess- um efnum, svo herfilega finnst riiér þeir hafa meðhöndlað mín ágætu handrit á stundum. En góðvinir mínir, blaðamennirn- ir, ganga þó stundum feti lengra, í sambandi við próf- arkalestur og fréttamóttöku. Já, sannast að segja taka þeirra öflugu samtök prentarasamtök- unum mjög fram, á stundum. Með hjálp þessara heiðurs- manna getur framleiðsla „fréttamannsins“ út á lands- byggðinni verið gjörsamlega óþekkjanleg, þegar hún kemur í blaðinu. Nýlega kom frétt frá Selfossi hér í blaðinu. Hún er á þá leið að drukkinn maður er tekinn í Selfossbíó á nýársnótt, þar sem hann svaf á gólfinu að loknum nýársfagnaði. Lögregl- an flytur manninn á Litla- Hraun. Þegar þangað kemur, dregur maðurinn upp „bréf“ upp á það, að hann sé varnar- liðsmaður og hafi fengið leyfi herstjórnarinnar til að stunda skíða- og skautaferðir á Sel- fossi yfir áramótin. Misskiln- ingur! Manninum sleppt!! Hiað á lögregluna á Selfossi!!! Frétt þessi er eins langt frá sannleikanum og hún getur verið. — Rétt er hún svona: Oeinkennisklæddur varnar- liðsmaður lá drukkinn í Selfoss bíói eftir nýársdansleik. Tveir félagar hans, annar einkennis- klæddur voru á bak og burt. Manninum var fengið húsa- skjól á Litla-Hrauni, rétt eins og um húsviltan og dauða- drukkinn íslending hefði verið að ræða, og þar fékk hann að sofa úr sér vímuna. í liós kom, að hermaðurinn hafði levfi her- stjórnarinnar til skíða- og skautaferða á Selfossi yíir ára- mótin (og var það frétt út af fyrir sig). Síðan var honum komið í samband við félaga sína, sem gist höfðu í nágrenn- inu og hann afhentur þeim, þegar runnið var af honum, en látinn greiða „áfallinn kostn- að“. Mál hans var síðan sent lögreglustjóranum á Keflavík- urflugvelli, og mun það í fyllsta samræmi við allar réttarvenj- ur hér á landi. Og þar með lýkur þessari stórfrétt frá Selfossi. Fréttaritarinn getur bætt því við, vegna nokkuð náinna kynna af sumum störfum lög- reglunnar í þessu landi, að lög- reglan á Selfossi er til mikillar fyrirmyndar á ýmsan hátt, og mundi aldrei láta henda sig slíkt vítavert gáleysi eins og gefið er í skyn í umræddri frétt. Fréttamanninum, sem sendi fréttina (eða gerði heiðarlega tilraun til þess), og blaðamann- inum, sem tók á móti henni, mætti e. t. v. virða til vorkunn- ar, að hún var send í símtali, í flaustri, og kom aldrei til greina, sem nein aðalfrétt í víð- lesnu blaði, enda mun hún hafa verið látin víkja fyrir öðrum fréttum, þegar búið var að prenta nokkur þúsund eintök af blaðinu. Aths.: Til þess að fréttaritara vorum verði vært á Selfossi framvegis, neyðumst vér til þess að birta athugasemd hans — en lofum vitanlega engu um prófarkalestur eða meðhöndlun af prentara hálfu. Jafnframt leyfum vér oss að benda á, að hið víðfema fréttakerfi Tímans fann fregnina um hermanns- hvíldina í Vísi, þótti hún ekki nógu krassandi og bróderaði utan um hana. Er Tímamönn- um nú bent á, að nota leiðrétt- ingu eins trúverðuglega og fyrri heimildina. — Ritstj. tioriP 4PfinS ÖRuGGA ÖSKUBAKKA! Húseigendaféiag Reykjavíkur Ungur maður kom til augn- læknis. Hann prófaði augu hans og sýndi honum svo mynd. — Þetta er talan 18, sagði maðurinn. — Já, góði minn, — þér þurf- ið sannarlega á gleraugum að halda. Myndin sem eg sýndi yður var af Katharine Hepbum og Mae West! ★ Lítil stúlka spurði móður sína: — Er guð mjög veikur, mamma? Móðir hennar hrökk við: —* Hvers vegna spyrðu mig ura það, barnið mitt? Litla stúlkan svaraði: — A£ því að Marrel læknir dó í gær- kvöldi og eg býst við að Guð hafi sent eftir honum. ★ Abstrakt málarinn og kona hans ung og yndisleg fóru í brúðkaupsferð og héldu sig alla hveitibrauðsdagana í kofa uppi í sveit, en allan tímann var af- skaplega vont veður. Og þegar þau komu til bæjarins spurðí vinkona brúðarinnar hana: — Hvernig gátuð þið fengið tímann til að líða? — Það gekk ágætlega, svar* aði brúðurin. — Þorvaldur málaðd allan daginn og eg bjo til mat. — Og á kvöldin skemmtum við okkur við að geta upp á hvað það væri, sem hvort um sig hefði búið til. ★ Sjúklingur kom til Ben Markowits læknis og kvartaða um að sér væri illt í eyranu. Læknirinn skoðaði hann og sagði: — Það sem að yður geng- ur er otitis media. — Hvað þýðir það? — Bólga i miðeyranu. Sjúklingurinn stóð upp ösku- reiður. — Hvað haldið þér að eg sé — einhver vanskapning- ur? Miðeyra! Það er ekkert til sem heitir það. Eg hefi tvö eyru sitt hvoru megin á höfðinu, al* veg eins og hver annar. ★ Rakarinn var læknir fyrr á árum og enn eru menn hrædd- ir við að setjast í rakarastólinn. Rakarinn spyr: — Vilduð þér hafa eitthvað eftir á and- litinu á yður, þegar eg hefi lok- ið við að raka yður? Viðskiptavinurinn hristir höfuðið í vafa. — Eg held ekki. En eg væri þakklátur ef þér vilduð skilja nefið á mér eftir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.