Vísir - 06.04.1960, Blaðsíða 4

Vísir - 06.04.1960, Blaðsíða 4
.V 1 SIR Miðvikudaginn 6. april RAÐSTEF I 2% Inngangur og sögulegt yfirlit. Sú spurning mun um alllangt skeið hafa verið ofarlega í hug- um margra íslendinga, hvort þeir geti vænzt hagstæðs árang- urs á sjóréttarráðstefnunni, sem nú stendur yfir í Genf, og ætlað er það hlutverk, að finna réttláta úrlausn um fiskveiði- takmörk og landhelgi hinna svo- kölluðu strandríkja. Ég hef ver- ið einn í þeim hópi, sem hef vænzt þess, að þar muni nást sá árangur sem verði íslending- Um hagstæður. Rökin fyrir þeirri þeirri von minni eru eftir- farandi: íslendingar höfðu búið við yfirlýsta 16 sjómílna landhelgi allt frá árinu 1680 (og áður hafði hún verið ennþá meiri), til áramótanna 1901, þótt um 41 árs skeið hefði ekki verið fram- fylgt að verja lengra út en fjór- ar mílur frá ströndinni. Þeir hljóta því að hafa öðlazt laga- legan rétt til 16 sjómílna, sam- kvæmt ákvæðum alþjóðalaga, eftir að 16 sjómílur höfðu verið yfirlýstar að formi til í 220 ára tímabil. Alla 19. öldina réði hins vegar hin skefjalausa nýlendustefna, þar sem hnefarétturinn var hinn viðurkenndi réttur, sem skar úr málum þjóða á milli. Stórveldin notuðu heri sína til að brjóta undir sig lönd og heila heimshluta, eftir því, sem þau höfðu bolmagn til. Sömu aðferðum var beitt á hafinu. Þau lönd, sem voru nógu fjölmenn og sterk, litu á fiski- grunn fjarlægra landa sem út- höf, sem öllum ætti að vera frjáls, allt upp í fjöruborð hjá þeim þjóðum, sem þar bjuggu, þótt öll lífsafkoma þeirra þjóða væri háð fiskiveiðum. Þannig fóru þau sinu fram í tillitslausri veiði, og eyðilögðu lífsafkomu þjóðanna með ágengni sinni. Öllum verri í þessari samvizku- lausu ágengni voru þá Englend- ingar. Þeir voru þá taldir ósigr- andi vegna hins öfluga herskipa flota síns. Allt frá byrjun 15. aldar komu þeir mjög við sögu á fiski- miðum íslendinga. Það tímabil hefi eg tekið til meðferðar áður og endurtek það þvi ekki í þess- ari grein. En öll er sú saga sam- felld saga samvizkulausrar á- gengni. Þar er um að ræða manndráp, mannrán, misþyrm- ingar, eyðingu' byggða á fá- mennum stöðum, kirkjubrunar, rán og gripdeildir. Yfirleitt allt, sem kemur til greina í yfirgangi af versta tagi. í opinberum skýrslum hjá þeim sjálfum er sagt, að þeir fiski á 6—10 faðma dýpi og rannsaki veiðiskilyrðm á hinum þröngu fjörðum ís- lands. í skýrslu frá „Board of Trade“ til „Foreign Office<‘, seg- ir í niðurlagi: „Tolltökumaður- inn segir ennfremur, að fiski- skip frá Bretlandi hinu mikla ý stundi fiskiveiðar við strendur íslands, rétt við land, og sér í lagi inni á fjörðum og flóum á suðausturströndinni.“ Ástæðan til þess að þetta var hægt var sú, að Danir höfðu tekið sér húsbóndaréttinn yfir fslendingum, og þá að sjálf- sögðu alla vörzlu landhelginn- ar, en bæði skorti mjög fram- kvæmdardug eða getu, til þess að varzlan væri fullnægjandi, á þeim veiðisvæðum, sem kónung- ur hafði friðað til einkanytja fyrir fslendinga. Svona stóðu málin fram til aldamótanna 1900, en þá stóðu Englendingar á hátindi valda sinna og nýlendugræðgi. Þá höfðu þeir hafið styrjöldina við |hollenzku landnemana í Suður- lAfríku, það er Búana, eftir að þar fundust auðugar gullnámur. Þá höfðu þeir og um árabil haldið fram kenningunni um það, að þrjár sjómílur væri há- mark þess svæðis, sem friða mætti til einkanota fyrir íbúa strandríkjanna, samkvæmt al- þjóðalögum. En á sama tíma höfðu verið samþykktar regl- ur, sem lokuðu öllum stórflóum Skotlands, með 14 sjómílna belti þar fyrir utan, frá grunn- ilínum sem væru frá 30 til 120 sjómílur á lengd. En rétt fyrir aldamótin 1900 hindraði enska ríkisstjórnin Skota í að því að framfylgja uppkveðnum dómum yfir er- lendum veiðiþjófum, sem teknir voru að veiðum á þessum frið- lýstu svæðum. Sú skýring var gefin, .að það ræki sig á hags- muni enskra útvegsmanna, sem þá sóttu mjög á fiskimiðin við Noreg, Færeyjar og ísland, og gerðu kröfu til að fiska að þriggja mílna mörkunum, ef þessum dómum yrði framfylgt. Því varð að koma í veg fyrir það. Á þessu tímabili voru enskir togarar farnir að leita mjög inn í Faxaflóa, þótt hann væri þá lokaður, eins og fyrr er sagt, fyrir veiðum útlendinga. Þá gengu Englendingar svo langt í ágengni sinni, að enskur flotadeildarforingi, George L. Atkinson, sem stjórnaði æfinga- deild við ísland, hótaði að beita sér fyrir því að enskir togarar tækju upp rétt sinn, til að fiska að þriggja mílna mörkunum, al- staðar við ísland, og þeir yrðu varðir í þeim rétti. Flotaforing- inn var með þessum blygðunar- lausu hótunum að gera tilraun til að hafa áhrif á íslenzka lög- gjöf, um að breyta lögunum um jlandhelgina, svo að þeir fái að jfiska að þriggja mílna mörkun- um. Hann segir ennfremur, að þá getj íslendingar verið í friði á þriggjá mílriá beltinu, sem eft- ir verði skilið til einkanota fyr- ir þá. II. Samningurinn frá 1901. Eftir aldamótin er svo gerður ,hinn ah-æmdi samningur, sem kenndur er við árið 1901. Það var milliríkjasamningur Dana og Englendinga. íslendingar fengu ekki að vita um tilveru hans fyrr en árið 1903, þá var talið fært að greina frá honum. Það er þó augljóst mál, að með því að gera slíkan samning til ákveðins tíma og uppsegjanleg- an með tveggja ára fyrirvara, til að fá breytingu frá 16 sjó- mílum, viðurkenna þeir óbeint, að 16 mílna takmörkin hafi átt rétt á sér. Ella hefðu þeir tekið sér réttinn, eins og Atkinson flotadeildarforingi hafði enda hótað að gera nokkru áður. En það sýnir það, að um leið og þessum samningi var löglega sagt upp, áttu íslendingar rétt til þess svæðis aftur, þegar samningurinn var úr gildi fall- inn. Þessi samningur er hins vegar sú mesta ofbeldis- og efnahags- leg arðránsráðstöfun, sem fram- in var gagnvart íslenzku þjóð- inni, á því tímabili, sem hún var arðrænd og undirokuð af dönsk- um stjórnarvöldum. Með til- komu hans voru allar gotstöðv- ar og uppeldisstöðvar dýrniæt- ustu fisktegundanna við ísland, undir stöðugri ágengni enskra togara, og svo komu fiskiskip annarra útlendra fiskveiðiþjóða inn á fiskimiðin, í kjölfar þeirra. Árangurinn kom líka fljótt í Ijós; fjarðaveiðin, sem aldrei hafði brugðizt á vissum árstím- um, hvarf að mestu er fram liðu stundir. Þá má og bæta því við, að fyrirheitin um að íslending- ar fengju að vera í friði á 3ja mílna beltinu, sem eftir var skil- landhelgi íslands ið, var algjörlega svikið. Eftir tilkomu loftskeytanna var stofn- að til og skipulagt viðtækt njósnakerfi, til að gefa upplýs- ingar um ferðir varðskipanna. Margskonar ofbeldisverk voru unnin gegn þeim, sem gerðu til- Jraun til að verja eitthvert af ;þessum svæðum. Þar áttu sér jstað manndráp. (Viðureignin ’ við Hannes Hafstein sýslumann á Dýrafirði, 3 menn drepnir). .Mannrán (samanber Snæbjörn i í Hergilsey og Guðm. Björnsson sýslumaður, og Eiríkur Kristó- fersson). Margoft strönduðu togararnir með vörpuna úti í fjöruborðinu fyrir suðaustur- ströndinni. Þá urðu íslenzkir fiskimenn að þola það, að veið- arfærin væru eyðilögð fyrir þeim, oft og mörgum sinnum, engu síður en fyrir gildistöku samningsins. Þetta ástand hélzt svo allt fram yfir lok fyrri heimsstyrj- aldarinnar. En í byrjun þeirrar styrjaldar kom þó fram í fyrsta sinn sú yfirlýsing, að England liti á það sem sitt helga hlut- verk, að virða og verja rétt smá- þjóðanna, bæði stjórnmálalegan og eignalegan. En þau fyrirheit virtust þó með öllu gleymd við friðarsamingana, sem á eftir fóru, því til að byrja með skiptu sigurvegararnir á milli sin reit- um hipna sigruðu. Sérstaklega voru það þó Englendingar og Frakkar, sem þá þöndu nýlendu- ránsfeng sinn yfir stóra hluta Asíu og Afríku..Hins vegar fóru þá ýmsar þjóðir að berjast fyrir rétti sínum, eftir þá skiptingu, þótt það bæri lítiiin árangur fram að seinni heimsstyrjöld- inni. III. Tímamót í landhelgismálum íslands. Það urðu þó að einu leyti tímamót í réttindabaráttu ís- lendinga. Þeir náðu viðurkenn- ingu á stjórnmálalegu sjálfstæði árið 1918. Upp úr því fóru þeir smátt og smátt að taka í sinar hendur landhelgisgæzluna. Þá varð gjörbreyting á, til hins betra, um árangur. Brautryðj- endur voru Vestmannaeyingar, með kaupunum á Þór gamla,. sem fyrst hafði eftirlit með veiðiflota Vestmannaeyinga. En sama ásókn og fyrr var þá inn fyrir þriggja mílna mörk- in af útlendingum og orðið auð- veldara um njósnirnar, eftir til- komu loftskeytanna. Þessu fór svo fram þar til seinni heims- styrjöldin skall á. Njósnum um ferðir varðskipanna var haldið uppi á vísindalegan hátt, til að gefa erlendum veiðiþjófum upp- lýsingar um ferðir varðskip- anna, og mun svo vera allt til þessa dags, eftir frásögnum enskra fréttaritara, sem dvalið hafa um borð í enskum togur- um á veiðiferðum þeirra á ís- landsmiðum, og þótt þetta efni skemmtilegt til frásagnar í ferðasögum sínum. Eftir að síðari heimsstyrjöld- in hófst og erlend skip hurfu að mestu af íslandsmiðum, varð hér uppgripaafli, sem íslending- ar hagnýttu til hins ítrasta og seldu á enskan markað. Allar fleytur, sem talizt gátu haffær- ar, voru teknar í þá þjónustu.- En alltaf var þó þörf fyrir meiri fisk. íslendingum var þá heitið margskonar fríðindum,. fyrir þá ómetanlegu hjálp, sem Framh. á bls. 9. Á myndinni sést hliðarvagn af nýjustu gerð, og mætti ætla, að hann yrði vin- sælt hjálpar-farartæki, þar sem vegir eru góðir, og skilyrði til að fara eitt- hvað, þar sem gaman er að setja fleytu á flot á vatn eða sjó. Hliðarvagninn má sem sé nota sem lítinn bát og er hreyfl- inum fyrir komið í skutnum. Hægt er að fara á honum með 11 hnúta hraða á klst. Hliðarvagninn er annars kallaður „Canterbury Belle“ og bað eru tvær blómarósir frá Kantaraborg, þar sem hann er framleiddur, sem sjást á mynd- unum, og bctur á efri myndinni, er þær veifa til félaganna tveggja, sem þær hafa orðið að skilja eftir, en þetta er sem sé „tveggja manna far.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.