Vísir - 29.01.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 29.01.1960, Blaðsíða 1
12 síður Fl. árg. Föstudaginn 29. janúar 1960 23. tbl. I Lundúnum eru m. a. búsett hjón, John og Sydney Cowan, sem eru þekktir ljósmyndarar. Nú varð það heyrin kunnugt um daginn, að frúin væri ekki einsömul, og jafnfraint var skýrt frá því, að þegar hún færi ' fæðingardeildina, mundi hún hafa með sér myndavélar af ýmsum gerðum fyrir svo sein 1500 sterlingspund, enda ætlurvin að taka bæði kvik- myndir (m. a. í litum) og and- artaksmyndir af fæðingunni. ■ Við sýnum frúna með eina vél- ina, sem fer með henni • sjúkra- húsið. Nýfrankinn franski er að byrja að koma í umferð og kemur smátt og smátt í stað gamla frankans. Einn ný- franki gildir 100 gamla. Sígarettupakki, sem kostaði t. d. 115 franka, kostar nú 1.15 nýfranka. — Gengi sterlingspunds var 1375 frankar, verður nú 13 frank- ar og 75 centimes. Nýít fjárlagafrumvarp: sem nemor 75 milljónum kr., felldur niður. f Sketfurinn fellditr niður af slanenituni launafekfum. Frumvarpið mjög breytt vegna ráðstafana ríklsstjórnarinnar. / Alþingi kom saman til fundar í gær eftir frestunina 05 var þá útbýtt nýju frumvarpi til fjárlaga, sem verið hefur í undir- ■ búningi að undanfönru. Er það að verulegu leyti frábrugðið fyrra fjárlagafrumvarpinu, enda miðað við allt aðrar aðstæður. Á það má meðal annars benda í bessu nýja frumvarpi, að þar er gert ráð fyrir afnámi tekjuskatts af almennum launa- tekjum, en hinsvegar kemur svo hækkun á ýmsum bótum og tryggingum. A sjóðsyfirliti eru niður- stöðutölur 1.464.7 millj. króna, sem er næstum 443.0 millj. kr. hærra en á fyrra frumvarpinu. Um frumvarpið segir svo í upphafi athugasemda um það: „Fjárlagafrumvarp það, sem hér liggur fyrir, er í veigamikl- um atriðum frábrugðið fjárlög- um ársins 1959 og því fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 1960, er lagt var fram á s.l. hausti. Staf- ar þetta af þeim miklu breyt- ingum í efnahagsmálum og skattamálum, sem núverandi ríkisstjórn beitir sém fyrir. — Væntanlegar aðgerðir í efna- hagsmálum hafa áhrif til hækk- unar á bæði tekjur og útgjöld. Vegna afnáms útflutningssjóðs verður ríkissjóður að taka að sér niðurgreiðslur, en verður jafnframt aðnjótandi tekna, sem áður runnu til útflutningssjóðs. Sú aukning á bótagreiðslum al- mannatrygginga, sem ríkis- stjórnin beitir sér fyrir, veldur verulegri hækkun útgjalda. Þá breytast tekjustofnar mflög vegna væntanlegra breytinga á skattalögum. Afnám tekjuskatts á almennum launatekjum lækk- ar tekjuskattinn um 75 millj. 1 kr. frá því sem var í fjárlögum : 1959. Núverandi 9% söluskatt- ur á innlendri framleiðslu og þjónustu fellur niður. í stað þessa tekjumissis kemur nýr al- mennur söluskattur. sem ríkis- stjórnin mun bera fram frum- varp um á næstunni, og sem á- ætlað er að gefi af sér 284 millj. kr. Gert er ráð fyrir að einn fimmti hluti þess skatts gangi ekki til ríkisins, heldur til jöfn- j unarsjóðs sveitarfélaga, og geti I þannig orðið til að iækka nú- 1 verandi útsvör. Að lokum falla niður tveir tekjustofnar, sér- staks eðlis, frá fjárlögum 1959, tolla- og skattagreiðslur Sogs- Frh. á 11. síðu. Það má segja, að 'þarna sé bíllinn búinn einu liestafli um of. Rétt er að geta þess, að hvorki klár né karlinn, sem bílnum stjórnaði, urðu fyrir skaða en bíllinn beyglaðist lítið eitt. Þetta gerðist í S.-Þýzkalandi við uppskeruvinnu í haust, og hafði hesturinn fælzt. lírslit I Alsir l dag. De Gaulle tilkynnir áform sín b ávarpi fil þjóðarinnar. Verður borgarastyrjöld afstýrt? Miðar vel undir Mt. Blanc. Frakkar komnir Vi km. inn í fjaliið. Unnið er af kappi við jarð- göngin miklu undir Mont Blanc, hæsta fjall Evrópu. Skýrt hefir verið frá því í Paris, að Frakklandsmegin miði sprengingum um það bil 10 metra á dag og er þar komið rösklega .'héifan kílómetra inn í fjaljið. Samkæmt, þessu gengur verkið eftír áætlun .hjá Frökk- um,.og veUþað- og- sauia máli mun gegna um- starfið-. Ítalíu- megin. Innan skamms mun ganga enn betur hjá Frökkum, því að þá taka þeir í notkun nýjar vélskóflur, sem eru rafknúnar, en hingað til hafa þeir notast við skóflur, sem ganga fyrir þjöppuðu lofti. . Verkið er unnið fyrir franskt og ítalskt fé aðallega, en auk þess greiðir Sviss nokkum hluta verksins, þar -sem það kemur svissneskum hagsmun- ura emnig að góðu gagni. De Gaulle Frakklandsforseti ávarpar í dag frönsku þjóðina í útvarpi og er ræðu hans beðið með mikilli eftirvæntingu. Sú skoðun kemur nú fram, m. a. í kunnum brezkum blöð- um, að De Gaulle hafi farið sér hægt gegn nýju uppreistar- mönnunum í Alsír, vegna þess, að hann hafi viljað veita þeim tækifæri til þess að hugleiða af- leiðingar, ef þeir héldu til streitu áformum sinum. Gífurlega athygli vakti,, að þeir Delouvrier landstjóri og Maurice Challe yfirhershöfð- ingi í Alsír, fluttu í gær frá Al- geirsborg, til nýrra bækistöðva, og var staðfest i fi’egnum frá París, að þetta hefði verið að skipun frönsku stjórnarinnar til þess að fjarlægja þá áhrifum þeirra manrva í Algeirsborg, sem neita að hiýðnast fyrir- skipunum De Gaulle og stjórn-. ar tams um að-gefast-upp.‘ Delouvrier birti ávarp til í- búa Alsír, áður en hann fór og gerði grein fyrir brottför þeirra. Hann kvað þá reiðubúna til að koma aftur. Þeir væru stað- ráðnir í að fórna- lífi sínu í Frakklands þágu. Hann harm- aði, að áframhald væri á sorg- arleiknum, og bað menn hlýða De Gaulle. Hann kvað burtför þeirra ekki flótta, og benti á, að hann hefði skilið konu og börn eftir í Algeirsborg. Hann kvað Múhameðstrúarmenn í Alsír styðja De Gaulle — með stuðningi við hann yrði sigur unninn í Alsír. Hann brýndi fyrir leiðtogum hinna nýju upp- reistarmanna, Lagaillarde og Ortiz, að ef þeir héldu áform- Frh. á 2. síðu. SAS gafst upp - Braathen tekur við. Braathen, norski útgerðar- maðurinn, sem okkur íslend- ingum er að góðu kunnur, hef- ur sótt um leyfi til norsku flugmálastjórnarinnar um að fá að fljúga frá Osló til Ála- borgar. Hann bíður nú eftir svari við beiðni sinni; en SAS hefur geí- ist upp á þessari — eða svip- fiðri leið — nefnilega Kristians- sem fer þessa leið um helga sand—Álaborg. Hann ætlar að fljúga þessa leið á föstudögum og mánudögum, með viðkomu í Larvík. Braathen álítur að r.auðyn sé að halda uppi flug- fereðum milli Noregs og Jót- lands, nú þegar SAS hættir. Með því að fljúga á föstu- og mánudögum, vonast Braafh- ep tii að ná; skemmtiferðafólki,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.