Vísir - 02.05.1960, Síða 6
6
Mánudaginn 2. maí 1960
V í S I R
TIBIB
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
S Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,09.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Kr. 3,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Sumarstarf KFUM í Vatnaskógí
Mikll sókn þangað ber vott um sívaxandi
vmsæidlr.
Eftir Genfarfunciinii.
Síðastliðinn föstudag flutti
Bjarni Benediktsson ræðu í
fréttauka Ríkisútvarpsins um
landhelgismálið. Ræddi hann
! þar stuttlega ýmis atriði
: landhelgismálsins og sagði í
stórum dráttum frá gangi
' mála á sjóréttarráðstefnunni,
' sem nýlokið er í Genf. Benti
ráðherrann meðal annars á,
að enda þótt ekki hefði verið
gerð nein somþykkt á ráð-
stefnunni um víðáttu land-
helgi og fiskveiðilögsögu,
hefði það þó áunnizt, að al-
mennt hefði sérstaða íslands
verið viðurkennd. Var það
»g athyglivert, sem ráðherr-
ann benti á, að 12 mílna fisk-
veiðilögsaga okkar væri ekki
sérmál íslendinga, heldur
ætti hún að vera keppikefli
allra, sem hlut eiga að máli.
Friðunarráðstafanir væru
ekki aðeins íslendingum til
hagsbóta, heldur og öðrum
fiskveiðiþjóðum, því að eng-
! inn getur grætt á því, að
fiskstofnar eyðist.
ijarni Benediktsson dómsmála-
ráðherra kemst meðal ann-
ars svo að orði í ræðu sinni:
1 ,,Auðvitað eru margar á-
stæður til þess, að ráðstefn-
an fór út um þúfur, og sá
möguieiki er vissulega fyrir
hendi, að ef menn hefðu
fengið að greiða svo at-
kvæði um tillögur íslands
eins og hugur þeirra stóð til,
þá hefðu aðrir, þótt fáir
væru, skorizt úr leik, svo að
nægur meirihluti hefði engu
að síður ekki fengizt með
samkomulagstillögu Kanada
og Bandaríkjanna svo
breyttri. En ekki ætti að
þurfa um það að deila, að
hagsmuni íslands hefði ekki
verið hægt að tryggja betur
á annan veg en þann, en ef
tekizt hefði að fá alþjóða-
samþykkt, þar sem 12 milna
fiskveiðilögsaga var skilyrð-
islaust viðurkennd fyrir ís-
alnd, hvað sem var um aðra,
svo sem Dani og Norðmenn,
er eftir atvikum vildu sjálfir
sætta sig við 10 eða að
nokkru 5 ára kvöð.“
Um þetta eru vafalausí flestir
íslendingar sammála. Sendi-
nefnd fslands í Genf fór
þangað til þess að freista
þ^ss, að ísland gæti fengið
12 mílna fiskveiðilögsögu,
skilyrðdslaust. Þegar miklar
horfur voru á, að hin sam-
eiginlega tillaga Kanada og
Bandaríkjanna um „6 plús 6
mínus 6“ næði tilskildum
meirihluta, var sjálfsagt að
íreista þess að bera fram
breytingartillögu um, að hin
svonefndu sögulegu réttindi
skyldu ekki ná til þeirra
þjóða, sem væru nær alger-
lega háðar fiskveiðum um
afkomu sína. Hitt er svo
annað og leiðinlegra mál, að
Hermann Jónasson og Lúð-
vík Jósepsson skyldu verða
til þess að hafa sérstöðu í
því máli, í óþökk yfirgnæf-
andi meirihluta landsmanna.
Gengið hefur verið frá áætl-
unum fyrir sumarstarf K.F.U.M.
í Vatnaskógi nú í sumar.
Er tilhögun þess svipuð og
verið hefur undanfarin ár. í
fyrra jdvöldu í Skóginum hátt
á sjöunda hundrað drengir og
piltar, en þá voru flokkarnir j
tíu eins og nú í ár. Frá 8. júní
til 1. júlí eru flokkar fyrir 10—!
12 ára drengi. Frá 5. júlí til 22. j
júlí eru flokkar fyrir drengi 12
—14 ára og frá 22. júlí til 29.
júlí fyrir 14—16 ára pilta. Þann'
29. júlí hefst svo hinn fyrsti
af þremur vikudvalarflokkum
fyrir drengi 9—13 ára. Flokk-
ar þessir eru allir vikuflokkar
nema síðasti flokkurinn fyrir
10—12 ára drengi, sem verður^
9 dága, og fyrri flokkurinn
fyrir 12—14 ára drengi, sem
verður í 10 daga. Sumarstarf-
inu í Vatnaskógi lýkur svo með
því, að flokkur verður fyrir
uppkomna pilta og menn 19.—■
26. ágúst. ’l
Sumarstarfið í Vatnaskógi
hefur orðið mjög vinsælt á liðn-
um árum og ber hin mikla sókn
þangað vott um það. Þar eru
líka öll skilyrði til þess að
hafa sumarstarí, sem sé við
hæfi drengja og pilta. Náttúi'U-!
fegurðin gjörir sitt til, vatnið.:
með mörgum bátum, dregur
hugi drengjanna. Þá hefur og
verið gjörður stór knattspyrnu- ’
völlur og er það grasvöllur. Er
verið að vinna að því að fá þar
góðan leikvang og mun nú í vor
unnið að því að gjöra hlaupa-
braut og annað, sem á við á
íþróttavelli. Drengirnir, sem
dvalið hafa undan farin ár í
Skóginum, hafa sýnt mikinn á-
huga á íþróttum, einkanlega þó
í knattspyrnu.
Mikið sjálfboðastarf er unnið
á hverju vori og sumri í Vatna-
skógi til þess að prýða staðinn
og búa hann sem bezt. Skógar-
menn K. F. U. M. hafa reist
þarna vandaðan sumarskála,
auk þess hafa þeir komið upp
rafstöð og myndarlegu báta-
skýli. Þá er þar og snotur lítil-
kapella. Um 10 ára skeið hafa
þeir og unnið að gróðursetningu
trjáplantna, mest skógarfuru
og greni, og eru nú trén frá
fyrstu árum gróðursetningar-
innar að verða fallegar plönt-
ur, nokkuð á annan meter á
hæð.
Sumarstarfið hefir gegið út
lítið smárit, prýtt mörgum
myndum, með helztu upplýs-
ingum um starfið í Vatnaskógi
á komanda sumri. Er hægt að
fá rit þetta á skrifstofu K. F.
U. M., þar sem einnig eru veitt-
ar allar nánari upplýsingar
daglega, nema laugardaga, frá
kl. 5.15 til 7 e. h. Aðsókn virð-
ist ætla að verða mikil í Vatna-
skóg'i í sumar, því nú þegar eru
nálægt hundrað drengir og
piltar búnir að láta skrá sig,
enda þótt sumarstarfið sé nú
fyrst auglýst opinberlega.
Tvær nýjar bækur frá
Almenna bókafélaginu.
tíöfundar: Perleifisr BJarnason og
Maria Dermont.
Alveg sérstaka athygli vakti
sá kafli ræðu dómsmálaráð-
herra, er fjallaði um sakar-
uppgjöf vegna landhelgis-
brota frá 1. september 1958.
í sambandi við það mál sagði
ráðherrann:
„Fyrir okkur íslendinga er um
að gera að halda þeirri sam-
úð, sem við höfum aflað, og
gera ekki neitt það, sem
kann að verða til þess, að
aðrir geri í fljótræði eitt-
hvað, sem skapi óleysanleg
vandamál...... Við vitum
ekki, hvað framtiðin ber í
skauti sínu. En hvað sem
aðrir gera, hirðum við ekki
um að eltast við gamlar sak-
ir úr því sem komið er. Elt-
■ ingaleikur til að koma fram
i refsingum vegna þess, sem
framið var þegar atvik voru
öll önnur, yrði nú engum til
j góðg. Við viljum byggja
lausn á máli okkar í sátt og
samlyndi við alla, einungis
ef lífshagsmunum okkar er
ekki ógnað.“
Og enn sagði ráðherrann: ,,Hér
eftir sem hingað til mun
haldið uppi gæzlu innan alls
12 mílna svseðisins og allir
þeir sóttir til saka, sem ger-
ast brotlegir héðan í frá.“
Enginn vafi er á því, að
þjóðin mun taka þessari á-
kvörðun vel. íslendingar
skilja, að hér er af hálfu rík-
isstjórnar okkar um að ræða
yfirlýsingu, sem felur í sér
vinarhug „gestus“, sem ekki
verður skilinn á annan veg
en þann, að íslendingar vilja
draga úr háskalegri spennu
í þessu viðkvæma máli, án
þess þó að slaka neitt á kröf-
um okkar um 12 mílna fisk-
veiðilögsögu. Brezkir togar-
ar geta nú leitað læknis í ís-
lenzkum höfnum og vars við
íslenza strönd, svo fremi
þeir virði héðan í frá ís-
lenzka fiskveiðilögsögu, án
Út eru komnar hjá Almenna
bókafélaginu bækur mánaSarins
! fyrir apríl og maí. Eru þær Hjá
| afa og ömmu, eftir Þórleif
j Bjarnason og Frúin í Litlagarði
j eftir hollenzka skáldkonu,
Maria Dermout. Hefur Andrés
Björnsson þýtt þá bók.
Hjá afa og ömmu er sjötta
bók Þórleifs Bjarnasonar, en
allar fyrri bækur hans hafa
vakið mikla athygli, eins og
kunnugt er. Þessi nýja bók er
bernskuminningar höfundar
frá Hælavík í Sléttuhreppi á
Hornströndum, en þar ólst
: hann upp hjá afa sínum og
I ömmu, Guðna Kjartanssyni og
Hjálmfríði ísleifsdóttur. Er
þetta sérlega skýr frásögn af
1 sálarlífi sveitadrengs og sam-
lífi hans við fólk, dýr og hina
dauðu náttúru, sem hann lifir
sig svo inn í, að fjöll og steinar
Frá styrktaríélagi
fatlaðra og famaðra.
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra hefur nýlega gerst
aðili að alþjóðasamtökum til
styrktar lömuðu og fötluðu
fólki. Félagið er nú meðlimur
International Society for the
Welfare of Cripples.
í samtökum þessum eru
eingöngu félög áhugamanna í
hinum ýmsu löndum, en engar
stofnanir eða stjórnardeildir á
vegum ríkis eða bæjarfélaga,
sem svipuðum málum sinna.
Samtökin reka ekki sjálf
spítala eða neinar stofnanir
aðrar til lækninga eða annara
hjálpar fyrir fatlaða, heldur
vinna þau eingöngu að söfnun
upplýsinga og útbreiðslu þekk-
ingar á læknisfræðilegum,
tæknilegum og' félagslegum
vandamálum er snerta lamaða
og fatlaða.
Samtökin styðja á þennan
hátt eftir r.rætti starfsemi
hinna einstöku félaga í hinum
ýmsu löndum. Eitt aðalverk-
efni samtakanna er að efna til
alheimsráðstefna á 3ja ára
fresti um þessi málefni. Nót
þessi sækja læknar, nuddkon-
ur, umbúða og skósmiðir til
þess að fylgjast með nýjungum
í sérgreinum sínum og enn-
fremur leikmenn er áhuga hafa
á málefnum fatlaðra.
Næsta alþjóðamót verður
haldið í New York í ágúst 1960.
Styrktarfélag lamaðra *g
fatlaðra hefur nú fengið frá
samíökunum síutta kvikmynd
um stai'fsemi eins slíks félags í
U.S.A.
fá mál í vitund hans. Inn í
þetta fléttast glöggar lýsingar
á fólkinu, umhverfis hann,
heimilisfólkinu í Hælavík,
ótta við að gamlar yfir-
troðslur þeirra hitti þá fyrir?
Þessi ráðstöfun ríkisstjórnar-
innar, sakaruppgjö.fin, er
hvort tveggja í senn, drengi-
leg og skynsamleg. Fyrir því
mun hin íslenzka þjóð taka
henni vel.
einkum afa hans og ömmu, og
einnig þeim, sem þangað koma
eða hann hittir, svo sem Betúel
í Höfn, Jóni lækni Þorvalds-
syni, séra Magnúsi Jónssyni að
ógleymdum Árna Sigurðssyni í
Skáladal, sem lesandinn fær af
glögga mynd í stuttu samtali.
Sléttuhreppurinn er nú í eyði,
og meiri hluti þess fólks, sem
lesandinn kynnist hér, kominn
undir græna torfu. En Þórleif-
ur Bjarnason hefur reist því
fagra bautarsteina í minninga-
bók sinni.
Maria Dermout (frb, Dermát)
höfundur Frúarinnar í Litla-
garði, er roskin kona, sem ól
aldur sinn fram yfir sextugt
austur á Indlanseyjum. Hún
hóf ritstörf 63 ára að aldri.
Frúin í Litlagarði kom fyrst út
1955, og' var höfundur hennar
þá 67 ára. Hefur sagan síðan
komið út fjórum sinnum í Hol-
landi og auk þess verið þýdd á
fjöldamörg önnur mál. Nú ný-(
lega he£ur sagan verið kvik-
mynduð.
Frúin í Litlagarði gerist á
Moluccaeyjum í Indónesíu og
segir frá evrópiskri konu allt
frá bernsku hennar og fram á
elliár, og því margvíslega fólki,
sem hún umgengst. Er sagan í
senn einkennileg og spennandi
og fær yfir sig sérkennilegan,
Kór KSVf efnir
tíð h[|ónt!eika.
Kór Kvennadeildar Slysa-
vamafélagsíns í Reykjavík efn-
ir til hljómleika fimmtudaginn
5. maí n. k. í. Austurbæjarbíói.
Söngstjóri er Herbert Hribers-
chek og undirleikari Selma
Gunnarsdóttir.
Einsöngvari með kórnum er
Eygló Viktorsdótir en Jórunn
Viðar mun leika einleik á píanó.
Á efnisskránni eru verk eft-
ir innlenda og erlenda höfunda
m. a. tónverk eftir Skúla Hall-
dórsson tónskáld fyrir kór og
einsöngvara samið við kvæði
Jónasar Hallgrímssonar „Ásta“.
Mun það verða frumflutt á
hljómleikum þessum og hefur
tónskáldið tileinkað kórnum
það í tilefni af 30 ára afmæli
Kvennadeildar Slysavarnafé-
lagsins í Reykjavík 28. þ. m.
f kórnum eru 30. konur en
formaður er Gróa Pétursdóttir,
gjaldkeri Elínborg Guðjóns-
dóttir og ritari Hjördís Péturs-
dóttir.
dulrænan blæ, sem stafar sum-
part af stöðugri nálægð liðins
tíma, sumpart af hinu óvenju-
lega umhverfi, sem höfundur-
inn leiðir lesandann í.
Bækurnar verða sendar um-
boðsmönnum Almenna bóka-
félagsins út um land um þessa
helgi, en fyrir félagsmenn í
Reykjavík eru þær til af-
greiðslu í skrifstofu útgáfunnar
að Tjarnargötu 16.